May 2006
"Sæll, þú hefur fitnað!"
22/05/06 11:58
Ég er kominn aftur til Íslands í faðm fjölskyldunnar
eftir að hafa skroppið út í 6 daga til þess að fara
yfir próf og vesenast. Þegar ég var úti þá rakst ég á
fyrsta árs nema í stærðfræðinni sem heitir Kaveh og
er frá Íran. Hann var búinn að frétta að ég hefði
eignast dóttur og hann óskaði mér innilega til
hamingju með það og sagði mér svo að "ég hefði
fitnað," eða eins og það útlegst á ensku "you have
gained weight." Mig grunar að hann hafi verið að
meina að ég hefði vaxið við að eignast dótturina en
það er líklega afneitun hjá mér. Ég sem var fylgjandi
því að Íranir fengu að reysa kjarnorkuver...
-Henning
-Henning
|
Fyrsta baðið og fyrsta listasýningin!
14/05/06 14:23
á miðvikudaginn síðasta (10.maí
kom ljósmóðirin í heimsókn og
kenndi okkur að baða litla nýja gullmolann.. í
fyrstu var litlan ekki sátt en þegar hún var
komin vel ofan í vatnið þá virtist henni bara
líka vel og við vonum að það haldi áfram þannig!
á laugardaginn síðasta fórum við á opnun á listasýningu (svo menningarleg!!!!) hjá mömmu minni og tveimur öðrum leirlistakonum.. Litlan vakti auðvitað mikla lukku og stal kannski svolítið athyglinni frá listmununum..
en við mælum með þessari sýningu
og hvetjum alla til þess að kíkja á hana.. hún
er í hönnunarsafninu á Garðatorgi 7..
Annars er bara allt gott að frétta af okkur, Henning fór til Ameríku í gær og kemur aftur á sjálfan Júróvísjóndag (laugardag).. Litlan er algjör draumur í dós - sefur bara og drekkur og gargar bara þegar það er verið að skipta á henni enda hefur það nú aldrei talist til skemmtunar! Salka er svo rosalega góð við litlu systur sína og kyssir hana og knúsar eins og hún fái borgað fyrir það.. Hún nebbar hana líka (setur sinn nebba uppað hennar og hristir hausinn) - mjög gaman að því..
Við vonum að þið hafið það jafn gott og við!
kveðja úr Holtsbúð (búðin þar sem bara hollt fæst (gulrætur, epli o.þ.h.) eins og Salka sagði við afa sinn)
á laugardaginn síðasta fórum við á opnun á listasýningu (svo menningarleg!!!!) hjá mömmu minni og tveimur öðrum leirlistakonum.. Litlan vakti auðvitað mikla lukku og stal kannski svolítið athyglinni frá listmununum..
Annars er bara allt gott að frétta af okkur, Henning fór til Ameríku í gær og kemur aftur á sjálfan Júróvísjóndag (laugardag).. Litlan er algjör draumur í dós - sefur bara og drekkur og gargar bara þegar það er verið að skipta á henni enda hefur það nú aldrei talist til skemmtunar! Salka er svo rosalega góð við litlu systur sína og kyssir hana og knúsar eins og hún fái borgað fyrir það.. Hún nebbar hana líka (setur sinn nebba uppað hennar og hristir hausinn) - mjög gaman að því..
Við vonum að þið hafið það jafn gott og við!
kveðja úr Holtsbúð (búðin þar sem bara hollt fæst (gulrætur, epli o.þ.h.) eins og Salka sagði við afa sinn)
Naflastúfur, fjórtándi jólasveinninn
12/05/06 10:18
Þeir sem trúa ekki öllu sem þeir sjá í amerískum
bíómyndum vita að lítil börn eru með smá stúf eftir
af naflastrengnum. Þessi stúfur losnar og dettur
síðan af eftir nokkra daga. Þetta gerðist einmitt í
gær hjá henni Akkalý, nema hvað við fundum ekki
stúfinn. Við leituðum út um allt, Salka leitaði með
vasaljósi undir rúminu hjá Akkalý, ég ryksugaði allt
og við leituðum í óhreinatauinu til þess að athuga
hvort hann hefði nokkuð slæðst með þangað. Ég opnaði
meira að segja gamla bleiu til þess að leita að
honum... en ekkert fannst. Síðan í gærkvöldi þá fann
ég stúfinn hangandi utan í bleiunni sem hún var
með... mikill léttir að þurfa ekki að hafa hættu á að
gestir og gangandi stígi óvart á hann!
