smá blogg..

sælinú!
það er aldeilis langt síðan ég bloggaði.. ég bloggaði að vísu á afmælinu hennar Kolku (6.maíWinking en forritið vildi alls ekki leyfa mér að pöbblissa því.. kannski af því að ég setti nokkrar myndir með.. annars hef ég ekki hugmynd - ég hef aldrei verið þetta tölvunörd sem ég þykist stundum vera..

Síðan barnið lét sjá sig hefur Kolka meira og minna verið veik, fengið 4 (eða 5) sinnum pensilín vegna kvefs og eyrnabólgna, það er meira að segja búið að taka úr henni nefkirtlana og stinga á eyrun..

Barnið fékk nafn um hvítasunnuhelgina.. Hún heitir Hekla eins og svo margir höfðu giskað á Laugh Við erum voða ánægð með nafnið og hún virðist vera það líka..

Hekla hefur verið með magakrampa síðan hún var 2ja vikna en þeir virðast vera aðeins að lagast.. Hún sefur eins og engill á nóttunni, í 7-8 tíma í senn..

Salka er alsæl með systur sínar og knúsar þær og kyssir margoft á dag.. Núna er hún eiginlega komin í sumarfrí - bara skólaslitin eftir - á morgun! og þá byrjar fjörið Laugh Salka fer á klifurnámskeið í eina viku í sumar og svo í sumarbúðir í eina viku og svo langar hana voða mikið að skella sér í skólagarðana.. Hún er nefnilega þvílík áhugamanneskja um mat og finnst fátt skemmtilegra en að elda, baka og bera fram mat (matnum stillt upp á disknum eins og á fínustu og flottustu veitingahúsum heims)..

Við skelltum okkur til Providence í tvær vikur í maí.. Ætluðum að hafa það svakalega notalegt og njóta þess að vera í fríi og pakka niður í rólegheitunum þar sem við vorum að fá 2 meðleigjendur.. En neiiii.. það gekk víst ekki alveg þannig.. Það var allt of mikil vinna að pakka öllu dótinu, og fara í gegnum allt og flokka í þrennt:
#1 : það sem á að selja á Yard Sale vorið 2009 (þegar Henning útskrifast)
#2: Það sem á að fara til Kaliforníu (vorönn 2009)
#3: Það sem á að senda í gám til Íslands..
og svo voru auðvitað mörg hundruð hlutir sem var troðið ofan í töskur því það virtist ómissandi á íslandi ákkrúat NÚNA!

við ætlum að skella okkur í sumarbústað í Kjarnaskógi á föstudaginn og vera þar í viku og núna skal þetta verða notalegt sumarfrí þar sem börnin leika lausum hala í skóginum allan daginn og svo verður grillað og hangið í heitapottinum, ohhh yndislegt.. Búin að panta góða veðrið!

annars bið ég ykkur bara vel að lifa og afsaka bloggleysið!
DSC02383
|