Tapaði "coolinu"...

... eða eins og það er á kórréttri íslensku: "Týndi svölunni." Ég var sem sagt að kenna Math 10 og taldi mig vera búinn að leggja á minnið nöfn allra í tímanum. Eins og venjulega er könnun í lok hvers tíma úr efni vikunnar og því sagði ég að þau myndu öll fá 10 á könnuninni ef ég gæti ekki þulið upp nöfnin á þeim öllum. Síðan ruglaðist ég auðvitað á fjórða nemandanum, kallaði hana Christine í stað Kaitlyn, og þar fór könnunin! Ég þarf því einhvern veginn að útskýra fyrir þeim sem er yfir mér í goggunarröðinni í kennslunni af hverju allir fengu fullt hús stiga á könnuninni! Það ætti hinsvegar að vera auðvelt þar sem ég gaf honum brennivínsfleyg um jólin...
|