May 2007
Nohorðlenskka!
30/05/07 01:38
Nú finnst mér að Íslendingar ættu að hætta að fara
eins og heitur köttur kringum kaldan graut og gera
almennilega mállýsku úr norðlensku. Þá gætum við sagt
við útlendinga að það væru tvær mállýskur talaðar á
Íslandi: "sunnlenska" og "norðlenska". Það væri
svalt. Mér finnst að það ætti einnig að fara að
stafsetja norðlenskuna eins og hún er töluð (alla
vega á Ólafsfirði). Til dæmis væri "norðlenska"
skrifuð "nohorðlenskka" á norðlensku, til þess að
gefa til kynna hvernig bera skuli fram orðið. Þá
mætti fara að gefa út bækur í tveimur gerðum, eina á
sunnlensku og eina á norðlensku. Einnig þyrfti að
gefa út orðabók, sunnlensk-norðlensk og
norðlensk-sunnlensk. Síðan þyrfti að gefa út símaskrá
á norðlensku. Þar mætti finna nöfn eins og
"Óhólafur", "Einhar", "Gunnhar", "Sighrún", "Pháll"
og "Siðgfinnhur". Þá mætti halda upp á páðska og jóðl
fyrir norðan á meðan haldið væri upp á páska og jól
fyrir sunnan. Fólk ætti aðfmæhli fyrir norðan en
afmæli fyrir sunnan. Þetta myndi hressa mikið upp á
umræðu um íslenska tungu og væri augljóslega almennt
til bóta. Þ.e.a.s. til bhóðtha fyrir norðan og til
bóta fyrir sunnan.
knhús,
Hennhing.
p.s. það er ný gáta í gátuhorninu og enginn búinn að reyna við hana!
knhús,
Hennhing.
p.s. það er ný gáta í gátuhorninu og enginn búinn að reyna við hana!
|
bleik síða og ný gáta!
25/05/07 02:54
labbandi Kolka!
17/05/07 00:22
hún Kolka byrjaði að labba í dag! hún fór allt í einu
að æfa sig í gær og aftur strax í morgun og fyrir
hádegið var hún farin að labba hálfa leið yfir
stofuna! hún byrjaði á því að taka voða lítil skref,
eiginlega bara nokkra millimetra en er nú komin upp í
sentimetraskrefin
annars er það að frétta að Kolka er ennþá kvefuð og Henning er líka lasinn, með kvef, hálsbólgu, höfuðverk og almennan slappleika. Við vonum að allir vakni hressir á morgun því við ætlum að fara í ferðalag á föstudaginn.. Við ætlum að keyra og skoða Niagara Falls og gista á hóteli þar í 2 nætur. Við ætlum að gista á Marriott hótelinu sem er við fossana..
hafið það gott..
ferðafjölskyldan!

nýjar myndir - loksins!
12/05/07 14:53
jæja þá er ég búin að setja inn nýjar myndir.. hér
til hægri undir apríl og maí!
Annars gengur allt rosa vel hér á Transit, stelpurnar ennþá soldið kvefaðar en annars hressar. Henning gekk mjög vel í Topics-inu og er búin að vera í smá fríi síðan þá - rosalega gott og gaman að hafa hann heima
Svo styttist í að Fanney og Lilja komi í heimsókn, bara 13 dagar í dag! vei vei vei..
hafið það gott og munið að kommenta!
kv. Emman

fyrsta afmælið búið!
08/05/07 23:47
hæhæ og hó..
það líður alltaf frekar langur tími milli færslna núna.. en hver veit, kannski koma þær örar núna.. En þið verðið þá að vera dugleg að kommenta!
Kolka er búin að eiga sitt fyrsta afmæli. Alveg ótrúlegt hvað tíminn líður.. Hún var nú samt lasin á afmælisdaginn, með hita og pínu kvef. En við bökuðum nú samt köku og héldum smá afmælisveislu bara fyrir fjölskylduna.. Það var voða gaman og hún fékk alveg fullt af pökkum (og Salka líka) - takk fyrir það allir! Kolka hafði samt ekki orku í að taka alla pakkana upp á sjálfan afmælisdaginn þannig að það var klárað í dag!
Kolka er orðin hress núna og er að breytast í enga smá frekju!
Hún vill bara vera úti og helst
ekki í kerrunni, vill bara æfa sig að labba og
svo skríða um allt, koma við blómin sem hafa
dottið af trjánum og grafa í sandi sem er á
gangstéttunum! og ef foreldrarnir hafa önnur
plön en að vera úti á stétt þá bara sturlast sú
stutta og leggst í jörðina og gargar! (ætli
þetta sé nokkuð terrible two að byrja svona
svakalega snemma??)
Salka fékk kvef í lok síðustu viku en hefur náð því að verða ekki veik, þarf bara að snýta sér nokkrum sinnum á dag en er alveg hress - sem betur fer..
Við fórum með Fríðu og Úlfar í PikkNikk í stærðfræðideildinni, rosa fjör.. við fengum gott veður, góðan mat og bús
Við nýttum okkur líka pössunina
vel og fórum tvisvar sinnum til Conniar og Joes
að spila - okkur stelpunum gengur nú ekkert
sérlega vel samt þessa dagana.. vonandi snýst
það á rétta leið bráðum..
Henning er að fara í Topics prófið í fyrramálið! það er 40 mínútna fyrirlestur sem hann heldur fyrir 3 prófessora og þeir mega svo spyrja hann út úr í 40 mínútur! Hann er búinn að vera að lesa fyrir þetta í marga mánuði svo það verður svaka léttir þegar þetta verður búið!
hafið það gott!
kveðjur úr vorinu í providence..