sörprææææssss!!!

jæja.. þá er bara kominn mánudagur aftur! Voðalega ætlar þetta að líða hratt..

En ég gleymdi auðvitað að segja ykkur að núna er ég farin að fara í mæðraskoðun á tveggja vikna fresti, þannig að ég fer næst þann 9.febrúar..

Annars gengur bara allt ágætlega, við erum búin að vera heila viku að taka til í herberginu hennar Sölku - það er ótrúlegt hvað barnið á mikið af dóti (og drasli)!! Vonandi klárast það samt í dag.. Salka var alla vega voðalega dugleg í gær að þurrka úr hillunum undir rúminu sínu í gær þannig að það er hægt að skella vel flokkuðu dóti þangað í dag..

Í gær var ég að fara að versla með Conni (eða það hélt ég) en svo þurftum við aðeins að koma við hjá Jessicu og þá var bara Sörpræs Baby Shower fyrir mig!! Voðalega gaman og alveg hryllilega Amerískt Laugh En það var nú í lagi! Þetta voru sem sagt stelpurnar úr stærðfræðinni og tvær af skrifstofukonunum! og við fengum voðalega fínt fyrir barnið: samfellur, náttgalla, tappi til að vefja barnið inn í, dúkku, föt (kjól, buxur og hatt), blautþurrku-vermi (allt til í Ameríku) og inneign í Pottery Barn Kids!

Þegar ég kom heim í gær eftir Baby Shower-ið fórum við út að hjóla, Salka að hjóla (hjálparadekkjalaus), Henning hlaupandi á eftir henni að reyna að passa að hún detti ekki og slasi sig og ég lallandi einhvers staðar lengst fyrir aftan á mínum óléttu hraða!

Þegar við komum heim eftir hjólatúrinn fórum við að taka til og Henning að gera skatta og svo var eldað hakk og spagettí og eftir matinn var barnið baðað og Conni og Joe komu svo að spila! Voða gaman!!

En í dag kemur hann Úlfar til okkar, það verður nú gaman að fá hann í heimsókn.. Verst að það eru ekki tveggja nátta stopp í Boston!

jæja.. er þetta ekki orðið ágætt??

Hafið það sem allra best þar til næst og ég minni á BUMBUmyndir í janúar 2006 albúminu hér til hliðar!

ykkar Emma

ps. Hvernig fisk á ég að elda í dag??
--- og hugsið vel til okkar á morgun þegar við förum í heimsókn í Gordon skóla
|

vikan okkar..

sæl verið þið öll saman!

þá er allt að komast í rétt ról hér á bæ, Henning byrjaður í skólanum og er í skólanum alla daga!! Salka er búin að vera að skoða skóla og er sem sagt búin að skoða 3 skóla í þessari viku.. Á mánudaginn fór hún í Wheeler skóla og á þriðjudaginn fór hún í Moses Brown skóla og svo í dag fór hún í heimsókn í Lincoln skóla sem er stelpnaskóli.. Sölku fannst rosalega gaman í dag í skólaheimsókninni og fannst leiktækin á skólalóðinni alveg æði! í næstu viku förum við öll í heimsókn í Gordon skóla og þá erum við búin að skoða alla skólana sem við erum að sækja um.. þá er bara að bíða og vona að Salka komist inn í einhvern skólann!

Henning er búinn að vera hálf slappur núna í 3 daga en við vonum að hann nái að sleppa við að verða alveg veikur!

við fórum í mæðraskoðun í gær og allt fínt að frétta þar á bæ, blóðþrýstingur alveg eðlilegur en ég var auðvitað búin að þyngjast svo um munaði heilli meðgöngu en ljósmóðirin sagði að ég væri "healthy looking" svo hún þyrfti ekkert að setja út á þyngdaraukninguna! og svo mældi hún legbotninn (sem fylgir venjulega vikufjöldanum) og hann var 30 cm og ég bara komin tæpar 27 vikur!! og þá kom ljósmóðirin með þá skýringu að þetta yrði sennilega stórt barn (og ég sem setti markið á 16 merkur!)

í dag fórum við Henning í foreldraviðtal í leikskólann hennar Sölku og auðvitað var ekki sagt nema bara gott um þessa prinsessu en við þurfum að vera duglega að æfa hana í að lesa og skrifa - hún hefur misst svolítið mikið úr við þessar löngu Íslandsheimsóknir!!

