Mar 2006
Nýjar myndir!
28/03/06 04:53
Var að smella inn glóðvolgum myndum. Á morgun fer ég
upp til Boston að sækja Kristinn sem ætlar að koma og
vera hjá mér í nokkra daga. Hugsa að ég plati hann
með mér í IKEA til þess að skipta gölluðum
klósettskáp. Hef verið án spegils inni á klósetti í
alla vegana tvær vikur og er orðinn töluvert loðinn í
framan... Við ætlum líka að kíkja í heimsókn til
Braga í New York sem verður örugglega mikil snilld!
Annars bið ég kærlega að heilsa til Íslands og allir
verða að muna að knúsa Emmu og Sölku frá mér!
-Henning
-Henning
|
Meiri Tíramísú fréttir
19/03/06 15:47
Ég snúsaði (heitir víst að blunda á kórréttri
íslensku) frá klukkan 8 til 9 í morgunn og það var
víst nóg til þess að það var fugl fyrir utan gluggan
hjá mér farinn að herma eftir hringingunni, aftur og
aftur og aftur! Frekar fyndið! Í sambandi við
Tíramísúmálið þá var Conni var að tala við móður sína
áðan og komst að því að hún hafði notað 10 sinnum of
mikið súkkulaði í Tíramísúið! Aðeins of fyndið!
Aleinn og yfirgefinn með vont Tíramísú
19/03/06 04:29
Sit hér aleinn og yfirgefinn með tvo Þjóðverja í
húsinu. Emma og Salka voru að fara til Íslands nú í
kvöld og það er alveg ótrúlega tómlegt í kotinu. Ég
keyrði þær upp til Boston áðan þar sem við sóttum
Úlfar á Colonnade hótelið og þaðan
var haldið á Pizzeria Regina í norðurhluta
Boston, þar sem við ætlum að snæða ljúffenga
flatböku. Eftir að hafa þrætt þröng stræti
norðuhlutans þá blasti við okkur röð fyrir utan
pizzastaðinn... svo við ákváðum bara að halda
aftur á hótelið þar sem við snæddum ljúffengan
mat í boði Úlfars! Eftir þær vellystingar
keyrðum við mjög furðulega leið út á Logan
flugvöll þar sem ég hvaddi þær mæðgur og föður
minn með miklum söknuði og keyrði svo mjög
niðurdreginn aftur til Providence. Það var síðan
enginn heima á Transit Street þegar ég kom
þannig að ég fékk mér frosinn harðfisk og horfði
á South Park. Conni og Joe komu síðan heim og
Conni fór að baksa við að búa til Tíramísú. Það
heppnaðist ekki betur en svo að hún notaði allt
of mikið af vitlausu súkkulaði þannig að úr varð
hálfgerður kókómaltsþeytingur. Hún var nú
hálffúl yfir þessu en ákvað samt af einhverjum
dularfullum ástæðum að skipta þeytingnum niður í
poka og frysta... á eflaust eftir að koma
einhvern tímann að góðum notum! Ef einhver
lesenda rekst á þær mæðgur á Íslandi þá sendi í
knús til þeirra.
-Henning
-Henning
Nýjar myndir og nýtt myndband!
16/03/06 00:00
Til hamingju Ísland að Salka fæddist hér!
15/03/06 20:24
hæhæ allir saman!
hvað segið þið þá? við segjum allt þrusufínt..
Salka á afmæli í dag, orðin 6 ára skvísan!! alveg ótrúlegt, finnst ykkur ekki?? mér finnst svo ótrúlegt að það séu liðin 6 ár síðan ég fékk Sölku í fangið, gargandi og gólandi!!
núna er hún bara að fara að byrja
í skóla, getur fengið sér sjálf að borða, ristað
sér brauð og smurt það og fengið sér kakó að
drekka með og meira að segja gengið frá eftir
sig, svo getur hún reimað skóna sína sjálf,
nuddað mömmu sína og baðað sig sjálf!! Hvað varð
eiginlega um litlu stelpuna mína?
Við héldum upp á afmælið hennar Sölku á sunnudaginn og það komu 6 stelpur úr leikskólanum hingað heim og við fengum vísindamann til þess að sýna stelpunum spennandi vísindi, eins og að búa til regnboga og flugelda og stelpunum þótti þetta rosalega gaman!!
ég fór á stærðfræðifyrirlestur áðan, já trúið þið þessu!!?? Henning var að halda fyrirlesturinn og mig langaði að sjá hann.. En honum gekk alveg rosalega vel - það var bara aðeins of lítill tími! en heilinn minn var alveg að fara yfirum við það að reyna að fylgja því sem Henning sagði..
Við fengum síðasta svarið í síðustu viku og vorum nú eiginlega bara móðguð, þeir sögðu bara í bréfinu að Salka ætti ekki samleið með þeim og núna þykir okkur foreldrunum þessi skóli bara ekkert flottur!