Salka sunddrotting
12/05/06 10:12
Ég fór með Sölku í sund um daginn og hún er alltaf að
verða klárari og klárari (syndnari og syndnari?). Hún
er líka orðin svo fljót að koma sér ofaní... ég er
alltaf rétt kominn ofaní, þá er hún komin líka. Hún
er hætt að nota kúta og getur nánast haldið sér á
floti. Henni finnst rosalega gaman að kafa og getur
stungið sér af bakkanum og kafað til baka! Henni
finnst svo svakalega gaman að kafa að hún er farin að
biðja mig um að ýta sér niður til þess hún komist
dýpra! Ég held það sé alveg spurning um að senda hana
á sundnámskeið í sumar!
Héðan úr Holtsbúðinni er annars allt gott að frétta, Akkalý sefur mjög vært og er heimilisfólkinu til mikillar skemmtunar. Hún fór í læknisskoðun í gær og var einungis 80gr undir fæðingarþyngd sem telst rosalega gott því börn léttast alltaf eftir fæðingu. Svo fór hún í fyrsta baðið sitt um daginn og við setjum vafalaust inn myndir af því bráðlega.

Nýtt líf
08/05/06 10:43
Þá er hún loksins komin í heiminn litla stúlkan
okkar. Þetta byrjaði allt klukkan fjögur í
eftirmiðdaginn á föstudaginn síðasta. Við tókum því
rólega en ákváðum síðan að kíkja aðeins upp á
fæðingardeild um miðnættið. Þá voru um 5 mínútur
milli samdrátta en við ætluðum samt að reyna að koma
heim aftur í rólegheit. Þegar á fæðingardeildina var
komið var Emma skoðuð og kom í ljós að hún var með
milli 8 og 9 í útvíkkun og stutt í að barnið kæmi í
heiminn! Ljósmóðirin, Þórdís Klara Ágústsdóttir, átti
von á að um leið og vatnið færi þá myndi barnið koma,
en það reyndist vera meiri bið eftir litlu dömunni.
Ljósmóðirin spurði okkur hvort læknanemi mætti vera
viðstaddur fæðinguna og Emma var til í það. Mér leist
ekkert alltof vel á það en leyfði Emmu auðvitað að
ráða þessu, enda reyndist neminn, Berglind María
Jóhannsdóttir alveg ótrúlega vel. Eftir skoðunina
fórum við í fæðingarstofu þar sem við höfðum útsýni
yfir Hallgrímskirkju -- ekki amalegt það! Við
hringdum í mæður okkar sem komu að vörmu spori. Þær
voru mikil stoð og stytta fyrir okkur og ómetanlegt
að hafa þær á svona stundu.
Samdrættirnir fóru að koma með styttra millibili en Emma tók því með mestu ró og það heyrðist aldrei neitt í henni. Ég er alveg viss um að ég gæti ekki gengið í gegnum einu sinni svona smá byrjunarsamdrætti, hvað þá heila fæðingu. Ég gerði mitt besta til þess að hjálpa Emmu með hjálp Kristínar. Við gáfum henni ísvatn í lok hríðanna og settum kaldan þvottapoka á ennið hennar. Mér fannst ég samt aldrei geta gert neitt almennilegt og vorkenndi Emmu alltaf alveg rosalega, jafnvel þó hún stæði sig svo hetjulega. Loksins var útvíkkunin öll búin og Emma mátti byrja að rembast. Þá lá hún á bakinu upp í rúmi en fannst ekki gott að rembast þannig. Hún ákvað því að fara á fjóra fætur og steig út úr rúminu. En áður en hún fór aftur upp í prófaði hún að rembast standandi og það fannst henni mjög gott. Við héldum því áfram þannig og Emma rembdist og rembdist -- án nokkurra verkjalyjfa -- hetja munið þið!? Þá loksins kom kollurinn út en stóð síðan fastur þannig að Emma brá sér upp í rúm og kláraði þannig.
