Nov 2006
Myndbönd..
26/11/06 04:08
hæhæ allir saman..
vegna mikilla eftirspurna höfum við sett inn ný myndbönd.. þið finnið þau hér til hægri undir "Myndbönd"..
Njótið vel!
og fyrir ykkur sem eruð að verða gráhærð á gátunni þá er svarið þetta: Because she was a Bonehead!! hahahahaha.. og það er komin ný gáta!
Njótið vel!
Fjölskyldan í úglöndum..

|
dagurinn batnandi fer - fyrir
suma alla vega 
25/11/06 20:13
klukkan var tuttugu mínútur í 12 á hádegi þegar við
rukum út úr húsi, orðin of sein í barnaafmæli sem var
haldið í keilusal í 18 mínútna keyrslu fjarlægð og
þar sem við höfðum ekki hugmynd um hvar þetta væri þá
ætluðum við að vera tímanlega.. gekk ekki betur en
þetta þó.. Þegar búið var að hlaða bílinn með börnum
og átti að leggja af stað þá heyrist bara tuhhh tuhhh
tuhhh og bíllinn rafmagnslaus!! Arrrg og garrrrg..
hvað gera lagsmenn þá?? Þar sem það er Thanksgiving
helgin og allir farnir úr bænum, þá var ekki svo
auðvelt að fá nágrannann á efri hæðinni til að hjálpa
okkur (eins og hann gerði síðast).. Emman stökk út á
götu og veifaði í bíla sem hún sá.. Tvær konur
stoppuðu en höfður ekki tíma til að hjálpa (ohhhh
yndislegu Ameríkanar!!!) en eftir nokkrar mínútur þá
kom annar bíll, Emman aftur út á götu og náði að
sannfæra blessaðan manninn um að hjálpa okkur..
Startkaplarnir settir á sína staði og bíllinn í
gang.. klukkan orðin 5 mínútur í 12 - shitt.. Jæja
ekkert við því að gera.. keyrðum af stað og villtumst
pínu en komumst á áfangastað 20 mínútur yfir 12..
í barnaafmælinu var Henning að spjalla við mömmu einnar í bekknum (ég stóð við hliðina á þeim) , og hún er eitthvað að tala um Kolku (Henning hélt á henni) og hvað hún væri nú lík pabba sínum, svo snýr hún sér að mér og segir "ert þú svo stóra systirin?" HAHAAHHAHAHA.. ég : "ég? neiii, ég er mamman!!" HAHAHAHHAHAHHA..
Mér fannst þetta náttla ógurlega fyndið, Henning fannst þetta ekki eins fyndið! Hann hefði greinilega ekki átt að raka hanakambinn af í morgun FYRIR afmælið!!!
hafið það gott,
unga, GAMLI og dæturnar..

boston boston boston..
15/11/06 16:32
jæja fólkens.. þá er komið að því.. við erum að fara
til Boston á morgun og verðum þar fram á sunnudag í
túristafíling.. gistum á hóteli, borðum úti og fáum
Room Service, löbbum um og skoðum Boston og hver veit
nema við kíkjum í New England Aquarium og Museum of Science (íslenskt orð
alveg stolið úr mér).. Ef þið vitið um eitthvað
rosa sniðugt sem við getum gert (staðir, söfn,
veitingastaðir o.þ.h.) í Boston þá endilega
kommentið og segið frá..
ástæðan fyrir því að við erum að fara er sú að það á að skipta um gluggana í íbúðinni okkar.. vonandi verða þeir nýju betri.. er ansi hrædd um að hitinn okkar sé allur að leka út..
jæja.. hafið það gott..
knús
- Emma

Nýtt í Gátuhorninu!
10/11/06 01:06
Nú eru undur og stórmerki hérna á síðunni! Það er
komin ný gáta í Gátuhornið!!! Látið nú reyna á
heilabúið og skrifið svörin í athugasemdirnar.
hvar eru vinirnir??
08/11/06 02:14
hæhæ allir..
héðan er allt gott að frétta úr veðurblíðu.. við getum nú ekki beint kvartað yfir kulda og leiðindum, er 14 stiga hiti núna og nýbyrjað að rigna (kl. 21.15) og á að fara upp í 19 stig á fimmtudaginn og léttskýjað.. mjöööög fínt bara..
Við fórum á Friday's áðan og á næsta borði sat vinahópur að fagna afmæli eins meðlimsins og þá allt í einu áttaði ég mig á því að ég sakna þess að eiga vini.. sakna þess að fara eitthvert með vinum og tala við vini.. mjög leiðinlegt að vera allt í einu svona einmana..
við erum eiginlega búin að ákveða að vera hér um jólin, hafa það bara notó og horfa á dvd og fara í göngutúra í fallegu vetrarveðri.. það verður bara gaman að athuga hvort við finnum okkur eitthvað jólatré og æðislegt að geta misst sig svolítið í jólaskrautskaupin.. bakað, þrifið og gert jólalegt án þess að þurfa að pakka í töskur og taka upp úr þeim..
þar sem það hefur alltaf verið spilað hjá okkur milli jóla og nýárs (og bjórinn drukkinn) þá ætla ég að bjóða fólki að koma og spila hér í ameríku.. vinir og vandamenn sem langar að skella sér til Ameríku þá er það velkomið.. við getum meira að segja fengið lánaða aðra íbúð ef allir ákveða að mæta!
hafið það rosa gott í vikunni..
knús Emma vinalausa í Ameríku..

breyttir tímar..
03/11/06 01:21
hæhæ allir saman..
nú eru breyttir tímar.. það er sem sagt búið að breyta klukkunni hér í Ameríku og við erum núna 5 tímum á eftir Íslandi.. þannig að það er alveg stranglega bannað að hringja í okkur fyrir kl 13 á íslenskum tíma (nema það sé eitthvað rosalega merkilegt)..
Við Henning fórum með Kolku til læknis í gær og þar var hún vigtuð, lengdarmæld, hlustuð og svo endaði heimsóknin á 3 sprautum.. Kolka var sko ekki sátt við það enda kannski hægt að sætta sig við eina sprautu en alls ekki 3!!! í gærkvöldi byrjaði hún svo að verða slöpp og er búin að vera þannig í dag líka.. virðist samt vera að ná sér núna..
Salka er loksins orðin hress og kát eftir kvefið sem hún nældi sér í og var í henni í 10 daga..
Mig langaði líka að benda ykkur á að þið getið alltaf skoðað myndir á síðunni þeirra systra á barnalandi, við erum mun duglegri við að setja inn myndir þangað..
hafið það gott.
-Emma