Skírn..

hæhæ allir (ef það er þá einhver sem kíkir á þessa síðu ennþáWinking

þið verðið bara að afsaka alla letina á heimilinu.. engin færsla komið í margar vikur! en núna verður tekið á þessu máli!

Við höfum haft það alveg rosalega gott og litlan er alltaf jafn mikill draumur.. sefur bara og drekkur, er að vísu búin að vera pínu illt í maganum á kvöldin en ekki þannig að hún sofi ekki á nóttunni.. ég held að hún sé bara soldið lík mömmu sinni - finnst voða gott að sofa Laugh Barnaskólinn Hjallastefnunnar sem Salka var í frá því í lok mars er búinn og nú er sumarskóli tekinn við og það er alveg svakalega gaman hjá þeim. Þetta er bara eins og eitt risastórt leikja og íþróttanámskeið.. Salka er alla vega mjög ánægð með þetta og mamman er alveg í vandræðum með það hvort Salka eigi að fara í eitthvað frí í sumar.. þetta er bara of skemmtilegt!
Henning er byrjaður að vinna í Landsbankanum og líkar bara betur og betur með hverjum deginum.. Hann er nú samt ekki viss um að þetta sé framtíðarstarf fyrir hann..

Við skírðum litluna í gær, á 25 ára brúðkaupsafmæli Fríðu og Úlfars og uppljóstruðum við þá nafni litlunnar sem hafði verið leyndarmál síðan hún var nokkurra daga gömul og fékk hún nafnið KOLKA!!! Fallegt nafn á fallega stelpu..
kolka

En hvað er að frétta af ykkur öllum? hvar eruð þið, stærðfræðistrákar? á ekkert að hittast í hádegismat á Hróa í sumar???

Annars bið ég ykkur bara vel að lifa.
þar til næst,
Emma, Henning, Salka og Kolka
|