eitthvað um ekkert..

uppþvottavélin hætti að leka þegar hún heyrði að leigusalinn ætlaði að kíkja á sig! ótrúleg maskína..

ég er búin að vera að fara í gegnum föt stelpnanna í dag. Er alveg búin með Kolku kommóðu, og blessað barnið á engin föt! Er búin með hluta af Sölkufötum og hún virðist vera aðeins betur sett en systir sín.. en það má auðvitað alltaf bæta fallegum fötum í safnið Laugh

Við Kolka erum svo agalega íslenskar hér á daginn að við borðum hafragraut og lifrarpylsu í hádeginu - 2 daga í röðWinking.. Kolku finnst það alveg meiriháttar (eins og mömmu sinni) en mikið verður barnið hryllilega subbulegt eftir svona máltíð.. henni virðist finnast betra að mylja lifrarpylsuna út í grautinn og veiða kögglana svo aftur uppúr með puttunum og skella í munninn og stundum í hárið.

En eins og oft gerist þegar ég er ólétt, þá langar mig í eitthvað gott og sérstaklega þegar ég hef borðað eitthvað alveg ósætt (eins og hafragraut eða fisk) og það var einmitt það sem gerðist í dag og ég ákvað að fá mér ís og marengs (sem ég bakaði fyrir Thanksgiving) í hádegiseftirrétt Laugh svo er ég að hneikslast á því að ég þyngist mikið!! Laugh

Eigið góða helgi!
-Emma
|

bölvöð öppþvöttavölin!

Uppþvottavélin lekur! þannig að núna er eiginlega jafnmikið vesen að vaska handvirkt upp og þvo í uppþvottavélinni.. ég þarf endalaust að vera að hlaupa inní eldhús til að skipta um umbúðir á gólfinu því þessi leki fer í gegnum allt á nó tæm!
mikið væri nú gott ef hún Sarah leigusali kíkti á emailinn sinn reglulega!
-Emma
|

Óargadýrus Maximus

Jæja þá er fríið búið og venjulegir dagar framundan.. núna finnst manni voða langt í næstu helgi og sú helgi bara voða stutt, bara laugardagur og sunnudagur!

Ég var að passa Joanna í hádeginu í dag, hún er betur þekkt undir nafninu Óargadýrus Maximus þessa dagana.. Í þessi 3 skipti sem við höfum passað hana undanfarna mánuði hefur hún gjörsamlega sturlast og gargar og gólar stanslaust og dagurinn í dag var engin undantekning nema að þetta gekk betur þegar Henning kom heim, því þá gat hann sinnt Kolku og ég haldið á Joanna (sem vildi bara vera í fanginu á mér).. Kolka var nefnilega frekar svekkt yfir því að ég væri að halda á Joanna alltaf því hún fær sko ekki svoleiðis trítment hjá mér enda líkaminn ekki uppá sitt besta þessa dagana. Bakið/grindin var að gefast upp eftir ca 15-20 mínútur (og geðheilsan meðWinking..

Óargadýrus Maximus er þvílík dramadrottning.. Ég hef bara aldrei vitað annað eins hjá barni sem er ekki orðið eins árs.. Með fyrsta vælutóni kemur þvílíkt táraflóð og þvílíkur ekki! Og svo virðist barnið bara vera óstöðvandi í þessu gargeríi sínu!

Mikið er ég fegin að dagurinn er að verða búinn og ég get bráðum lagst uppí rúm, lokað augunum og notið þagnarinnar þangað til ég dett út..

-Emma
|

löööööööönnng helgi!

hér eru allir komnir í helgarfrí.. ohhh svooo yndislegt að fá svona rosalega langa helgi - örugglega enn þráðara af þeim sem eru akjsúallý að gera eitthvað á daginn en langþráð samt..

Fríða amma er að koma til okkar núna á eftir, hún fer meira að segja að lenda á rútustöðinni bara eftir nokkrar mínútur og svo á Henningurinn afmæli á morgun.. Thanksgiving er á fimmtudaginn og brjáluðustu útsölur Ameríku á föstudaginn (Black Friday) og þá opna búðirnar ýmist kl 5 eða 6 um morguninn og brjáluð tilboð og afslættir í gangi.. Ameríkaninn vaknar s.s. eeeeeldsnemma eftir kalkúnaátið og verslar frá sér allt vit.. Við hin njótum þess bara að vera í fríi og höfum það extra notó!