Hjalti bróðir minn náði bóklega bílprófinu í dag og mun því væntanlega fara að aka um götur borgarinnar á næstu dögum (og við viljum bara biðja ykkur hin að hafa varann á, hehheheeheh)
og svo á hún móðir mín, Kristín, afmæli á morgun en það er ekkert stórafmæli þar sem hún verður 27, 34 eða 36 ára.. er það ekki? Laugh

En hvað er fleira að frétta..
jú.. við elduðum steiktan fisk í gær (það telst til tíðinda) og hann var bara mjög góður (kom alveg á óvart) og svo á morgun ætlum við að baka köku (gulrótarköku) í tilefni afmæli ömmunnar! (við erum svooo góðWinking

og svona í blálokin þá langar mig að benda ykkur á þetta - þetta er nebbla mjög skemmtilegt og ávanabindandi!! þarna á maður að finna út hvað stafirnir þýða og skrifa það í dálkinn við hliðina á dæminu.. Munið bara að skrifa með hástöfum (stórum stöfum)! Góða skemmtun!

Hafið (bláa hafið?) það rosa gott og endilega verið dugleg að kommenta!
ykkar Emma og Tröllalý

ps. lítill fugl hvíslaði að mér að það væru einstaklega ódýr flug núna til Boston! kíkið á það!
og jú það fara að koma nýjar bumbumyndir!! Laugh
|

komin heim til Ameríku

hæhæ allir saman!!

Hvað segið þið þá? Við segjum bara allt það besta, komin heim til Ameríku!!

Við lögðum af stað frá Íslandi í gær og það síðasta sem við gerðum var að skjóta upp einum flugeld sem hafði orðið eftir í fyrra eða hittífyrra og vakti það mikla lukku viðstaddra! Þegar við komum í Keflavík komumst við að því að laugardagar eru sko réttu dagarnir til þess að ferðast - bara eitt flug til Ameríku og engar raðir og allt hálf tómt! Salka sofnaði ekkert í flugvélinni og ekki Henning heldur en ég (yfirsvefnpurkan) náði að dorma aðeins fyrir matinn.. Þegar tveir tímar voru eftir af fluginu var ég farin að bólgna ansi mikið og ég hafði alveg steingleymt því hvað ég finn fyrir súrefnisleysinu í flugvélum.. þannig að ég gat ekkert hvílt mig seinnihluta ferðalagsins - en ég verð bara dugleg að drekka vatnslosandi næstu daga og losna við bjúginn á Nótæm!

Conni og Joe sóttu okkur á flugvöllinn á okkar bíl og dótið var bara eins og sniðið í bílinn - ekkert brjálað vesen að koma þessu öllu fyrir (við vorum með mjöööög mikinn farangur) og svo þegar heim var komið pöntuðum við okkur pítsu og sátum mjög þögul og föl af svefnleysi og svo var bara hoppað upp í rúm og sofið á sínu græna eyra þangað til Eldsnemma í morgun!

í dag ætlum við að fara í búðir (alla vega matvörubúðWinking og pakka upp úr töskum og gera heimilislegt aftur!

Hafið það gott!

Ykkar Emma

ps. í þessari viku fer Salka að skoða 3 skóla sem við erum búin að sækja um fyrir hana og við vonum að það gangi vel og þið megið endilega hugsa vel til okkar! Laugh
|

Grænt sjálflýsandi svín!

Maður verður frekar hissa þegar maður rekst á svona fyrirsagnir á mbl.is: Grænt og sjálflýsandi svín. En þetta er greinilega í tísku þessa dagana, að erfðabreyta dýrum í eitthvað svakalega sniðugt. Án efa hafa sveppatýnslumenn orðið himinlifandi yfir þessum fréttum því svín eru notuð til þess að þefa uppi sveppi og nú má fara í sveppaleiðangra á nóttunni, meira að segja án vasaljóss. Þó verður maður að passa sig að verða ekki viðskila við svínið sitt. Þessa hugmynd má síðan útfæra á önnur dýr. Til dæmis mætti búa til sjálflýsandi gíraffa sem gætu komið í stað ljósastaura. Einnig væri sniðugt að gera glæpamenn sjálflýsandi svo þeir eigi erfiðara með að fela sig í myrkri og læðast um í skúmaskotum.
|

Stærðfræði í daglega lífinu

Stærðfræðingar vilja meina að það sé öllum þarft að læra stærðfræði meðan aðrir kvarta yfir því að stærðfræði komi að litlu gagni í daglega lífinu. Þessu þarf að breyta. Því legg ég til að við förum að breyta daglegu máli þannig að það innihaldi tilvísanir í stærðfræði. Til dæmis ef ég er spurður: "Hvað ertu gamall"? þá gæti ég svarað: "Ég er n ára, þar sem n leysir jöfnuna 3n-2=70". Þetta má líka heimfæra á aðrar fræðigreinar, til dæmis ef ég væri efnafræðinörd gæti ég svarað með "Ég er n ára þar sem n er fjöldi róteinda í Kryptoni mínus 12". Eða ef ég væri sögunörd þá gæti ég svarað: "Ég er n ára þar sem n er ártalið þegar Herod hinn mikli dó plús 20". Eins og þið sjáið eru möguleikarnir endalausir! Svo er spurningin: Hvað er ég gamall!
|