breyttir tímar..

hæhæ allir saman..

nú eru breyttir tímar.. það er sem sagt búið að breyta klukkunni hér í Ameríku og við erum núna 5 tímum á eftir Íslandi.. þannig að það er alveg stranglega bannað að hringja í okkur fyrir kl 13 á íslenskum tíma (nema það sé eitthvað rosalega merkilegt)..

Við Henning fórum með Kolku til læknis í gær og þar var hún vigtuð, lengdarmæld, hlustuð og svo endaði heimsóknin á 3 sprautum.. Kolka var sko ekki sátt við það enda kannski hægt að sætta sig við eina sprautu en alls ekki 3!!! í gærkvöldi byrjaði hún svo að verða slöpp og er búin að vera þannig í dag líka.. virðist samt vera að ná sér núna..

Salka er loksins orðin hress og kát eftir kvefið sem hún nældi sér í og var í henni í 10 daga..

Mig langaði líka að benda ykkur á að þið getið alltaf skoðað myndir á síðunni þeirra systra á barnalandi, við erum mun duglegri við að setja inn myndir þangað..

hafið það gott.
-Emma
|