Salka heldur áfram að sýna listir sínar!
14/02/06 04:12
Það snjóaði einhver ósköp á okkur hérna á
austurströndinni og um 2.000 flugum (fiskiflugum?
býflugum?) var frestað vegna snjóþyngsla. Ég og Salka
ákváðum því að skella okkur á bretti hér á götum
Providence og var það feikna fjör. Ég dró hana upp
Thayer Street og í Brown garðinn þar sem hún renndi
sér af mikilli list og síðan renndi hún sér heim
aftur. Það horfðu margir á okkur með stórum augum -
sérstaklega þeir sem sátu í bílunum sem við mættum!
Við settum saman myndband af ævintýrinu og það má
finna hér á hægri hönd.
|