X-ið bjargar þrífættum ketti

Ég var á keyrslu í Hafnarfirði í fyrradag, hlustandi á Létt-Bylgjuna eða eitthvað þvíumlíkt og hægði því á mér til þess að skipta um útvarpsstöð. Ég skipti af sjálfsögðu á X-ið, 97,7 og í sama mund hljóp þrífættur köttur fram fyrir bílinn. Það er alveg öruggt ef að ef ég hefði ekki verið að hlusta á einhvern ámóta óbjóð og Létt-Bylgjuna og hefði ekki neyðst til þess að skipta um stöð þá hefði ég ekið beint yfir þrífætta köttinn. Það hefði mér auðvitað þótt leiðinlegt, ólíkt vini míni honum Matthíasi sem finnst fyndið þegar fólk hjólar yfir skúnka. Annars sendum við Matthíasi baráttu kveðjur.

-Henning
|