langar að sofa alla helgina..

vá ég held ég hafi í alvörunni aldrei verið svona þreytt!! svaf voða illa í nótt og hef ekki haft tækifæri til að leggja mig í dag.. úff pjúff.. erfitt að vera vera ég, ég veit! ég er svo að fara út að borða í kvöld og ætla bara rétt að vona að ég sofna ekki ofan í diskinn minn..
- Emman ofurþreytta..
|

svooo upptekin alltaf hreint!

hvaaa.. bara langt síðan ég bloggaði! hvurslags eiginlega leti er þetta!?

Mér finnst ég vera svo upptekin þessa dagana að það hálfa væri nóg.. það er ekki þar með sagt að það sé mikið að gera, heldur er ég vön að hafa ekkert og þurfa ekkert að gera.. Mér finnst ég sem sagt vera fullt upptekin þegar ég þarf að fara 2x í viku í sjúkraþjálfun og nálastungur á 2ja vikna fresti.. Held ég þurfi að fara að gera eitthvað reglulega - annars veit ég ekki hvernig þetta fer þegar ég byrja aftur í skóla, hvað þá vinnu!

Svefnstöðunum (ss, hvernig ég ligg, ekki hvar) fer ört fækkandi.. var með tvær, á hægri hliðinni og svo á vinstri en undanfarnar nætur hef ég ekki getað legið á vinstri hliðinni vegna verkja efst í lærinu/grindinni... en sjúkraþjálfarinn reyndi að taka á því í morgun og skellti mér í leyser!!

Salka er byrjuð aftur í skólanum eftir vetrarfríið og það er ekkert verið að byrja auðveldlega, hún er nefnilega byrjuð í skólasundi núna og verður í því 4 sinnum í viku eftir skóla í 4 vikur! úff pjúff.. blessað barnið! það á ekki að láta hana hlaupa í spik, hún er 3 klst á viku í fimleikum, 1 klst á viku í klifri, 2 klst á viku í leikfimi og núna 4 klst á viku í sundi.. þetta gera 10 klst á viku í hreyfingu, geri aðrir betur! Ætli hún verði ekki svo gjörsamlega búin á því um helgina að hún eigi bara eftir að sofa til hádegis!

Kolkan er mætt aftur í leikskólann, er að klára pensilínskammtinn og er bara nokkuð hress.. Ennþá kvefuð en hver er það ekki?! Happy Henni finnst ennþá soldið erfitt að fara í leikskólann á morgnana en um leið og foreldrarnir eru farnið úr augsýn hættir hún að kvarta og leikur kát við stelpurnar allan daginn! Er svo voða glöð þegar við sækjum hana!

jæja.. ætla að skakklappast inn á bað og reyna að gera mig sæta því Bryndís er að koma og sækja mig og ætlar að viðra mig í hádeginu! Happy
knús og kossar á liðið!
Emman ó svo upptekna!
|

Viðhengið gefur mér Grindverk!

sælinú..
núna get ég ekki sofið fyrir grindverk (verkir í grind og lífbeini) og engin stelling nógu góð - enda bara tvær sem ég má vera í, á hægri hliðinni eða vinstri hliðinni.. Ég er með svo marga kodda í rúminu (til þess að styðja við hina ýmsu líkamsparta) að það er varla pláss fyrir Henning við hliðina á mér..
Nóttin í nótt er ein af þessum verstu nóttum þar sem ég er svo kvalin að ég vakna við sársaukann í hvert sinn sem ég hreyfi mig (og já, ég er ekki að ýkja, því miður). En ég á sem betur fer tíma hjá lækninum í fyrramálið og svo er hún elskuleg móðir mín búin að bjóða mér í nálastungur seinna í dag! ég er ekki frá því að ég sé hálf smeyk við að fara í nálastungur, það hljómar, af einhverju dularfullum ástæðum, ekkert sérlega þægilegt! En hvað gerir maður ekki til þess að losna við þetta Grindverk sem ég fékk með Viðhenginu!

þetta er áttunda bloggið mitt í febrúar og meirihlutinn af því er kvart og kvein - en það er svo agalega gott að geta kvartað hér því þá er ég ekki að kvarta við mína nánustu á meðan.. Mig grunar nefnilega að þeir (nánustu) séu orðnir frekar þreyttir á mér og ég pirruð á því að þeir skilji ekki hverju viðbjóðslega sárt þetta er..

en yfir í annað, hún Kolka litla er ennþá með hor og svaka hósta.. Hún fær alveg hræðileg hóstaköst þegar hún sefur en það virðist ekki trufla hana jafn mikið og okkur.. Við fórum með hana til læknis í fyrradag (mánudag) og hún fékk pensilin enda búin að vera kvefuð í 10 daga og engin merki um bata. Hún var líka með smá roða í eyrunum en lungun hrein og fín.. Nú vonum við bara að hún fari að hressast!!

