Jan 2007
yndislegi Craig-inn okkar..
29/01/07 16:39
Loksins er farið að hlýna.. það er -4 núna og manni
finnst það bara hlýtt og gott.. fyrir 3 dögum var -
16 stiga kuldi þegar við fórum á starbucks.
.
Svona var Kolka þegar við komum inn.. með rauðan nebba og kinnar..
Henning keppti á klifurmóti á laugardaginn. Við fórum öll og vorum klappstýrur en ekki virðist það hafa virkað því honum gekk ekkert allt of vel og er hálfmeiddur í olnboga (sennilega of mikil áreynsla þar sem hann fór að klifra á fimmtudeginum líka).. En klifurmótið var í stærsta klifurhúsinu hér í Ameríku og við erum að tala um það að það er SVIMANDI hátt!!
Nú erum við að byrja að pakka niður í töskurnar og ég held bara að við verðum með alveg fullt af dóti.. ég sem ætlaði að fara bara með eina tösku enda þarf ég nú ekki mörg föt til skiptanna fyrir 3 sólarhringa.. En við erum að ferja eitt og annað til landsins.. en það reddast..
Annars er bara allt gott að frétta héðan.. við erum búin að finna okkur nýtt áhugamál (ef áhugamál má kalla).. það er hann Craig Ferguson sem er með The Late Late Show hér í Ameríkunni.. hann er alveg hryllilega fyndinn og gerir svo óspart grín að Ameríkönum - sem er okkur alveg að skapi
þið getið kíkt á hann á youtube.com, þið skrifið bara
nafnið hans í leitina og þá birtast allnokkur
uppistönd
hafið það gott (og sendið mér email!! - ég virðist ekki vera í náðinni hjá fólki.. ég bara fæ enga pósta!)
kv. Emma

|
aðeins vika!
25/01/07 15:13
nú eru bara 7 dagar í það að við Henning leggjum af
stað til Íslands.. og það er nú bara orðið þannig að
ég er hætt að sofa.. er orðin svo spennt og
upptjúnnuð á kvöldin að ég get varla sofnað.. "í
hverju á ég að vera á leiðinni? hvað ætla ég að taka
með mér? í hverju á ég að vera í partýinu? hvenær á
ég að fara í mollið og kaupa það sem ég ætla að kaupa
áður en ég fer? hvenær á ég að hitta þennan og hinn?"
og svona eitt og annað sem poppar upp í hausinn á
kvöldin..
Annars gengur lífið sinn vanagang hér á Transit.. Salka og Henning fara í skólann á morgnana og ég, Kolka og Úlfar förum í göngutúr í stæfræ húsið, pikkum Hensa upp og förum á Starbucks og fáum okkur þrefalda Grande Mokka.. og löbbum svo heim á leið.. Kolka sofnar nú alltaf á leiðinni heim og neitar svo að fara að sofa fyrr en rétt fyrir hádegið..

Svona er maður duglegur að standa!! Soldið skítug á þriðju myndinni.. (hún er það nú á öllum en það sést best á 3ju
)
jæja.. ég verð að fara að sturta mig og gera mig sæta, er að fara að hitta Conni í hádegismat á Kebab og Karrý..
hafið það gott..
-Emma

