smá nýtt..

hæ hó..
hvaaa bara komin vika síðan ég bloggaði síðast, ódugnaðurinn í manni! Laugh

það er allt við það sama hér á heimilinu, smá veikindi ennþá; Henzinn slæmur í maganum, greyið og Kolka litla með hor í nös ennþá.. Hún var samt alveg eiturhress í gær en í morgun hefur hún farið öfugu megin fram úr greyið.. var frekar úrill og lítil í sér þangað til hún fékk að leggja sig í hádeginu!

Salka er hress og kát og er gjörsamlega að brillera í stafsetningarprófunum sem eru á hverjum föstudegi! víííí.. Hún stendur sig betur en ein vinkona hennar sem er læs og hefur búið í USA síðan hún var 1 og hálfs árs Laugh (bara skemmtilegt fyrir okkur)..
Salka er líka í Sirkus prógramminu sínu og kann að snúa diskum og hún kann á kínverskt jójó.. Hún er líka byrjuð í fótbolta og var í marki á síðustu æfingu og stóð sig svo vel að engum tókst að skora (að eigin sögn)..

og svo eru einar fréttir enn: hún Hulda huldavinkona okkar ætlar að kíkja til okkar 13.október.. veiiiiiiiii.. við erum orðin alveg svakalega spennt að fá hana í heimsókn!

skelli inn smá mynda seríu af Kolku sem ég tók á föstudaginn - hún vaknaði í svoo svakalega góðu skapi!

IMG_4181
IMG_4193
IMG_4194
IMG_4203
nei sko, Mjási minn.. (eða Mjái eins og hún kallar hann)

IMG_4205
svo gott að knúsa hann..

IMG_4206
og að kyssa hann..

IMG_4207
aaaaa við hann..

IMG_4215
kyssa meira.

IMG_4216
svo góðir vinir..

IMG_4217
IMG_4218

og svo verð ég nú að skella inn myndum af Kolkunni með nýja hárgreiðslu Laugh

IMG_4174
IMG_4175
IMG_4176

sjáiði lubbann??

hafið það gott, kæru vinir!
knús Emma
|

rafmagn, skafmagn..

Núna er hálfrafmagnslaust hjá okkur á Transit og með því að segja hálfrafmagnslaust meina ég að sumar innstungur virka ekki.. og það eru auðvitað ekki þær innstungur sem maður notar aldrei, ó nei neii.. Sjónvarpið virkar ekki, síminn virkar ekki, netið virkar ekki, loftkælingarnar virka ekki, þurrkarinn er bilaður, vifturnar inni í okkar herbergi og herbergi stelpnanna virka ekki, lampar hér og þar virka ekki OG uppþvottavélin virkar ekki!!

Leigusalinn okkar reyndi að hamast í rafmagninu og Henning og Úlfar prufuðu en ekkert lagast.. Núna eru gæjar frá rafmagnsfyrirtækinu að mæta á svæðið og að reyna að laga þetta.. ohh ég vona að það takist.. ég kann bara ekki við það að vera svona allslaus! Sem betur fer náum við þokkalegu interneti frá Villu á neðrihæðinni þannig að við getum alla vega eytt tíma í tölvunni..

-Emma.
|

fjölskyldustund í garðinum

IMG_2262_2

fjölskyldumynd sem var tekin í morgun í Brown garðinum..

hafið það rosalega gott allir..
kv. Emma
|

sniðugt..

Can you cry under water?

How important does a person have to be before they are considered assassinated instead of just murdered?

Why do you have to "put your two cents in".. but it's only a "penny for your thoughts"? Where's that extra penny going to?

Once you're in heaven, do you get stuck wearing the clothes you were buried in for eternity?

Why does a round pizza come in a square box?

What disease did cured ham actually have?


How is it that we put man on the moon before we figured out it would be a good idea to put wheels on luggage?

Why is it that people say they "slept like a baby" when babies wake up like every two hours?

Why are you IN a movie, but you're ON TV?

Why do people pay to go up tall buildings and then put money in binoculars to look at things on the ground?

Why do doctors leave the room while you change? They're going to see you naked anyway.

Why do toasters always have a setting that burns the toast to a horrible crisp, which no decent human being would eat?

Why do you park on a driveway and drive on a parkway?

Can a hearse carrying a corpse drive in the carpool lane ?

If the professor on Gilligan's Island can make a radio out of a coconut, why can't he fix a hole in a boat?

Why does Goofy stand erect while Pluto remains on all fours? They're both dogs!

If Wile E. Coyote had enough money to buy all that ACME stuff, why didn't he just buy dinner?

If corn oil is made from corn, and vegetable oil is made from vegetables, what is baby oil made from?

If electricity comes from electrons, does morality come from morons?

Do the Alphabet song and Twinkle, Twinkle Little Star have the same tune?

Why did you just try singing the two songs above?
|

meiri lagfæringar

Það var að koma út ný útgáfa af forritinu sem við notum til að keyra þessa vefsíðu þannig að við skulum vona að nú sé allt komið í lag. Knús, Henning
|

lagfæringar á hemsunni..