Núna styttist í að við Salka leggjum í hann til Íslands og ég er að reyna að pakka, gengur ekki eins vel og ég hélt að mér myndi ganga.. ég hef bara ekki hugmynd um hvað ég á að taka með mér? á ég að taka ullarkápuna? gönguskóna? vettlinga, húfu og trefil? hlaupaskóna? hmmm...
jæja.. hafið það sem allra allra best og við sjáumst eftir nokkra daga!
ykkar Emma og Akkalý
hvað segið þið þá? við segjum allt þrusufínt..
Salka á afmæli í dag, orðin 6 ára skvísan!! alveg ótrúlegt, finnst ykkur ekki?? mér finnst svo ótrúlegt að það séu liðin 6 ár síðan ég fékk Sölku í fangið, gargandi og gólandi!!
Við héldum upp á afmælið hennar Sölku á sunnudaginn og það komu 6 stelpur úr leikskólanum hingað heim og við fengum vísindamann til þess að sýna stelpunum spennandi vísindi, eins og að búa til regnboga og flugelda og stelpunum þótti þetta rosalega gaman!!
ég fór á stærðfræðifyrirlestur áðan, já trúið þið þessu!!?? Henning var að halda fyrirlesturinn og mig langaði að sjá hann.. En honum gekk alveg rosalega vel - það var bara aðeins of lítill tími! en heilinn minn var alveg að fara yfirum við það að reyna að fylgja því sem Henning sagði..
Við fengum síðasta svarið í síðustu viku og vorum nú eiginlega bara móðguð, þeir sögðu bara í bréfinu að Salka ætti ekki samleið með þeim og núna þykir okkur foreldrunum þessi skóli bara ekkert flottur!
Núna styttist í að við Salka leggjum í hann til Íslands og ég er að reyna að pakka, gengur ekki eins vel og ég hélt að mér myndi ganga.. ég hef bara ekki hugmynd um hvað ég á að taka með mér? á ég að taka ullarkápuna? gönguskóna? vettlinga, húfu og trefil? hlaupaskóna? hmmm...
jæja.. hafið það sem allra allra best og við sjáumst eftir nokkra daga!
ykkar Emma og Akkalý
bara eitt svar eftir..
07/03/06 22:34
hæhæ allir saman!
hvað segið þið þá? Við erum ennþá í skýjunum yfir Lincoln svarinu.. Við erum búin að fá svör frá tveimur skólum í viðbót, Salka er á biðlista í Gordon skóla (ég hélt að vísu að hún kæmist inn í hann) en hún komst ekki inn í Moses Brown.. Við þurfum að svara Gordon skóla um það hvort við viljum að Salka verði áfram á biðlista en ég held við tökum hana af biðlistanum og gerum þannig einhverjum öðrum greiða..
En svona annað, þá styttist í að afmælið hennar Sölku verði haldið hátíðlegt
við erum ennþá að hugsa hvað við
eigum að bjóða upp á en við ætlum að reyna að
hafa þetta bara heimilislegt og notalegt..
Ekkert stress - bara gaman! Afmælið verður
haldið á sunnudaginn kl.3 (að staðartíma) og
ykkur er auðvitað velkomið að mæta (boðskortin
voru ekki send nema bara innanlands)!
Sambúðin með þjóðverjunum (einn 1/2 þjóðverji og einn 3/4 þjóðverji) gengur bara alveg ótrúlega vel.. Þau eru nú ekki mikið heima á virkum dögum en þegar þau eru heima á kvöldin þá er nú bara hlunkað sér við borðstofuborðið og spilað af miklu kappi (og nartað í alls kyns alls kyns). Það er meira að segja verið að skrifa niður stigin á töfluna, og stelpurnar eru með 9 vinninga og strákarnir 8 - mjög mikil spenna sem fylgir þessu!
Við Henning hlupum um Mollið í morgun, vorum ekki nema 40 mínútur og náðum þó að kaupa eitthvað og skoða ennþá meira..
Núna þurfum við að fara að skipuleggja okkur svolítið betur svo við náum að gera það sem við ætlum að gera (og kaupa) áður en við Salka förum til Íslands, það eru nú ekki nema 11 dagar í að við leggjum í hann!
Við öll (ég, Henning, Salka, Conni og Joe) fórum í IKEA á laugardaginn og keyptum fullt og svo þrufti auðvitað að skrúfa þetta allt saman og hengja upp hitt og þetta. Henning stóð sig með eindæmum vel í því en auðvitað var einn baðskápurinn gallaður svo við þurfum að fara aftur í IKEA og skila og fá nýjan.. En þegar það er búið og skápurinn kominn upp þá held ég að íbúðin sé bara orðin eins fín og hún verður!! það verður voða gaman þegar það er búið!
Í lokin viljum við óska henni Agnesi frænku innilega til hamingju með afmælið og við vonum að þú hafir átt góðan dag!
