Oct 2007
veiiiii, veiiiii og ekki veiiiii..
30/10/07 22:12
ég kláraði loksins púslið í gær, eftir 10 daga erfiði
lítur voða einfalt út á myndinni á kassanum og þegar maður sér það púslað en ó mæ ó mæ þegar það er í 1000 molum ofan í kassanum þá virðast allir bitarnir eins á litinn!!
í öðrum fréttum:
Við Henz fórum í mæðraskoðun í morgun, allt í góðu með krílið en ég farin að þyngjast - þá byrjar fjörið! Krílið sparkar og sparkar og bæði mamma og Henning hafa fundið spörk og ég sem er bara komin 20v4d..
Mamma og pabbi voru að fara frá okkur eftir yndislega 6 daga.. ohh hvað þeirra verður saknað..
En það þýðir bara eitt! Gestaherbergið er laust! Hver vill koma í heimsókn??
hafið það gott,
Emma

|
ef það er ekki eitt þá er það annað..
24/10/07 14:35
... og ef það er ekki annað þá er það ALLT!!!
já ég veit ekki hvernig þessi meðganga á eftir að enda (jú sennilega með fæðingu barns) en meðgangan á eftir að ganga fram af mér áður en að því kemur! ég fæ alla mögulegar "aukaverkanir" á þessari meðgöngu og hef nú alveg ákveðið að halda því fram að meðganga verði alltaf verri en sú sem var á undan..
Ég fann ekkert fyrir því að ég væri ólétt þegar ég gekk með Sölku, jú, var frekar þreytt fyrstu 12 vikurnar og fékk bjúg í lokin (soldið vel af honum).
Með Kolku fékk ég þreytu fyrstu 12 vikurnar, kúkastíflu dauðans eftir 12 vikur og fram undir lokin, einstaka bakverk og var á mörkum meðgöngusykursýki.
Með þetta Viðhengi fæ ég allt sem ég hef nefnt hér að ofan, nema þreytan var svæsin fram að 18 viku, bakið er að fara með mig þessa dagana og svo er ég öll útsteypt í bólum (Jakk) og hef verið þannig frá því í byrjun.. í hvert sinn sem ég lít í spegil er komin ný bóla - og þó það væri auðvelt þá er ég ekki að ýkja! er að hugsa um að taka niður speglana í húsinu! óþolandi ástand.. og svo er geðið líka ekki sem best í þetta skiptið, hef bara aldrei áður upplifað svona svaka sveiflur á meðgöngu! og það sem verra er, er að sveiflurnar eru yfirleitt niðurávið! Sykursýkin hefur ekki verið greind en ég fer í svoleiðis próf í desember býst ég við..
- Emma

helv.. ávaxtaflugur!
20/10/07 16:27
ég er að verða gjörsamlega geðveik á ávaxtaflugunum
sem fljúga hér um alla íbúðina og pirra heimamenn og
gesti þeirra (aðallega mig samt!).. Þessar árans
flugur eru útum alla íbúð, mest í eldhúsinu en líka í
stofunni, borðstofunni, svefnherbergjunum og á
klósettunum (meira að segja inní tannburstaskápnum!)
ef það eru ekki til ávextir fyrir þessi grey þá hanga
þær á uppþvottaburstunum - mjöööög furðulegar
flugur..
-Emman sem hefur enga þolinmæði gagnvart ávaxtaflugum!

sónarinn mikli!
16/10/07 15:46
hæhæ allir..
nú er sónarinn búinn og við fengum að sjá lítið fallegt barn og allt virðist vera í lagi og eðlilegt.. Konan sem skoðaði krílið var frekar svekkt yfir því að barnið skyldi bara vilja sofa en ekkert hreyfa sig en mér finnst það nú bara góðs viti
bara fínasta rólegheitar barn
og jú við fengum að vita kynið og við erum að safna í Prinsessuflota!
það er sem sagt 3ja stelpan á
leiðinni
og ég er ekki frá því að hún verði
bara alveg eins og Kolkan, með lítið nef og
gogga munn
hafið það gott í dag!
Emma og Henning
nú er sónarinn búinn og við fengum að sjá lítið fallegt barn og allt virðist vera í lagi og eðlilegt.. Konan sem skoðaði krílið var frekar svekkt yfir því að barnið skyldi bara vilja sofa en ekkert hreyfa sig en mér finnst það nú bara góðs viti
og jú við fengum að vita kynið og við erum að safna í Prinsessuflota!
hafið það gott í dag!
Emma og Henning
Minkagátumaraþon
15/10/07 01:08
fyrsta klippingin 
11/10/07 19:12
hárið á Kolku hefur tekið sinn tíma í að vaxa en hún
fékk sem sagt sína fyrstu klippingu í gær.. þess má
geta að Salka fór 3 sinnum í klippingu áður en hún
varð eins árs
en hérna koma myndir til að sanna að barnið hafi verið klippt
sætar systur.. Kolka með nýju klippinguna.
svona vaknar maður sætur og góður á morgnana!
nýja klippingin.. orðin voða fullorðin eitthvað..
og að aftan.. allt beint og fínt
það var stelpuvídjókvöld eitt kvöldið.. Kolka var í nýju flottu beinagrindar náttfötunum sínum sem lýsa í myrkri, úúúúúú...
hafið það gott allir..

límheilinn..
08/10/07 21:47
þá er heilinn gjörsamlega að gefast upp eða ég að
gefast upp á heilanum mínum.. það virðist alltaf
eitthvað verða að vera fast á honum - hin ýmsu lög
til að vera nákvæmari..
þessa dagana er það "Stolt siglir skútan mín" eða "jáááá fínt, já sæll, já fínt, já sæll" nú eða eitt alveg obbonsins skemmtilegt lag sem Salka kom með heim úr skólanum í tilefni af Columbus Day sem er í dag! fyrsta erindið er svona:

In fourteen hundred ninety-two Columbus sailed the
ocean blue, It was a courageous thing to do But
someone was already here.
mjög skemmtilegt lag en límist svona
fullmikið!
-Emma
orkusugan
04/10/07 21:09
nú er ég búin að vera þreytt og orkulaus í tæpar 17
vikur!
þetta er nú bara ekki eðlilegt.. ég hef nú yfirleitt lent í því að vera þeytt fyrstu 3 mánuðina af meðgöngunni en mér er bara hætt að lítast á blikuna..
en já nú syttist óðfluga í sónarinn mikla (12 dagar þangað til) og nú er kominn tími á ykkur blogglesara nær og fjær að giska á hvort það leynist stelpa eða strákur í bumbunni.. hvort verður þetta Polka eða Polki?
endilega segið ykkar gisk í
kommentum!
við vonum bara að þessi litla orkusuga taki út allt orkusugið núna og verði eins og hugur manns þegar það lætur sjá sig

Neðri hæðar fólkið!
03/10/07 22:05
Leigusalinn okkar kom í dag og lagaði hurðarhún og
var að spjalla á milljón við mig og Kolku á meðan..
Við ræddum um allt milli himins og jarðar og svo
barst umræðan að fólkinu sem býr á neðri hæðinni og
leigusalinn segir mér að þau séu með
hugleiðsluherbergi þar sem við erum með stofuna okkar
og ég sagði að mér hefði nú dottið það í hug þar sem
ég hefði heyrt í þeim kyrja.. og hún alveg: "ha, eru
þau að kyrja?" já já segi ég og þá segir hún mér að
þau hefðu fengið einhvern til þess að blessa húsið og
reka burt illa anda.. Þá brosti Emman nú út í annað
og sagði að það væri nú gott að vita af því að hér sé
allt gott og blessað!
-Emma
-Emma