Jólakortin búin!

Það voru að berast þær stórkostlegu fregnir að við skötuhjúin erum búin að skrifa öll jólakortin! Jei! Þá getur maður loksins farið að hugsa um eðlilega hluti eins og til dæmis beikon. Þeim mun merkilegri frétt er að ég fann Akkalú sparka í maganum á Emmu! Það var alveg ótrúlega furðulegt en alveg alveg ótrúlega magnað á sama tíma! Undarlegt að það sé lítil manneskja að stækka innan í Emmu! Skyndifrétt: Emma mundi eftir fleirum sem hún þarf að senda jólakort og ég gleymdi víst einu líka. Jólakortin eru í þokkabót búin svo við þurfum að fara að kaupa fleiri. Beikonhugsanir verða því miður að bíða betri tíma.

Eitt fyndið sem ég man eftir þessa stundina: Ég var að keyra á eftir bíl með svona kassa aftan á sér sem rauk þvílík ósköp úr. Ég velti því fyrir mér hvort hann væri að flytja úran eða eitthvað slíkt. Síðan stoppuðum við á ljósum og bílstjórinn fyrir framan hoppar út, hleypur aftur fyrir bílinn og opnar hann oooooooooooooog... snýr við hamborgurunum sem hann var að elda í skottinu! Örlítið furðulegt!

Kveðjur,
Henning
|