Jan 2008
Nýi bíllinn..
29/01/08 09:01
Daginn eftir að Henning fór til USU fékk ég nýja bílinn okkar afhentan,
þvílík glæsikerra og bara frábær bíll í alla
staði.. Hann hefur staðið sig með eindæmum vel í
þessum brjálaða snjó sem hefur verið hér síðan
Henning fór enda flokkast hann alveg örugglega
undir velútbúna bíla - með spoiler, krómstút,
filmum og rafmagni í rúðum, útvarpsfjarstýringu
í stýrinu og fullt af loftpúðum
Þegar kagginn var 10 daga gamall (í gær) hafði ég aldrei þurft að setja á hann bensín og hafði ekki þrifið hann að utan en það var nú samt KLESST á hann! ojjj hvað ég var sár.. Þetta var nú enginn agalegur árekstur, ég var bara óheppin að vera þar sem ég var því það voru tveir aðrir bílar sem lentu í árekstrinum og annar þeirra skaust svo á minn bíl og braut stuðarann og beyglaði númerið að framan.. En það verður bara lagað og þá verður kagginn aftur eins og nýr..
Enginn slasaðist í þessum árekstri - sem er auðvitað fyrir öllu!
-Emman

|
Beinagrindargliðnun!
19/01/08 00:11
Grindargliðnun er sko ekki eitthvað sem herjar á
mjaðmagrindina á meðgöngum, alla vega ekki í mínu
tilviki.. mig grunar nefnilega að ég sé með
Beinagrindargliðnun.. Seinnipartinn í dag byrjaði ég
að fá einhverja furðulega verki í brjóstkassann
þannig að það var voða vont að draga andann djúpt inn
og svo fæ ég líka verki þegar ég halla mér fram og
við hinar ýmsu hreyfingar.. Frekar óþægilegt og
pirrandi aðallega..
ég vona bara að barnið sé ekki orðið það stórt að það sé farið að troða sér upp í brjóstkassa.. Ætli það haldi að það sé betra að komast út upp um munninn? hmm..
- Emman