ég er búin að vera að reyna að laga hemsuna en það gengur ekkert sérstaklega vel þannig að ég vona að þetta detti allt í rétt far ef ég blogga núna.. Laugh

annars er það að frétta af heimilinu að ég er enn að mygla, orðin sjúskuð, klístruð og sleip úr viðbjóði.. (of miklar upplýsingar?) en heilsan er aðeins að skána, Kolka er orðin það hress að hún er farin að hlaupa um og klifra um allt og Henning er aðeins að skána, er staðinn uppúr rúminu en hnerrar, snýtir og hóstar til skiptis..
Kannski á morgun kemst ég út!
Emma
|

Súrefnisskortur..

ég þjáist af súrefnisskorti.. Er búin að vera inni í 2 og hálfan dag og líður eins og það sé farinn að vaxa mosi á mér, bjakkk! Mig langar í góða heilsu til að skipta jafnt á milli fjölskyldumeðlima og fara út í ferska loftið!
- kannski á morgun, hver veit?
Emma og hinir misveiku og mishressu.
|

lítill lasarus og sirkusdýr á heimilinu..

Kolka litla vaknaði lasin í gærkvöldi og þá var sko allt ómögulegt.. hún vildi bara fara fram og svo var hún svo kvefuð að hún gat eiginlega ekki verið með snuðið með góðu móti.. Endaði með því að hún var tekin fram og fékk að horfa á DVD með mömmu sinni langt fram eftir nóttu..
í dag er hún svo greinilega búin að vera lasin, engin hlaup og ekkert klifur upp um allt og vill bara lesa bækur með afa sínum.

Salka er svooo heilbrigð ung stúlka (eitthvað annað en mamma hennar), hún á alltaf að taka með sér létt snarl í skólann til þess að narta í í frímínútum á morgnana og í dag vildi hún taka kál með sér.. Mér fannst tómt kál nú full furðulegt snarl þannig að við sættumst á sallat með gúrku, papriku og káli Laugh
Salka byrjaði í eftiskólaprógrammi í dag, Sirkusnum.. Hún ætlar að læra ýmis Sirkusbrögð í vetur, t.d. að snúa diskum með priki, hjóla á einhjóli, ganga á stultum og margt fleira.. Henni líst rosa vel á þetta..

langaði bara að kasta á ykkur kveðju og endilega kommentið!!
kv. Emma
|

*NÝTT, NÝTT, NÝTT*

ja hérna hér.. þá eru bara fleiri fleiri vikur síðan ég bloggaði.. ég ætlaði auðvitað ekkert að láta líða svona langan tíma en svona gerist bara stundum..

Við komum aftur til Ameríkunnar fyrir 8 dögum síðan í rosa hita og raka suma daga en núna undanfarna 3 daga hefur verið skýjað, rigning á köflum og einstaka þruma.. en dagurinn í dag á víst að vera sá síðasti samkvæmt spánni..

Við erum búin að vera að koma okkur fyrir aftur í íbúðinni, pakka upp úr töskum, byrja í skólum og komast á amerískan tíma síðan við komum og hefur bara gengið nokkuð vel.. Kolka er ekki alveg sátt, sennilega hitinn (vonum þaðWinking. Hún hefur ekki sofið eins vel á nóttunni eins og hún hefur alltaf gert og svo er komin einhver gríðarleg frekja í hana greyið (vona svo sannarlega að það sé tímabundiðWinking og hún bara truflast algjörlega ef henni er bannað eitthvað.. Ákkúrat þessa stundina er hún samt eins og hugur manns og situr og litar í litabók Laugh

Salka er alsæl með að vera komin aftur, hafði beðið svolítið eftir því að hitta vinkonurnar aftur og byrja í 2.bekk (já þið lásuð rétt!). Nú er hún byrjuð að læra á fullu og fær meira að segja orðalista á mánudögum heim og á að kunna að stafa þá á föstudögum því þá eru þær prófaðar í orðum vikunnar.. Salka er meira að segja búin að fara í eitt afmæli síðan við komum og skemmti sér konunglega.. afmælið var haldið í risastórum leikjasal og Salka fór á hjólaskauta (gamaldags hjólaskauta) og skemmti sér konunglega og var enga stund að ná tökum á því..

Við Henning höfum ákveðið að fjölga okkur enn meira og taka yfir bæði Ísland og Ameríku Laugh neiii kannski ekki alveg en við ætlum samt að stækka við okkur barnalega séð og eigum von á nýju kríli um miðjan mars.

skelli inn nokkrum myndum sem hafa verið teknar síðan við komum..

IMG_4033
Fyrsti skóladagurinn í 2.bekk í Lincoln School

IMG_4028
voða spennt..

IMG_4036
Salka og Mrs. Hallan (kennarinn hennar)

IMG_4041
Salka við nýja skrifborðið sitt í 2.bekk

IMG_4043
Kolka að kíkja á leiktækin í Lincoln School

IMG_4064
rosa fjör í rennibrautinni, Kolka fór örugglega 20 ferðir Laugh

IMG_4073
Sölku finnst líka gaman í rennibrautinni

IMG_4121
og að róla
IMG_4137

IMG_4127
Salka vildi alls ekki kíkja í myndavélina

IMG_4138
á flugi!

hafið það gott og ég lofa að vera duglegri að blogga..
knús til allra..
Emman.


|