Sjónhverfing

hæhæ allir saman!!

Tjekkið á þessu: Sjónhverfing!

Þið verðið að fara eftir leiðbeiningunum og þá birtast ykkur sýnir!

Góða skemmtun,
Emma
|

Beikon

Góðan daginn, góðann daginn.

Okkur langaði að deila með ykkur þessari frábæru vefsíðu:

The Oracle of Bacon (opnast í nýjum glugga).

Þú skrifar nafn á einhverjum leikara og völvan finnur "Bacon" tölu leikarans. Dæmi: Settu inn Robert De Niro og völvan gefur Bacon töluna 1, því Robert De Niro lék í Sleepers með Kevin Bacon. Ef einhver hefur leikið í mynd með einhverjum sem lék í mynd með Kevin Bacon þá fær sá hinn sami Bacon töluna 2 o.s.frv. Kevin Bacon sjálfur hefur Bacon töluna 0, þið skiljið hvernig þetta virkar.

En allavegana, njótið vel!
Henning
|

nýtt blogg, ha.. trúið þið þessu???

hæhæ og hó
Finnst ykkur eitthvað langt síðan síðasta blogg var, hvað er þetta??
Happy alla vega hér kemur smá!

Hmmm.. Síðan við komum er búið að vera mjög fínt veður, núna er til dæmis 26 stiga hiti og glampandi sól (og þið látið mig vera hér inni að BLOGGA!!) ... alla vega.... Þá eru allir byrjaðir í skólanum (nema ég auðvitaðWinking og gengur það bara mjög vel.. Salka var nú svolítið feimin fystu dagana í leikskólanum en það var nú ekkert til þess að tala um, það var bara svona rétt á meðan foreldrarnir kysstu hana bless og svo var það búið!

Henning gengur mjög vel í skólanum og er í þessum töluðu/skrifuðu orðum í prófi í Algebru (svona próf til þess að athuga hvort hann kunni efnið það vel að hann geti sleppt kúrsinum - heitið alveg stolið úr mér akkúrat núna!) Við vonum auðvitað að honum gangi sérstakega vel í þessu prófi!!

Ég er sem sagt ekki í skóla þennan veturinn - og er því þeim mun duglegri að þrífa og baka og þess háttar eins og heimavinnandi húsmóður sæmir.. hehe.. neeeeiiii... ekki svo mikið! hehe... En ég get sagt ykkur það að við keyptum ÍSLENSKT lambalæri í Whole Foods hér um daginn og elduðum það í gær.. Mjög gott.. bara eins og að vera komin heim til mömmu!!! Þannig að nú hugsa ég að ég geri mér litla ferð aftur í Whole Foods og kaupi í frystinn, það var nefnilega til ýmislegt íslensk lambakjöt, kótilettur og shoulder eitthvað og hryggur (hálfur) og úrbeinað læri og svo venjulegt læri.. bara margt og mikið! ... en ég lofa að það koma myndir bráðum.. þið verðið auðvitað að fá að sjá Sölku tannlausu og kaffibrúnu, og svo nýju íbúðina a la Ikea.. hehe..

segjum þetta gott í bili...
meira næst
Kveðja Emma
|