alveg að koma

þá er loksins komið að því, við Kolka erum að koma til íslands.. vei vei vei.. við (aðallega ég) erum búnar að bíða eftir þessu svoooo lengi og erum búnar að hlakka svooo mikið til að við höfum ekki sofið almennilega í meira en viku (aftur aðallega ég).. Við ákváðum að koma fyrr til íslands af því að við söknuðum Sölkunnar svo mikið og það voða gaman að geta fengið hana lánaða í sund og svona þó hún ætli að vera hjá pabba sínum þangað til í byrjun ágúst.. Kolka hefur labbað inní herbergið þeirra systra bent á rúmið hennar Sölku og sagt: "Ga-Ga" þannig að það er ekki bara ég sem sakna Sölku..

IMG_3907
það er svooo mikið stuð við matarborðið oft!

IMG_3908
þvílíkt fjör!

IMG_3923
Kolkan að borða ferskju (ófreskju)

IMG_3922
Einbeitt við þetta.. mmmmmmmm..

sjáumst bráðum..
Emman
|

sef svo illa!

sælinú..

ég hef verið að sofa hálf illa undanfarnar nætur, að miklu leyti út af hita en svo held ég að í undirmeðvitundinni sé það aðallega músagangur sem veldur þessum litla svefni og því að ég hrökkvi upp á næturnar og eigi erfitt með að sofna aftur enda yfirleitt með rosa hjartslátt eftir þessar glötuðu vakningar..
en svo má ég til með að segja ykkur frá því að í nótt þegar ég svaf eins og engill og hafði gert í alveg rúman klukkutíma, hrekk ég upp við það að Henning hafði sprottið upp í rúminu og er á hnjánum til fóta og klappar þvottinum sem ég hafði lagt svo snyrtilega frá mér (fyrir einhverjum dögum síðan) á borðið sem hægt er að rúlla yfir rúmið og ekki nóg með það að Henning er að klappa þvottinum heldur er hann að sussa líka svona eins og hann gerir þegar Kolka vaknar (gerist örsjaldan) um miðjar nætur. Þar sem Kolka er í öðru herbergi þá datt mér nú í hug að hann væri ekki að sussa á hana, heldur væri hann að sussa á mig, því ég auðvitað hrökk upp með andfælum, og hélt þá að hann hefði heyrt í mús og væri að reyna að finna hvar hún væri.. Þegar hugsunin "oó, oó, OÓÓÓ það er mús í herberginu!!" hafði farið allnokkrum sinnum í gegnum huga minn, ákvað ég að spyrja Henning hvað í ósköpunum gengi á og hvort hann hefði heyrt í mús (gleymið því ekki, kæru vinir að hann var að klappa þvottinum) og þá svarar hann sísvona: "Það er svona þegar maður þarf að tvöfalda uppskrift!" og ég auðvitað "WHAT??!! um hvað ertu að tala maður??" Þá lagðist hann aftur á koddann og sagði "sko, ef maður er með uppskrift sem er ..." og ég alveg: "já? er hvað?" og hann: "svona 500 gr hveiti ....... og restin eitthvað annað!!" og þá sagði ég: "ég skil, sneri mér á hina hliðina og reyndi að róa mig eftir þetta músa - False Alarm!

vona að ykkar nætur séu lausar við mýs..
kv. Emma
|

3 ár!

í dag, 3.júlí, eru 3 ár síðan við Henning giftum okkur.. það er alveg með ólíkindum hvað tíminn líður hratt.. mér finnst sko ekki eins og það séu 3 ár síðan þessar myndir voru teknar!

867-6755_IMG copy

867-6760_IMG copy

867-6781_IMG

868-6830_IMG_1

867-6762_IMG copy

868-6844_IMG

868-6882_IMG_1

868-6888_IMG_1

868-6889_IMG_1

Takk fyrir árin elsku Henning minn! hlakka til næstu ára og áratuga!!
Ég elska þig!
- Emma

|