meira neistaflug

Rafmagnsfyrirtækið lét loksins sjá sig og kom og klippti frá greinar sem voru að rekast í rafmangsvíra. Þeir stóðu sig reyndar ekki nógu vel því stuttu seinna tókum við eftir því að það voru ennþá litlir neistar úr vírnum. Þannig að ég þurfti að hringja aftur í rafmagnsfyrirtækið (National Grid) og nöldra um að fá aftur "Tree Group" til þess að klippa niður trén hjá okkur. Í þessum skrifuðu orðum er búið að klippa fullt af greinum af trénu fyrir framan innkeyrsluna okkar. "Tree Group"-ið sér hinsvegar ekki um að fjarlægja klipptu greinarnar og því eru þær í fallegum haug, Í INNKEYRSLUNNI OKKAR. JESSS! Ó BJÚTIFÚLL AMÉRIKA! Kíkið í athugasemdirnar til þess að lesa þetta fréttaskot þar sem öllum sérhljóðunum hefur verið skippt út fyrir "ö".
|

neistaflug vegna veðurs..

ja hérna hér.. allt getur gerst í Ameríku..

Henning fór í makindum sínum að taka á móti pizzunni okkar áðan og þá kemur nágranninn hlaupandi og segir honum frá því að rafmagnslína liggi utan í stóra trénu beint fyrir utan gluggann okkar (bogagluggann) og það skjótist litlir neistar úr henni.. Það eina sem er að bjarga því að það kvikni ekki í trénu er það að það er blautt! (sem betur fer var rigning í dag!!)
Henning kemur allur æstur upp og hringir strax í Söru (húseigandann) en hún svarar ekki þannig að hann hringdi í lögguna sem gaf honum samband við slökkviliðið og þeir komu í einum grænum með ljósin á..

í þessum töluðu orðum er slökkviliðið hér fyrir utan að bíða eftir rafmagnskompaníinu sem þarf að koma að laga þetta..

jæja vonandi áttuð þið líka spennandi helgi..
- Emma óver end át..
|

Klifurkeppni

Ég sló til og tók þátt klifurkeppni í Rhode Island Rock Gym í dag. Hjalti kom með mér og var mjög góður aðstoðarmaður. Ég tók þátt í "Intermediate" flokknum þar sem maður átti að klifra 10 leiðir, gráðaðar frá V2 til V4. Ég byrjaði nokkuð vel, fór 5 af 10 leiðunum án þess að detta (sem gefur mínus stig) og klifraði svo sjöttu leiðina með því að stíga á ólöglega festu. Ég tók ekki eftir því strax og var rosa glaður að hafa farið leiðina sem var frekar há og endaði þannig að maður þurfti að klifra upp á aðra hæð. Ég kom því skælbrosandi niður stigann og þar sagði Hjalti mér að ég hefði stigið á ólöglega festu. Það var frekar fúlt þannig að ég reyndi leiðina aftur, aftur og aftur en gat hana aldrei aftur... Eftir þetta allt saman var ég orðinn alveg búinn og gat ekki klifrað hinar 4 leiðirnar sem ég átti eftir. Ég fór heim, bara nokkuð sáttur við daginn og síðan komum við Emma, Salka og Kolka aftur að horfa á úrslitin. Þá kom í ljós að ég lenti í 4. sæti! Ég er auðvitað mjög ánægður með það og hlakka til að taka þátt í næstu keppni sem verður 18. nóvember, þar sem ég ætla að klifra nakinn, málaður í íslensku fánalitunum.
|

snyrtistofan Salka

mamma2tasur

Salkan er búin að opna bissniss.. Amman var fyrsti viðskiptavinurinn og eins og þið sjáið þá er þetta æðislega flott.. Þannig að endilega látið orðið berast og verið tímanlega að panta því það fer allt að verða upppantað!!
|

veð erem enet!!

geðen degenn eller semen..

eg verð ne bere eð segje ekker fre þve eð veð fjelskjelden hefem erðeð ferer elverlegem heeleskeðe.. eg þeð er Henneng eð kenne!! henn er beenn eð vere með eetthveð ellt e megenem greeeð.. henn premper með sveke vendre lekt!! ej bere elle bjekk.. *fneff, fneff*
Eg veet ekke hvert eg men eenhvern temenn jefne meg en þengeð tel verðeð þeð bere eð reene eð skelje þette svene..

hefeð þeð gett vener mener.
- Emme eg eller hener..
|

Þvottavélarhelvítið!!

hæhæ fólks..

hvað er málið með amerískar þvottavélar??? Þvottavélin okkar á Amy skilaði öllum fötunum með fjólubláum kuskklessum sem var auðvitað mjög pirrandi og ég var svo fengin þegar við fluttum að fá nýja þvottavél.. en nei.. þessi er sko ekki betri, ef maður setur á lengsta prógrammið, ekstra skol og ég veit ekki hvað og hvað þá er hún 40 mínútur að þvo!! sem segir auðvitað bara eitt.. hún er ekki að þvo neitt sérsaklega vel.. við höfum líka alveg tekið eftir því.. og þá sérstaklega þegar salka var í leikskólanum, buxurnar hennar komu oftar en ekki með brúnum blettum á hnám eftir sandinn og þó maður setti þær beint í vélina og blettaspray og blettaduft og allt þá voru blettirnir fastir.. mjög margar buxur, sokkabuxur og sokkar hafa farið illa á þessu..

og hvað er málið með að hafa ekki hitastillingarnar venjulegar, 30, 40, 60, 90 gráður.. nei mín þvottavél er sko með cold/cold, warm/cold, warm/warm, hot/cold og hot/warm.. alveg fáránlegt.. hvernig veit maður hversu heitt hot/cold er? er einhver munur á hot/cold og warm/warm??

Bottom Line-ið er sem sagt: MIG LANGAR Í NÝJA ÞVOTTAVÉL!!!!! (tilvalin jólagjöf, hehe)
-Emma
|