þvílíkur hroðbjóður!

ég fór í búðarleiðangur í dag (svaka leiðangur - alveg í eina búð!) en alla vega ég fór í búð til þess að kaupa mér brjóstagjafahaldara eða brjóstagjafatopp og þar sem ég hafði átt einn svona svakalega fínan þegar Kolkan var lítil (já, einu sinni var hún lítil!) þá ákvað ég að skella mér bara aftur á svoleiðis og ég bið um aðstoð í þessari fínu búð og afgreiðslustelpan ekkert nema almennilegheitin og týnir til gjafahaldarann í réttri stærð og stærstu stærð og sendir mig inn í klefa að máta.. ég vippa mér í haldarann, sem var bara nýrri týpa af gamla mínum, mjög svo glöð í bragði en ó mæ dog, þetta var hryllingur.. ég var öll kramin með keppina uppúr á öllum stöðum og allan hringinn..
ég hryllti mig, sneri mér frá speglinum, reif mig úr þessum óbjóði og rétt náði að skutla mér í mínar eigin flíkur áður en ég hentist út úr búðinni, ennþá með mynd af ógeðinu, sjálfri mér, í huganum!

-Emma
|

og þá kom Mars!

Loksins er kominn mars! Minn mánuður.. úff pjúff, sjaldan hef ég verið svona fegin að það eru komin mánaðarmót.. já og ekki vegna þess að ég eigi von á einhverri svaka summu inn á reikninginn, nei ó nei.. ég ætla að unga út þessu barni í þessum mánuði..
Æji hvað það verður gaman að hitta þessa litlu skvísu sem lætur fara soldið mikið fyrir sér - ekki bara í líkama mínum heldur líka í rúminu.. ég er eiginlega ekki með neitt pláss í rúminu lengur því bumban þarf að hafa svo gott pláss.. Happy
Ætli bumbuskottan eigi eftir að vera alveg eins og Kolka þegar hún fæddist? Verður hún líka með svona lítið nef og goggamunn?? verður hún með sama hárlit og Kolka var með þegar hún fæddist? Ætli þessi skotta verði jafn stór og Kolka þegar hún fæddist eða kannski stærri??
ég er búin að vera að þvo og brjóta saman pínulitlu barnafötin, ohh þau eru svo krúttaraleg! fullt af bleiku Happy Ég þarf að fjárfesta í stærri kommóðu, er strax búin að fylla gömlu kommóðuna hans Hjalta bróður (fötin hans hjalta voru geymd í þessari kommóðu þegar hann fæddist)..

jæja eigum við ekki að segja þetta gott af barnahugleiðingum og skella okkur aftur í bólið..
hafið það gott..
Belgmikla - Emma ..
|