Hafið það gott, esskurnar..
-Emma
|

blessuð börnin!

þegar maður er heimavinnandi og án vina og áhugamála eins og ég þá eru einu skiptin sem maður er án barna þegar maður bregður sér á salernið eða í sturtu, en ef ég læsi þá er bankað á hurðina og ég spurð ýmissa spurninga um allt milli himins og jarðar - yfirleitt hvort ég sé ekki að verða búin.. þannig að friðurinn er ekki svo mikill.. og ef ég læsi ekki og bregð mér í sturtu, til dæmis, þá lendi ég í því að þegar ég slekk á sturtunni og kippi sturtuhenginu frá til þess að sækja handklæðið þá situr eitt stykki stórt barn á klósettinu (og bíður eftir því að ég verði búin) og mér svo gjörsamlega dauðbregður að ég ræð ekkert við mig og garga og góla, blóta og bölva, rek krakkann út og þarf að minna mig á að draga andann inn og anda svooo rólega út aftur..

núna sit ég hérna heima - alein - og veit ekkert hvað ég á af mér að gera.. Kannski ég ætti bara að skella mér á klóið og svo í sturtu og njóta þess að geta verið í ró og næði!

-Emman
|

Tímafikt og flutningar..

Þá er búið að fikta í tímanum og er því 5 klukkustunda munur á okkur og Íslandi.. (við erum eftir áWinking.. þannig að það er alveg stranglega bannað að hringja fyrir kl 13 nema það sé algjörlega nauðsynlegt! Laugh

Við erum búin að tilkynna Sölku, skólanum hennar Sölku og skyldmennum hennar á Íslandi að við erum að flytja til Íslands um jólin.. Salka var frekar leið fyrst en er núna búin að jafna sig og hlakkar mikið til.. Hana langar samt ekki til að fara í skólann sem við höfðum ákveðið að hún færi í af því að henni finnst hún ekki læra neitt þar! Winking Hún er auðvitað vön mjög vel skipulögðu námi og mikið bóklegt nám en í skólanum sem við höfðum í huga er stefnan að börnin læri í gegnum leik og því engar ákveðnar skólabækur.. Við þurfum því núna að ákveða hvort við eigum að skoða aðra skóla fyrir Sölku eða halda okkur við gamla planið..

Við erum svo að athuga með leikskóla/dagmömmu fyrir Kolkuna.. Eitthvað verður hún að fá að gera blessunin.. Laugh Við sjáum hvernig það fer..

- Emma
|

Halloween!!

hæhæ allir..

í gær var Halloween (Hrekkjavakan) og við höldum auðvitað upp á það eins og sönnum Ameríkubúum sæmir. Við keyptum grasker, skárum þau út með ömmu og afa þegar þau voru í heimsókn, keyptum fullt af nammi til að gefa litlum nornum, sjóræningjum, súpermönnum, prinsessum og öllum hinum, klæddum okkur í búningana okkar og fórum út að Trick or Treat-a Laugh Þetta er alltaf rosa skemmtilegt kvöld og mikil stemning yfir mannskapnum sem maður hittir.. Salka var auðvitað rosa spennt yfir því að fá nammi hjá nágrönnunum og Kolka var sko ekki lengi að átta sig hvernig þetta virkaði! Undir lokin var Kolka farin að reyna að segja Trick or Treat og Happy Halloween við nágrannana.

Þegar við vorum hálfnuð með hverfið datt Kolka á miklum hlaupum og sprengdi neðrivörina og það blæddi svaka mikið en það var mjög fljótt að jafna sig og hún hélt ótrauð áfram í nammibetlinu.

læt fylgja nokkrar myndir!

IMG_4377
feðginin tilbúin að fara út að trick or treat-a
DSC02879
froska graskerið okkar..

DSC02898
Nornin með fjólubláa hárið
DSC02890
beðið með mikilli eftirvæntingu eftir nágranna!

DSC02883
Kolka bíður líka spennt!

DSC02896
Presturinn var á svæðinu!

DSC02885
og vonda drottningin!

DSC02902
Kolkan með rosa bólgna vör!

hafið það rosa gott,
kv. Emma, Henning og stelpurnar!
|