svooo upptekin alltaf hreint!
19/02/08 11:43
hvaaa.. bara langt síðan ég bloggaði! hvurslags
eiginlega leti er þetta!?
Mér finnst ég vera svo upptekin þessa dagana að það hálfa væri nóg.. það er ekki þar með sagt að það sé mikið að gera, heldur er ég vön að hafa ekkert og þurfa ekkert að gera.. Mér finnst ég sem sagt vera fullt upptekin þegar ég þarf að fara 2x í viku í sjúkraþjálfun og nálastungur á 2ja vikna fresti.. Held ég þurfi að fara að gera eitthvað reglulega - annars veit ég ekki hvernig þetta fer þegar ég byrja aftur í skóla, hvað þá vinnu!
Svefnstöðunum (ss, hvernig ég ligg, ekki hvar) fer ört fækkandi.. var með tvær, á hægri hliðinni og svo á vinstri en undanfarnar nætur hef ég ekki getað legið á vinstri hliðinni vegna verkja efst í lærinu/grindinni... en sjúkraþjálfarinn reyndi að taka á því í morgun og skellti mér í leyser!!
Salka er byrjuð aftur í skólanum eftir vetrarfríið og það er ekkert verið að byrja auðveldlega, hún er nefnilega byrjuð í skólasundi núna og verður í því 4 sinnum í viku eftir skóla í 4 vikur! úff pjúff.. blessað barnið! það á ekki að láta hana hlaupa í spik, hún er 3 klst á viku í fimleikum, 1 klst á viku í klifri, 2 klst á viku í leikfimi og núna 4 klst á viku í sundi.. þetta gera 10 klst á viku í hreyfingu, geri aðrir betur! Ætli hún verði ekki svo gjörsamlega búin á því um helgina að hún eigi bara eftir að sofa til hádegis!
Kolkan er mætt aftur í leikskólann, er að klára pensilínskammtinn og er bara nokkuð hress.. Ennþá kvefuð en hver er það ekki?!
Henni finnst ennþá soldið erfitt
að fara í leikskólann á morgnana en um leið og
foreldrarnir eru farnið úr augsýn hættir hún að
kvarta og leikur kát við stelpurnar allan
daginn! Er svo voða glöð þegar við sækjum hana!
jæja.. ætla að skakklappast inn á bað og reyna að gera mig sæta því Bryndís er að koma og sækja mig og ætlar að viðra mig í hádeginu!
knús og kossar á liðið!
Emman ó svo upptekna!

|