Salka að dansa ballet!

Hér á hægri hönd má smella á "Myndbönd" og þar er hægt að sjá Sölku dansa ballet af mikilli snilld. Mæli eindregið með því að þið kíkið á dömuna. Héðan er annars allt gott að frétta: Salka er alltaf að verða betri og betri að hjóla, bumbubúinn okkar stækkar og stækkar og það er loksins byrjað að snjóa. Það var meira að segja gefin út viðvörun vegna mikilla snjóþyngsla en við vitum nú öll hversu móðursjúkir Bandaríkjamenn eru! Annað hef ég bara ekki að segja nema það að ég rakst á snilldar sýnishorn úr myndinni Nacho Libre, sem ég mæli með að allir kíki á, þó sérstaklega þeir sem hafa gaman af Jack Black.
|