Sól og sumar!

Hey hó! Okkur langaði bara að kasta á ykkur kveðju og monta okkur af veðrinu hérna. Í gær var nefnilega 21 stigs hiti og sól og sumarylur. Við skruppum í dýragarð með Huldu og Þormari. Það var ýkt gaman og við sáum fullt af furðudýrum. Við sáum snjóhlébarða frá Afganistan sem eru víst nánast útdauðir og sjást aðeins á nokkurra ára fresti villtir. Þeir hljóta að vera svona svakalega ratvísir fyrst þeir verða aldrei villtir. Hmm. Það eru komnar myndir inn frá ferðinni fyrir áhugasama. Í gær skárum við grasker í búta og borðuðum ógeðslega mikið af nammi til að undirbúa okkur undir Hrekkjavökuna. Við erum öll búin að kaupa okkur búninga: Salka verður Fríða úr Fríða og Dýrið, Emma verður vonda drottningin úr Mjallhvít, Henning verður prestur, Þormar verður Spider Man og Hulda verður óþekkur engill. Við setjum inn myndir frá þeim herlegheitum bráðlega. Annars er bara verið að taka því rólega í blíðunni.

Knús frá,
Henning
|

Íslandsför og hjartsláttur

Halló, halló, halló!

Héðan úr Ameríkunni er allt gott að frétta en orðið soldið kalt samt. En eins og sumir vita þá skelltum við okkur þó í ennþá meiri kulda fyrir skemmstu - við kíktum nefnilega í heimsókn til Íslands. Þetta var svaka skemmtileg ferð og góður forsmekkur fyrir jólin sem við erum farin að hlakka mikið til! Við erum líka orðin svaka spennt fyrir komu Akkalú og vorum einmitt hjá lækni í morgunn vegna bumbunnar. Allt var í góðu lagi og við fengum að hlusta á hjartsláttinn sem hljómaði eins og einhver væri að syppa! Akkalú verður því miður nær því að vera sumargjöf heldur jólagjöf þannig að það verður einhver bið...

Annars er viljum við benda ykkur á þessa einkar skemmtilega hugarlestursíðu: The Flash Mind Reader.

Hafiði það rosa gott!
Henning
|

Akkalú Þurrum?

Kæra fjölskylda og vinir!

Við höfum þær gleðifregnir að færa að von er á nýjum meðlim í fjölskylduna! Nei, við erum ekki að tala um gæludýr, eins og venjulega heldur alvöru manneskju! Jám, þið lásuð þetta rétt, við erum ólétt og eigum von á okkur 29. apríl. Það eru komnar sónarmyndir á netið sem þið getið kíkt á - spennó, spennó, SPENNÓ!!! Litli laumufarþeginn gengur undir nafninu Akkalú Þurrum þessa dagana en hefur enn ekki svarað nafni...

Kærar kveðjur,
Henning, Emma, Salka og Akkalú
|

New York, New York!

Góðan daginn öll sömul!

Hér vaknaði heimilsfólkið hríðskjálfandi í morgun því hitinn var kominn niður í 12 gráður. BRRRRRRR! Við þurftum að kveikja á hitanum og allt! Fyrir helgi kíktum við í dýrabúðina og skoðuðum æðislega sæta broddgelti ásamt öðrum furðudýrum. Broddgeltirnir voru algjör snilld, soldið pirraðir í fyrstu og ýfðu upp á sér broddana. Þegar þeir voru snertir (með hönskum) rúlluðu þeir sér alveg upp í bolta og hvæstu af pirringi. Eftir að maður tók þá upp (með hönskum -- reyndi án hanska -- ekki hægt!) þá róuðst þeir eftir smá tíma og gægðust út. Þeir virðast vera hin bestu gæludýr og eiga að venjast manni eftir nokkrar daga og hætta að vera svona hvumpnir. Nú vaknar spurningin um það hver í ósköpunum ætti að passa broddgeltina þegar við höldum til Íslands... Veit ekki hvort það er á nokkurn leggjandi í svo langan tíma! Málið er í skoðun en mikill áhugi er hjá heimilisfólkinu fyrir þessum skrípadýrum.

Á laugardaginn renndum við niður til New York í hellirigningu. Ferðin gekk stórslysalaust og við komumst heilu á húfi til Braga. Við hittum Úlfar, föður minn, á veitingastaðnum Nisos um kvöldið og Úlfar var rennandi blautur eftir að hafa labbað 20 blokkir frá hótelinu (leigubíll?). Þó veðrið væri upp á íslenska mátann þá var kvöldið mjög skemmtilegt. Daginn eftir fórum við í Central Park Zoo og þaðan í gómsætt hlaðborð. Síðan létum við okkur ekki vanta í þriggja hæða Disney verslun sem staðsett er í New York og þar ljómaði Salka í allri prinsessudýrðinni! Við kvöddum síðan Úlfar og héldum niður til SoHo í fataverslanir og Apple búðina, sem er ótrúlega flott -- á tveimur hæðum með glerstiga og látum! Eftir ótrúlega magnaða dvöl í New York héldum við heim á leið á sunnudagskvöldi og komum heim dauðþreytt og gátum ekki beðið eftir að skríða undir sæng!

Hafið'a gott,
Henning
|

Amma kemur á morgun!

Góða kvöldið!

Við hjónin sitjum í mestu makindum og snæðum Ben & Jerry's yfir síðasta þættinum í þáttaröð 2 af The O.C. Allir eru svaka spenntir að fá Kristínu ömmu í heimsókn á morgun. Við erum búin að skipuleggja ferð til New York á laugardaginn þar sem við munum hitta Braga og Úlfar, sem verður örugglega snilld! Annars er bara allt gott að frétta, nema að sá sem fer yfir heimadæmin frá þeim sem ég kenni, hætti og skildi haug af óyfirförnum dæmum... Ekki beisik. Salka hefur það svaka gott og fullorðinstennurnar hennar stækka og stækka! Af gæludýramálum er það nýjasta að við erum að hugsa um að fá okkur broddgölt! Án gríns! Gæludýrabúð rétt hjá okkur fær sendingu af þeim næsta föstudag og þá ætlum við að fara að skoða þá!
hedgehog
Kveðja,
Henning, Emma og Salka
|

Ölvaður kjúklingur

Héðan úr landi hinna frjálsu og stoltu er allt gott að frétta. Við fjölskyldan vorum boðin í ansi nýstárlegan kvöldverð um helgina, hjá vinafólki okkar Conni og Joe (eða Konráð og Jóhann eins og það útlegst á íslensku). Réttur kvöldins var "Drunken Chicken" eða ölvaður kjúklingur. Bjórdós er opnuð og ofaná er smellt einum kjúkling. Svo er þetta sett í fat (passað að snúa dósinni alltaf upp) og smellt á grillið. Þetta þarf að malla í soldinn tíma og bjórinn gefur kjúklingnum góðan keim þegar hann síður og gufar upp í gegnum kjúklinginn. Þetta er alveg þess virði að prófa og mjög bragðgott. Annars var þetta mjög skemmtilegt kvöld, við fórum í gönguferð og þegar við komum til baka þá hafði Emma óvart tekið með sér geitung innan á sér. Geitungurinn stakk hana í magann en Conni ráðlagði að leggja ferska lauksneið á stunguna og það alveg svínvirkaði. Stungan bólgnaði ekki neitt og Emma var eins og ný.

Í gær var okkur síðan boðið í sundafmæli hjá Ronen, sem er strákur í leikskólanum hennar Sölku. Það var svaka stuð og allir skemmtu sér vel.

Jæja, hafið það nú gott,
Henning
|