Meistari í stæ og klifri
21/01/07 21:51
hæhæ allir (ef einhver)..
Meistari Henning keppti í klifurmóti um síðstu helgi og lenti í 1.sæti í Intermediate flokk!!! vei vei vei.. svo duglegur kallinn! Hann var að athuga í hvaða sæti hann er OverAll í Rhode Island og þar reynist hann vera í 5.sæti.. kannski ætti hann bara að gerast pró klifrari??
Við erum farin að fara á Starbucks á hverjum morgni.. Emman kemst bara ekki í gang nema fá smá Kaffi Mokka! Voða gott að fá sér heitt kaffi á köldum dögum og verða alveg hyper!! íbúðin er alla vega búin að vera nokkuð hrein og fín undanfarið
Úlfar ætlar að koma til okkar á morgun og undirbúa fyrir pössunina miklu!! það verður alveg svakalega gaman að sjá hann aftur.. Veit ekki alveg hvort hún Willoughby (villóbí
) á neðri hæðinni hafi saknað hans
jafn mikið.. Úlfar hafði alla vega smá áhyggjur
af því síðast að hann væri alltaf að vekja hana
og hundinn hennar með umganginum í sér á
kvöldin..
Kolka stóð upp í fyrsta skiptið í gær hjá Conni og Joe - rosa dugleg.. og svo gerði hún það bara aftur og aftur en hefur ekki enn tekist það hér heima.. en hún reynir og reynir..
set inn ný myndbönd fyrir ykkur að kíkja á.. munið að sýna þolinmæði þegar þau hlaðast inn á tölvuna ykkar og það kemur allt með kalda vatninu!
hafið það gott..
Emman
Meistari Henning keppti í klifurmóti um síðstu helgi og lenti í 1.sæti í Intermediate flokk!!! vei vei vei.. svo duglegur kallinn! Hann var að athuga í hvaða sæti hann er OverAll í Rhode Island og þar reynist hann vera í 5.sæti.. kannski ætti hann bara að gerast pró klifrari??
Við erum farin að fara á Starbucks á hverjum morgni.. Emman kemst bara ekki í gang nema fá smá Kaffi Mokka! Voða gott að fá sér heitt kaffi á köldum dögum og verða alveg hyper!! íbúðin er alla vega búin að vera nokkuð hrein og fín undanfarið
Úlfar ætlar að koma til okkar á morgun og undirbúa fyrir pössunina miklu!! það verður alveg svakalega gaman að sjá hann aftur.. Veit ekki alveg hvort hún Willoughby (villóbí
Kolka stóð upp í fyrsta skiptið í gær hjá Conni og Joe - rosa dugleg.. og svo gerði hún það bara aftur og aftur en hefur ekki enn tekist það hér heima.. en hún reynir og reynir..
set inn ný myndbönd fyrir ykkur að kíkja á.. munið að sýna þolinmæði þegar þau hlaðast inn á tölvuna ykkar og það kemur allt með kalda vatninu!
hafið það gott..
Emman
ný færsla!
18/01/07 15:41
Kolka í fína snjógallanum sínum sem hún fékk í jólagjöf!
soldið erfitt að hreyfa sig í honum
jæja.. þá er nú löngu kominn tími á nýja færslu!! en það er nú bara þannig að ég er komin með mína eigin tölvu og þetta forrit (til að blogga) er ekki á minni tölvu og það er víst soldið vesen að setja það inn hjá mér.. myndaalbúmin eru (á einhvern dularfullan hátt) tengd í iPhoto á Henningstölvu og það fer allt í steik ef við flytjum þetta á mína tölvu eða eitthvað svoleiðis.. þannig að ég verð bara að nota Hensatölvu ef ég ætla að blogga..
hér er alveg viðbjóðslega kalt.. -10 í gærmorgun og -8 í morgun.. en það á víst að fara að hlýna þannig að ég get tekið gleði mína á ný
Við höfðum það rosalega gott um jólin og fengum rosa margar fallegar gjafir, borðuðum góðan mat og skelltum okkur til New York yfir áramótin.. Eins og flestir vita þá voru Fríða og Úlfar hjá okkur um jólin og sem betur fer bara.. Við söknum þeirra ennþá.. rosalega gott og gaman að hafa þau hér..
Kolka er nú farin að skríða og er ekki hægt að líta af henni eitt augnablik því þá er hún farin að fikta í blómunum sem Conni og Joe eiga og eru hér í pössun nú eða kapalafruglaranum - sem henni finnst rosa spennó! Hún er komin með 6 tennur og er ekki ósvipuð Goofy !!!
Salka byrjaði svo aftur í skólanum 2.janúar og skemmtir sér mjög vel.. er rosalega kát að fara á morgnana og gengur mjög vel að lesa.. hún fær bók til að lesa heima um helgar en svo er hún komin með nokkur orð núna sem hún á að æfa sig á á hverjum degi..
Við Henning erum svo að fara í örstutta Íslandsheimsókn fyrstu helgina í febrúar.. og svo komum við stelpurnar að morgni 10.mars og verðum þangað til í lok mars.. Henning kemur aðeins seinna.. hann er ekki alveg búinn að ákveða hvaða dag ennþá!
jæja Kolka er vöknuð og farin að spjalla uppi í rúmi.. best að fara að tala við hana!