Akkalý kom síðan beint upp á magann til mömmu sinnar -- soldið blá, eins og venja er -- en andaði með prýði og var hin hressasta! Ég klippti síðan á naflastrenginn og svo var strokið af Akkalý og hún fékk að vera smá stund í ró og næði hjá mömmu sinni og pabba. Þar næst var hún vigtuð: vóg 4575 gr eða 18 merkur, og mæld: mældist 53 cm. Þess má geta að Emma hafði giskað á 4500 gr og 53 cm daginn áður! Ljósmóðirin og nemin voru alveg frábærar, voru inni hjá okkur við og við; leyfðu okkur að vera útaf fyrir okkur og reyndust okkur rosalega vel undir lokin. Síðan tók við nokkkur bið eftir Hreiðrinu. En loksins máttum við fara þangað og fengum þar hið besta herbergi með mikilli lofthæð og útsýni yfir flugvöllinn!
Við vorum auðvitað í skýjunum og þvílíkt þreytt og gátum sofið vel fram eftir degi. Ég er alveg ótrúlega stoltur af henni Emmu! Hún stóð sig svo frábærlega vel að ég get varla lýst því -- og svo gerði hún þetta allt án deyfingar! Ég er alveg í skýjunum með eiginkonuna mína og litlu sætu telpuna sem hún færði mér!
Við fengum alveg fullt af heimsóknum seinna um daginn, Salka, Fríða og Úlfar komu fyrst og Salka var alveg svakalega glöð að sjá litlu systur sína. Hún Akkalý er nú heppin að eiga svona frábæra stóru systur! Síðan komu Bryndís og Fanney, vinkonur Emmu og svo afar mínir og ömmur og Kristín og Hjalti, bróðir Emmu. Yfir daginn þá svaf Akkalý eins og engill og gólaði sára lítið. Hún hafði hinsvegar lítinn áhuga á svefni um nóttina og við vorum orðin ansi þreytt hjónin á sunnudagsmorgninum þegar við fórum heim. Á sunnudeginum svaf hún alveg heilmikið og við áttum því von á erfiðri nóttu. Við reyndumst þó ekki vera sannspá því Akkalý svaf næstum alla nóttina og við þar af leiðandi líka. Núna sofa mæðgurnar saman tvær upp í rúmi!
Við viljum þakka öllum fyrir hamingjuóskirnar sem við höfum fengið -- þið eruð öll svo góð!

X-ið bjargar þrífættum ketti
03/05/06 16:02
Ég var á keyrslu í Hafnarfirði í fyrradag, hlustandi
á Létt-Bylgjuna eða eitthvað þvíumlíkt og hægði því á
mér til þess að skipta um útvarpsstöð. Ég skipti af
sjálfsögðu á X-ið, 97,7 og í sama mund hljóp
þrífættur köttur fram fyrir bílinn. Það er alveg
öruggt ef að ef ég hefði ekki verið að hlusta á
einhvern ámóta óbjóð og Létt-Bylgjuna og hefði ekki
neyðst til þess að skipta um stöð þá hefði ég ekið
beint yfir þrífætta köttinn. Það hefði mér auðvitað
þótt leiðinlegt, ólíkt vini míni honum Matthíasi sem finnst fyndið þegar
fólk hjólar yfir skúnka. Annars
sendum við Matthíasi baráttu kveðjur.
-Henning
-Henning