Helgin..
03/02/08 18:08
hæ hó.. (og vá hvað ég er hryllilega dugleg að
blogga!
ég var s.s. svaka húsmóðurleg á föstudagskvöldið og skellti í eina köku.. Enda átti ég von á gestum morguninn eftir og gat nú ekki bara boðið uppá aðkeypt efni
Álftanesstelpurnar komu ss á laugardagsmorguninn með börnin sín (eiginlega bara smá hluta af börnunum) og það var rosalega gaman að hittast og leyfa börnunum að hittast þó Kolka væri ferlega kvefuð.. ég reyndi að ná mynd af börnunum en það gekk nú ekki sérlega vel..
Gekk þokkalega á meðan börnin voru bara 4
en ekki svo vel eftir það
hérna fyrir ofan eru Alex og Kara
(Ólafarbörn), Kolka og Sara Rún
(Dagbjartarstelpa) - allir með kleinur og þeir
allra gráðugustu með eplabita líka!
Hérna eru svo fullt af börnum sem fæddust árið 2006. Kolka, Salome, Eva María, Kara Margrét, Sara Rún og Björgólfur Bersi.
Kolka er ennþá ferlega kvefuð og sefur frekar illa á nóttunni, vaknar á 2ja tíma fresti en nóttin í nótt var nú samt betri en gærnóttin sem var eiginlega bara hryllingur! Það er hætt að leka úr nefinu á Kolku en hún er alveg svakalega stífluð og á mjög bágt með að borða og sofa með snuðið sitt sem hefur nú alltaf verið hennar aðal svefnmeðal. Við verðum ss heima á morgun líka en vonumst nú til að hún komist í leikskólann á þriðjudaginn..
Svo er minn elskulegi eiginmaður LOKSINS að koma heim á miðvikudagsmorguninn, íhaaaa! Hans hefur sko verið saknað sárt þessar 3 vikur sem hann er búinn að vera í burtu og ég er farin að hallast að því að ég sé of mikið ein því mín aðalskemmtun er Útsvar (þáttur á Rúv) sem ég hlæ mig máttlausa yfir og hef heyrt frá öðrum að þeir séu nú ekki svo fyndnir!
Ég er nú hálf smeyk við að eiginmaðurinn eigi eftir að snúa við og forða sér þegar hann mætir mér í forstofunni á miðvikudagsmorguninn! Enda hver yrði nú ekki hálf hræddur að mæta svona hval eins og mér, sem er með svo mikinn bjúg að hann getur varla hreyft fingurna á morgnana!
hvalurinn kominn 34 vikur!
-Emma bolla

|