Til hamingju Ísland að Salka fæddist hér!

hæhæ allir saman!

hvað segið þið þá? við segjum allt þrusufínt..
Salka á afmæli í dag, orðin 6 ára skvísan!! alveg ótrúlegt, finnst ykkur ekki?? mér finnst svo ótrúlegt að það séu liðin 6 ár síðan ég fékk Sölku í fangið, gargandi og gólandi!! Laugh núna er hún bara að fara að byrja í skóla, getur fengið sér sjálf að borða, ristað sér brauð og smurt það og fengið sér kakó að drekka með og meira að segja gengið frá eftir sig, svo getur hún reimað skóna sína sjálf, nuddað mömmu sína og baðað sig sjálf!! Hvað varð eiginlega um litlu stelpuna mína?

Við héldum upp á afmælið hennar Sölku á sunnudaginn og það komu 6 stelpur úr leikskólanum hingað heim og við fengum vísindamann til þess að sýna stelpunum spennandi vísindi, eins og að búa til regnboga og flugelda og stelpunum þótti þetta rosalega gaman!!

ég fór á stærðfræðifyrirlestur áðan, já trúið þið þessu!!?? Henning var að halda fyrirlesturinn og mig langaði að sjá hann.. En honum gekk alveg rosalega vel - það var bara aðeins of lítill tími! en heilinn minn var alveg að fara yfirum við það að reyna að fylgja því sem Henning sagði..

Við fengum síðasta svarið í síðustu viku og vorum nú eiginlega bara móðguð, þeir sögðu bara í bréfinu að Salka ætti ekki samleið með þeim og núna þykir okkur foreldrunum þessi skóli bara ekkert flottur!

Núna styttist í að við Salka leggjum í hann til Íslands og ég er að reyna að pakka, gengur ekki eins vel og ég hélt að mér myndi ganga.. ég hef bara ekki hugmynd um hvað ég á að taka með mér? á ég að taka ullarkápuna? gönguskóna? vettlinga, húfu og trefil? hlaupaskóna? hmmm...

jæja.. hafið það sem allra allra best og við sjáumst eftir nokkra daga!
ykkar Emma og Akkalý
|