Salkan er svo í vetrarfríi þessa vikuna en fer í eitthvert svakalegt stuðpartý í kirkjuna á eftir kl 9.. Þar verður hópur af 6-9 ára krökkum í leikjum, fræðslu, tónlist og bíói og í hádeginu fær hún pylsu og safa - alvöru partý bara!

hafið það gott,
Grindverka-Emma
|

ekki skánar það

ég vaknaði alveg ferlega slæm af grindverkjum (verkir í grind og lífbeini) í morgun og fannst alveg frábært að hugsa til þess að ég ætti tíma í nuddi eftir hádegið en þegar ég var að fara í nuddið þurfti ég að stíga yfir poll og upp á gangstéttina (yfir snjóhrygg sem hfjbær hafði búið til á götunni) og ég hlýt að hafa tekið of stórt skref eða eitthvað því ég hélt ég myndi ekki hafa það af upp að dyrunum sökum sársauka! ááááiiiiii... Þetta var alveg svakalega sársaukafullt og núna er ég með stöðugan verk - kannski svolítið eins og sviða/bruna tilfinningu í lífbeininu, meira að segja þegar ég sit.. ég sem hafði alltaf getið setið grafkyrr og verkjalaus í smástund..

Það verður fróðlegt að sjá hvað Ljósan segir á mánudaginn.. og svo er ég líka búin að panta mér tíma hjá heimilislækninum í næstu viku og vona að hún geti gert eitthvað fyrir mig..

Mjólkurvöru - og rauðs kjöts bindindið virðist ekki vera að hafa þau svakalegu áhrif sem ég var að vonast eftir.. en við gefum þessu nú sjens fram á mánudag (og þá verður sko keyptur ÍS)

vona að þið hafið það gott í þessu brjálaða veðri!!
knús og kossar,
Emma fatlafól!
|

hvar er jó-jó-ið?

Hvar fela jó-jó sig? þetta blessaða jó-jó er búið að vera fyrir mér og bögga mig í marga daga, því þegar Salka er með jó-jó-ið getur hún ekki gert nokkurn skapaðan hlut og ég þarf að biðja hana um að gera hlutina ca 20 sinnum oftar en venjulega (og ég þarf yfirleitt að biðja nokkrum sinnum!) .. En á morgun verður Öskudegi og Dótadegi slegið saman í skólanum hennar og hana langaði að fara með blessaða jó-jó-ið í skólann en neiiiii þá finnst ekki jó-jó-ið.. Bara týpískt!
Ef þið hafið komið í heimsókn til mín og séð Jó-jó á einhverjum skrítnum stað endilega látið mig vita med det samme!!
-Emma
|

Saltkjöt og baunir, Nei takk!

þá er bara kominn sprengidagur.. en ég held ég sleppi saltkjötinu í ár og ég er meira að segja með 2 ástæður fyrir því..
nr 1: ég tók út sprengidaginn í gær ásamt bolludeginum og borðaði yfir mig af Pabbabollum sem eru auðvitað þær allra bestu í heimininum!
nr 2: ég er frekar mikið ólétt og farin að safna bjúg þannig að það er æskilegt að sleppa saltkjötinu..
nr 3: ég er komin í vikupásu frá mjólkurvörum og rauðu kjöti.. Einhver ljósmóðir vill meina að maður lagist af grindargliðnun sleppi maður þessu þannig að ég ætla að prufa..

Kolkan er ennþá lasin og liggur núna sofandi í rúminu, og hrýtur sökum nebbastíflu.. greyins..

Henningurinn kemur svo bara heim í fyrramálið, ég trúi því bara varla að það sé komið að þessu enda búin að bíða eftir þessum degi í 3 vikur og aldrei hefur tíminn verið svona svakalega lengi að líða!

hafið það gott,
Emman
|

Helgin..

hæ hó.. (og vá hvað ég er hryllilega dugleg að blogga!

ég var s.s. svaka húsmóðurleg á föstudagskvöldið og skellti í eina köku.. Enda átti ég von á gestum morguninn eftir og gat nú ekki bara boðið uppá aðkeypt efni Laugh

Álftanesstelpurnar komu ss á laugardagsmorguninn með börnin sín (eiginlega bara smá hluta af börnunum) og það var rosalega gaman að hittast og leyfa börnunum að hittast þó Kolka væri ferlega kvefuð.. ég reyndi að ná mynd af börnunum en það gekk nú ekki sérlega vel..

