Jun 2007
Snyrtistofa Kolku!
30/06/07 14:18
hvað haldið þið að hún Kolka hafi gert?
þegar hún átti að fara að leggja sig upp í rúmi þá hætti hún bara við að vera þreytt og náði sér í varalit sem Salka prinsessa á og ákvað að gera sig soldið fína.. útkoman var: varalitur um allt andlit, á duddunni að innan sem utan og alveg heill hellingur í hárinu! MJÖG SMART!
vonum að þið eigið góðan dag!
kv. Emma

|
nýtt nýtt nýtt..
29/06/07 15:38
jæja þá virðast erfiðleikarnir vera yfirstignir
mikið er ég glöð!
pabbi er að koma frá texas núna á eftir - mikið verður gaman að sjá hann, kallinn.. líður einhvern veginn alltof langt á milli. Svo kemur elskuleg mamma mín á mánudaginn - ég hef bara séð hana 2 daga á þessu ári og síðustu 8 mánuði ef maður fer að spá betur í það.. hún er greinilega of upptekin, konan, en hún er búin að lofa að vera hér í afslöppun og notalegheitum í 11 daga! vei vei vei..
skelli inn myndum af Kolku litlu - sem er nú ekkert lítil lengur, hærri en borðstofuborðið, fimari en köttur og léttari en Salka var 8 mánaða held ég alveg örugglega
það er alveg ótrúlegt hvað þær eru
ólíkar í vextinum systurnar.. en bara gaman að
því..
sjáiði lubbann??
svona er maður orðinn stór, situr bara á fullorðinsstól og borðar brauð
litla sæta..
er soldið mikið fyrir það að rífa út úr eldhússkápunum, hleypur með það út um alla íbúð og byggir turna!
Salka virðist einhvern veginn aldrei nást á mynd enda er brjálað að gera hjá henni, stelpunni, á öllum sumarnámskeiðunum sínum og með bókuð playdate margar helgar í röð! en hún er hress og kát og hlakkar mikið til að koma til íslands, sérstaklega eftir að Árný amma hringdi í hana um daginn.. Mikið verða skemmtilegir endurfundir þá!
hér koma myndir af Sölkunni á ballettsýningunni (myndirnar eru frá foreldrum Noru, Connie og Reinhard):
Hópurinn hennar Sölku.
Salka mjög einbeitt!
Salka og Nora besta vinkona hennar úr skólanum
hafið það ofsalega gott í góða veðrinu á íslandi..
knús Emma

erfiðleikar á Hemsu
28/06/07 14:43
ja hérna hér!
13/06/07 23:58
jæja þið sem kíkið kannski ennþá..
ég skellti inn 3 nýjum myndböndum, 2 af Kolku og eitt af dansinum hennar Sölku á ballettsýningunni.. Ballett myndbandið er mjög langt þannig að þið ættuð að leyfa því að byrja að halast niður og skella ykkur í bíó og kíkja svo á það fyrir svefninn
alla vega sýnið þolinmæði, ég vona
að þetta virki samt, enda rosalega glæsilegar
ballerínur þarna á ferð..
hmmm.. svo ég stikli aðeins á stóru..
*Henning skellti sér til Utah í sumarskóla í 13 daga og er nú búinn að vera í 10 af þeim 13..
*Fríða kom og er búin að vera hjá okkur stelpunum á meðan, frábær hjálp, ómetanlegur félagsskapur og geðhjálpari mikill!
*Allt sem klikkað getur hefur klikkað á meðan Henning er í burtu:
- Bíllinn varð rafmagnslaus og svo strax á eftir næstum því bensínlaus
- Rafmagnið sló út í hluta af íbúðinni - einmitt þeim hluta sem Internetið, síminn, sjónvarpið og loftkælingin eru í sambandi
- Annað klósettið bilaði.
- Mjási hennar Kolku týndist (og að vísu líka ein stútkannan hennar) en fannst aftur
- Þvottavélin bilaði
...svo eitthvað sé nefnt!
En það hefur nú líka ýmislegt skemmtilegt gerst á þessum 2 vikum:
* við sáum íkornaunga sem við höfum aldrei séð áður - þvílíkt sætur!
* Fríða er 2 sinnum búin að fá hláturskast á meðan hún er með fullan munn af vökva og getur ekki kyngt.
* Fríða er komin með Gelgjuna nr.2 og segir "ógissslega!" í gríð og erg!
* Við sáum rosa skemmtilega ballett/jazz sýningu
* við höfum borðað góðan mat, nammi og horft á vídjó alveg eins og stelpuvikur eiga að vera!
* við erum búnar að labba rosalega mikið
* og höfum leikið okkur mikið í Brown garðinum..
* og við höfum tekið á móti þessum ýmsu erfiðleikum með þvílíku jafnaðargeði.
skelli inn 2 nýjum myndum í lokin:
hafið það gott..