Sep 2006
Besti brandari í heimi
27/09/06 16:42
Emma sendi mér fyndnasta brandarar sem ég hef heyrt:
Siggi var nýkominn frá Spáni og vinir hans voru að dást að því hvað hann væri sólbrúnn. Þá sagði Siggi: "Já, ég náði mér í smá sin/cos!"
Ha! Hahahah!
Svo eru auðvitað sígildir brandarar eins og: "Konan mín fór ekki í allar búðirnar í bænum, hún fór í sumarbúðir!" Ha! Hahaha! Sumar-búðir! Hahahah!
Endilega skrifið fleiri frábæra brandara í athugasemdirnar.
- h

|
Górilluhlaupið í London
27/09/06 03:42
Æ, æ ertu eflaust að hugsa... "Ég missti aftur af
Górilluhlaupinu í London." Þá er
bara að reyna aftur á næsta ári. Ég er að hugsa
um að taka þátt næst, þarf eflaust ekki búning,
þar sem ég er svo loðinn. Jæja, ætla að fara að
undirbúa kennsluna á morgunn. Allir að hugsa
fallegar kennslufræðilegar hugsanir til mín.
Friður út,
Henning
Friður út,
Henning
Versta mynd í geymi
26/09/06 12:48
Góðan daginn frú mín góð,
við fórum í Sam's Club (þar sem maður getur keypt lifandi humra og trampólín (eða hoppdýnu eins og það kallast á íslensku)) í gær og þar sá ég ótrúlega gott tilboð: Hellboy og Ultraviolet saman á DVD á aðeins $12! Við Emma og Hjalti horfðum einu sinni saman á Hellboy (í Pay-Per-View á Amy Street) og hún var alveg ótrúlega léleg. Ég ákvað samt að kaupa þetta par, þar sem mig langaði rosalega mikið að sjá Ultraviolet. Ég verð nú bara að segja að af tvennu illu þá var Ultraviolet bara svona ógeðslega ömurlega léleg að ég veit bara ekki hvað ég á að segja um hana. Hún var svo léleg að Emma nennti ekki að horfa lengur og fór að þrífa klósettin! Og fyrst við erum nú farin að tala um klósett og Hellboy þá má geta þess að eina matvörubúin í Grímsey er að fara að loka.
Knús,

nýjar myndir ofl
14/09/06 17:38
jæja.. þá erum við búin að setja inn myndir
(sumarmyndir 1 og 2).. soldið gamlar myndir - alla
vega sumar en það er nú samt gaman að skoða þær..
ég er byrjuð á kvöldnámskeiðum í RISD (stafræn ljósmyndun og grafísk hönnun) og líkar bara rosa vel í ljósmynduninni en ekki eins vel í grafískunni.. þar er ég sú eina sem hef aldrei notað forritin, sem við eigum að vera að nota, áður.. þannig að ég veit ekki alveg hvernig það fer.. en ég er alla vega rosalega spennt yfir ljósmynduninni enda er kennarinn svakalega áhugasamur og skemmtilegur..
við fórum í grillpartý til Michelle um síðustu helgi og skemmtum okkur rosa vel..
Kolka er komin með eina tönn og bítur mömmu sína óspart, hún veltir sér margoft á dag af bakinu á magann og er farin að una sér mun betur á maganum en hún gerði..
Salka er rosalega ánægð í skólanum og fer þangað með bros á vör á morgnana og er líka kát þegar hún er sótt.. Henni finnst rosalega gaman þegar við löbbum úr skólanum, sem ég skil nú ekki alveg þar sem það tekur um 40 mín að labba heim! en þetta er alla vega góð hreyfing fyrir unga sem aldna (sem sagt fyrir mömmuna).. Salka ætlar svo að byrja í ballett í næstu viku (eftirskólaprógramm) og svo erum við að velta því fyrir okkur hvort við eigum að leyfa henni að fara á Leirnámskeið líka, það kostar bara svo fjári mikið! við ættum kannski bara að fara að vera með kökubasar hérna úti á götu til að fjármagna þetta..
Allt gengur sinn vanagang hjá Henning í skólanum, hann kennir 3svar í viku og er í tímum 2svar í viku - það er að vísu ekki ennþá komið í ljós hvenær þeir eiga að vera - eitthvað vandamál með skólastofur.. og svo er hann að lesa einhverja bók fyrir leiðbeinandann sinn (getur hann ekki lesið sjálfur??)
Eitt kvöldið þegar ég var hérna fyrir utan sá ég þá ALstærstu engisprettu sem ég hef á ævinni séð (ljósmyndir, dýralífsþættir og kvikmyndir teknar með
!! hún var eins og fugl! ég fæ
ennþá hroll þegar ég hugsa um augnaráðið frá
henni! *brrrrrrr*
jæja.. hafið það gott..
-Emma

providensa hér erum við!
03/09/06 14:55
hæhæ allir saman..
þá erum við komin til Providence aftur og höfum bara fengið hið furðulegasta veður, fullt af rigningu og skýjum og bara einn dag með sól - alveg ótrúlegt.. svona á þetta sko ekki að vera í lok ágúst á þessu svæði!
Fríða og Úlfar fóru frá okkur í gær, eftir átta daga heimsókn og er þeirra sárt saknað!!
Við litla fjölskyldan fórum í pikknikk í skólann hennar Sölku á góðviðrisdeginum um daginn og það var voða notó.. Salka hlakkar mikið til að byrja í skólanum á þriðjudaginn og er held ég bara komin með allt tilbúið nema leðurskó (við skólabúninginn). Salka kynntist einni stelpu í pikknikkinu sem er líka að byrja í skólanum þannig að Salka verður ekki alveg ein á báti þegar hún byrjar..
Kolka er farin að velta sér af bakinu á magann og ætlar að verða alveg eins og Salka í þeim efnum. Byrjaði á því í gærmorgun og hefur ekki hætt síðan! hún stækkar og stækkar og er núna farin að fá þurrmjólk í pela með mömmumjólkinni og líkar bara vel. Sefur í 8 - 12 tíma yfir nóttina og vaknar svo bara með bros á vör á hverjum morgni - ekki amalegt það!
Henning byrjar í skólanum á þriðjudaginn og verður að kenna á mán, mið og föstudögum frá 10 - 10.50 og svo verður hann í tímum á þrið og fimmtudögum frá 1 - 2.20..
ég byrja svo sjálf á kvöldnámskeiðunum í þarnæstu viku (11.sept)..
við erum loksins komin með nýtt sjónvarp, ekki lengur bleika prinsessusjónvarpið hennar sölku.. það er bara eins og vera í bíó að horfa á þetta.. þarf ekki lengur gleraugu þegar ég horfi á sjónvarpið!
hafið það sem allra best..