IMG_5077
Gekk þokkalega á meðan börnin voru bara 4 Happy en ekki svo vel eftir það Happy hérna fyrir ofan eru Alex og Kara (Ólafarbörn), Kolka og Sara Rún (Dagbjartarstelpa) - allir með kleinur og þeir allra gráðugustu með eplabita líka!

IMG_5087
Hérna eru svo fullt af börnum sem fæddust árið 2006. Kolka, Salome, Eva María, Kara Margrét, Sara Rún og Björgólfur Bersi.

Kolka er ennþá ferlega kvefuð og sefur frekar illa á nóttunni, vaknar á 2ja tíma fresti en nóttin í nótt var nú samt betri en gærnóttin sem var eiginlega bara hryllingur! Það er hætt að leka úr nefinu á Kolku en hún er alveg svakalega stífluð og á mjög bágt með að borða og sofa með snuðið sitt sem hefur nú alltaf verið hennar aðal svefnmeðal. Við verðum ss heima á morgun líka en vonumst nú til að hún komist í leikskólann á þriðjudaginn..

Svo er minn elskulegi eiginmaður LOKSINS að koma heim á miðvikudagsmorguninn, íhaaaa! Hans hefur sko verið saknað sárt þessar 3 vikur sem hann er búinn að vera í burtu og ég er farin að hallast að því að ég sé of mikið ein því mín aðalskemmtun er Útsvar (þáttur á Rúv) sem ég hlæ mig máttlausa yfir og hef heyrt frá öðrum að þeir séu nú ekki svo fyndnir! Laugh
Ég er nú hálf smeyk við að eiginmaðurinn eigi eftir að snúa við og forða sér þegar hann mætir mér í forstofunni á miðvikudagsmorguninn! Enda hver yrði nú ekki hálf hræddur að mæta svona hval eins og mér, sem er með svo mikinn bjúg að hann getur varla hreyft fingurna á morgnana!

IMG_0123
hvalurinn kominn 34 vikur!

-Emma bolla
|

ekki eins mikið ái núna..

ég er aðeins skárri í lífbeininu núna.. enda gat það nú bara ekki versnað!

Elskuleg tengdamóðir mín hjálpaði mér að taka til á heimlinu af því að ég á von á gestum í fyrramálið, nú ekki nema henni hafi blöskrað svona svakalega loðna gólfið Happy en neii ætli það..

á maður að fara skella í eina tertu eða hvað það er sem húsmæður gera á föstudagskvöldum?
Emma
|

ái ái ái..

Nóttin var frekar slæm, bæði var ég gjörsamlega að drepast í lífbeininu og hver bylta hræðilega sársaukafull og svo svaf hún Kolka voðalega illa, vaknaði margoft og var kvefuð.. Núna er hún aðallega þreytt og lúin eftir nóttina (eins og mamman) en ekki eins kvefuð og ég hélt hún væri en hún fékk að vera heima hjá mömmu sinni í dag og taka því rólega..

Ég er alltaf verst í grindinni eftir nóttina og í morgun gat ég varla gengið og langaði mest til þess að garga og góla við hvert skref.. En það þýðir lítið þegar maður er einstæður með tvo grísi sem þurfa mat, föt, nesti og hárgreiðslur..

Mér hefði aldrei dottið í hug að "grindargliðnun" (eða hvað þetta er sem ég er meðWinking gæti verið svona svakalega sársaukafullt. Þetta er margfalt verra en að fæða barn (sem ég hef gert 2x án verkjalyfja!) og ég er hrædd um að ef lífbeinið fer ekki að hætta að láta svona við mig þá eigi þetta barn ekki eftir að fæðast á eðlilegan máta eða alla vega ekki án verkjalyfja!

Allar einstæðar óléttar konur sem eiga fleiri börn á heimilinu eiga hrós skilið! Ég hélt ég myndi alveg ráða við að vera ein með stelpurnar og ólétt í 3 vikur en ég sé núna að hef ofmetið mig ÖRLÍTIÐ! Þetta tekur hræðilega mikið á og ég held ég sofi í viku eftir að Henning kemur heim..

jæja.. ætla að setjast hjá Kolkunni og horfa á Báá (Bangsimon) þar sem ég get voða lítið annað gert í dag!
Emma
|