Aleinn og yfirgefinn með vont Tíramísú

Sit hér aleinn og yfirgefinn með tvo Þjóðverja í húsinu. Emma og Salka voru að fara til Íslands nú í kvöld og það er alveg ótrúlega tómlegt í kotinu. Ég keyrði þær upp til Boston áðan þar sem við sóttum Úlfar á Colonnade hótelið og þaðan var haldið á Pizzeria Regina í norðurhluta Boston, þar sem við ætlum að snæða ljúffenga flatböku. Eftir að hafa þrætt þröng stræti norðuhlutans þá blasti við okkur röð fyrir utan pizzastaðinn... svo við ákváðum bara að halda aftur á hótelið þar sem við snæddum ljúffengan mat í boði Úlfars! Eftir þær vellystingar keyrðum við mjög furðulega leið út á Logan flugvöll þar sem ég hvaddi þær mæðgur og föður minn með miklum söknuði og keyrði svo mjög niðurdreginn aftur til Providence. Það var síðan enginn heima á Transit Street þegar ég kom þannig að ég fékk mér frosinn harðfisk og horfði á South Park. Conni og Joe komu síðan heim og Conni fór að baksa við að búa til Tíramísú. Það heppnaðist ekki betur en svo að hún notaði allt of mikið af vitlausu súkkulaði þannig að úr varð hálfgerður kókómaltsþeytingur. Hún var nú hálffúl yfir þessu en ákvað samt af einhverjum dularfullum ástæðum að skipta þeytingnum niður í poka og frysta... á eflaust eftir að koma einhvern tímann að góðum notum! Ef einhver lesenda rekst á þær mæðgur á Íslandi þá sendi í knús til þeirra.

-Henning
|