Bestu kveðjur úr vorinu á Transit!
hvað segið þið þá? Við erum ennþá í skýjunum yfir Lincoln svarinu.. Við erum búin að fá svör frá tveimur skólum í viðbót, Salka er á biðlista í Gordon skóla (ég hélt að vísu að hún kæmist inn í hann) en hún komst ekki inn í Moses Brown.. Við þurfum að svara Gordon skóla um það hvort við viljum að Salka verði áfram á biðlista en ég held við tökum hana af biðlistanum og gerum þannig einhverjum öðrum greiða..
En svona annað, þá styttist í að afmælið hennar Sölku verði haldið hátíðlegt
Sambúðin með þjóðverjunum (einn 1/2 þjóðverji og einn 3/4 þjóðverji) gengur bara alveg ótrúlega vel.. Þau eru nú ekki mikið heima á virkum dögum en þegar þau eru heima á kvöldin þá er nú bara hlunkað sér við borðstofuborðið og spilað af miklu kappi (og nartað í alls kyns alls kyns). Það er meira að segja verið að skrifa niður stigin á töfluna, og stelpurnar eru með 9 vinninga og strákarnir 8 - mjög mikil spenna sem fylgir þessu!
Við Henning hlupum um Mollið í morgun, vorum ekki nema 40 mínútur og náðum þó að kaupa eitthvað og skoða ennþá meira..
Núna þurfum við að fara að skipuleggja okkur svolítið betur svo við náum að gera það sem við ætlum að gera (og kaupa) áður en við Salka förum til Íslands, það eru nú ekki nema 11 dagar í að við leggjum í hann!
Við öll (ég, Henning, Salka, Conni og Joe) fórum í IKEA á laugardaginn og keyptum fullt og svo þrufti auðvitað að skrúfa þetta allt saman og hengja upp hitt og þetta. Henning stóð sig með eindæmum vel í því en auðvitað var einn baðskápurinn gallaður svo við þurfum að fara aftur í IKEA og skila og fá nýjan.. En þegar það er búið og skápurinn kominn upp þá held ég að íbúðin sé bara orðin eins fín og hún verður!! það verður voða gaman þegar það er búið!
Í lokin viljum við óska henni Agnesi frænku innilega til hamingju með afmælið og við vonum að þú hafir átt góðan dag!
Bestu kveðjur úr vorinu á Transit!
fyrsta svarið..
03/03/06 14:32
Sæl öll sömul!!
Við erum þá loksins með skemmtilegar fréttir..
Við fengum svar frá fyrsta skólanum í gær.. og Lincoln school segist vera glaður að bjóða Sölku að vera í 1.bekk hjá þeim! vei vei vei..
Lincoln skóli er stelpnaskóli og við Henning vorum hrifnust af honum en þorðum ekki einu sinni að vona að Salka kæmist inn í hann! Stelpurnar í Lincoln skóla eru í skólabúningum, þannig að það er aldrei vesen með að velja föt á morgnana..
Við Henning vorum að sjálfsögðu að rifna úr monti og stolti í gær (og erum ennþá
en Salka tók þessu með stakri ró,
enda held ég að hún geri sér ekki grein fyrir
því hvað það erfitt að komast inn í einkaskólana
hérna enda gerðum við ekkert mál úr þessu þegar
hún var að heimsækja alla skólana.
jæja.. það var þá ekki fleira í bili..
hafið það sem allra allra best og við sjáumst eftir nokkra daga!!
ykkar Emma og Akkalý!
Við erum þá loksins með skemmtilegar fréttir..
Við fengum svar frá fyrsta skólanum í gær.. og Lincoln school segist vera glaður að bjóða Sölku að vera í 1.bekk hjá þeim! vei vei vei..
Lincoln skóli er stelpnaskóli og við Henning vorum hrifnust af honum en þorðum ekki einu sinni að vona að Salka kæmist inn í hann! Stelpurnar í Lincoln skóla eru í skólabúningum, þannig að það er aldrei vesen með að velja föt á morgnana..
Við Henning vorum að sjálfsögðu að rifna úr monti og stolti í gær (og erum ennþá
jæja.. það var þá ekki fleira í bili..
hafið það sem allra allra best og við sjáumst eftir nokkra daga!!
ykkar Emma og Akkalý!
Kapalgaur
03/03/06 02:16
Í dag átti kapalgaur frá Cox að koma til þess að færa
kapalinn úr einu svefnherbergi í annað. Emma
talaði við Cox rétt áður en hún fór að sækja
Sölku í leikskólann og sagði þeim að þeir gætu
komið þar sem Conni væri heima. Síðan kom
kapalgaurinn og Conni spyr hvað hann eigi að
gera og hann kemur af fjöllum og veit ekkert
hvað hann átti að gera. Conni vissi það ekki
heldur svo það varð lítið úr þeirri
heimsókninni!