Neðri hæðar fólkið!
03/10/07 22:05
Leigusalinn okkar kom í dag og lagaði hurðarhún og
var að spjalla á milljón við mig og Kolku á meðan..
Við ræddum um allt milli himins og jarðar og svo
barst umræðan að fólkinu sem býr á neðri hæðinni og
leigusalinn segir mér að þau séu með
hugleiðsluherbergi þar sem við erum með stofuna okkar
og ég sagði að mér hefði nú dottið það í hug þar sem
ég hefði heyrt í þeim kyrja.. og hún alveg: "ha, eru
þau að kyrja?" já já segi ég og þá segir hún mér að
þau hefðu fengið einhvern til þess að blessa húsið og
reka burt illa anda.. Þá brosti Emman nú út í annað
og sagði að það væri nú gott að vita af því að hér sé
allt gott og blessað!
-Emma
-Emma
|