nýtt blogg, ha.. trúið þið þessu???

hæhæ og hó
Finnst ykkur eitthvað langt síðan síðasta blogg var, hvað er þetta??
Happy alla vega hér kemur smá!

Hmmm.. Síðan við komum er búið að vera mjög fínt veður, núna er til dæmis 26 stiga hiti og glampandi sól (og þið látið mig vera hér inni að BLOGGA!!) ... alla vega.... Þá eru allir byrjaðir í skólanum (nema ég auðvitaðWinking og gengur það bara mjög vel.. Salka var nú svolítið feimin fystu dagana í leikskólanum en það var nú ekkert til þess að tala um, það var bara svona rétt á meðan foreldrarnir kysstu hana bless og svo var það búið!

Henning gengur mjög vel í skólanum og er í þessum töluðu/skrifuðu orðum í prófi í Algebru (svona próf til þess að athuga hvort hann kunni efnið það vel að hann geti sleppt kúrsinum - heitið alveg stolið úr mér akkúrat núna!) Við vonum auðvitað að honum gangi sérstakega vel í þessu prófi!!

Ég er sem sagt ekki í skóla þennan veturinn - og er því þeim mun duglegri að þrífa og baka og þess háttar eins og heimavinnandi húsmóður sæmir.. hehe.. neeeeiiii... ekki svo mikið! hehe... En ég get sagt ykkur það að við keyptum ÍSLENSKT lambalæri í Whole Foods hér um daginn og elduðum það í gær.. Mjög gott.. bara eins og að vera komin heim til mömmu!!! Þannig að nú hugsa ég að ég geri mér litla ferð aftur í Whole Foods og kaupi í frystinn, það var nefnilega til ýmislegt íslensk lambakjöt, kótilettur og shoulder eitthvað og hryggur (hálfur) og úrbeinað læri og svo venjulegt læri.. bara margt og mikið! ... en ég lofa að það koma myndir bráðum.. þið verðið auðvitað að fá að sjá Sölku tannlausu og kaffibrúnu, og svo nýju íbúðina a la Ikea.. hehe..

segjum þetta gott í bili...
meira næst
Kveðja Emma
|