Feb 2007
systir Goofy??
28/02/07 16:48
er einhver sem er með krúttulegra bros??
tók þessa mynd núna áðan og stóðst bara ekki mátið.. varð að deila henni með ykkur..
-Emma
|
fyrsti alvöru snjórinn
27/02/07 15:38
hæhæ og hó..
loksins kom snjór.. og bara búið að snjóa smá í 2 daga!! haldið að það sé!!
Ég, Henning og Kolka fórum á
Starbucks í gærmorgun, og Kolka á snjóþotunni
sinni í fyrsta skiptið.. Henni virtist líka það
mjög vel en soldið erfitt að rugga svona fram og
til baka með engan stuðning við hausinn.. og svo
var ekki það mikill snjór - þannig að Henning
hélt á henni mestan hluta leiðarinnar

Snjóþotan hennar Kolku virðist ekki vera sérstaklega vel hönnuð.. í fyrsta lagi þá er bandið í henni allt of stutt og svo í öðru lagi þá mokast snjórinn bara undir snjóþotuna og situr fastur þar.. sem að vísu kemur sér vel þegar maður þarf að fara yfir götu sem er snjólaus

Við komum við í Brown garðinum og gerðum snjókall.. mest langaði mann að kasta sér í blautan snjóinn og gera engla en það hefði ekki verið gaman að labba heim í rennandi blautum gallabuxum.. Snjókallinn var líka ekki alveg þessi týpíski því ég var ekki með gulrót á mér í þetta skiptið.. þannig að hann fékk Penny fyrir augu, Dime fyrir nef og sígarettu í munninn
frekar svalur kall, hehe..

Kolka greyið á enga skó sem hún getur verið í úti í snjónum yfir ullarsokka þannig að hún fékk bara SippLokk poka utan yfir tvenna ullarsokka og var þá reddí tú gó! Kellurnar í stærðfræðihúsinu voru nú hálf hneikslaðar á þessu..
í morgun þegar við fórum á Starbucks þá var Kolka í kerrunni.. það er eiginlega betra þannig
nú er bara vika þangað til við stelpurnar leggjum í hann til Íslands.. vei vei vei.. og ekki nema 4 dagar þangað til pabbi kemur!! það verður rosalega gaman að sjá hann og auðvitað að koma til Íslands..
hafið það gott..

nýtt myndband..
22/02/07 15:50
hæhæ allir..
við fórum með Kolku til læknis í gær og eyrnabólgan er að fara.. og hún er orðin 76 cm og 9.6 kíló.. sprengir skalann hér í Ameríku en er einni kúrfu yfir meðaltali í þyngd og tveimur í lengd.. rosa fín bara..
ég setti inn nýtt myndband (undir myndbönd - smitandi hlátur) en það er soldið stórt þannig að þið verðið að gefa því tíma til að hlaðast inn.. en það er algjört möst að sjá það! það var tekið í byrjun janúar en myndavélin er búin að vera batteríslaus síðan þá.. en er nú komin í gagnið aftur..
hafið það gott..
kv. Emma

öppdeit..
20/02/07 14:43
góðan daginn allir saman..
þá er bara komið vor.. eða svona næstum því.. það á að vera hlýtt (+8 gráður) í dag og á morgun.. það finnst manni bara strandarveður miðað við það sem hefur verið undanfarnar vikur..
á miðvikudaginn síðasta var Valentínusardagurinn loksins.. Búið að vera skreytt með rauðu, bleiku, hjörtum og böngsum í öllum búðum síðan um áramótin!! og Salka söng á Valentínusarsöngskemmtun hjá 1. og 2. bekk í skólanum og auðvitað mættum við Henning rosa stolt með myndavélina.. ég bara höndla varla svona söngskemmtanir í skólanum hennar Sölku.. þær eru svo yndislegar að maður á erfitt með að halda aftur af tárunum! (mæli samt með því að þið reynið að koma alla vega einu sinni)
af því að það var Valentínusardagurinn þá máttu stelpurnar koma í rauðu, bleiku og hvítu í skólann og kjóllinn hennar Sölku vakti mikla athygli og var henni hrósað margoft af kennurum, starfsfólki, nemendum og öðrum foreldrum..
á fimmtudaginn fórum við svo með Kolku til læknis út af kvefinu og til að láta hlusta hana (búin að vera veik síðan á sunnudag) en ekkert heyrðist í lungunum - sem betur fer.. en hún var komin með eyrnabólgu greyið, út frá kvefinu og ég vona að þetta sé þá bara einstakt tilfelli en ekki krómísk eyrnabólga..
ég var heppin með Sölku.. hún var með svo svakalega eyrnabólgu þegar hún var eins árs að hún heyrði ekkert og fékk rör í eyrun en svo hefur hún aldrei fengið eyrnabólgu eftir það - 7, 9, 13!!
Kolka fékk uppáskrifað pensilín en þar sem við erum ekki með tryggingar hérna úti þá ákvað læknirinn bara að gefa okkur prufur af pensilíni svo við þyrftum ekki að borga heilan helling í apótekinu, þannig að við löbbuðum út með fulla skiptitöskuna af pensilín prufum
frekar furðulegt..
Kolka farin að gretta sig fyrir myndavélina..
frekar hissa þarna..
En já, Úlfar er farinn til íslands og hér er rosa tómlegt.. enginn til að kjafta við og enginn til að drekka Mokkað með mér á morgnana.. (Henning farinn í skólann).. Við hlökkum mikið til að fá Dóra afa í heimsókn, erum búin að komast að því að það verður bara einn dagur sem við eldum eitthvað á meðan hann er hér því við verðum auðvitað að fara á Wendy's og Pizza Hut með afann
(Salka hlakka mikið til!)
og já eitt enn, við stelpurnar komum fyrr heim en ætlað var sökum flugvélafylli.. við lendum sem sagt á miðvikudagsmorguninn 7.mars.. 3 dögum á undan áætlun! og Henning kemur svo að morgni 17.mars.. og við förum aftur 1.apríl.. (þá hýtur að vera komið vor hér í Ameríkunni!)
er þetta ekki orðið ágætt? jú ég held það bara..
ahh jú.. eitt enn.. við erum búin að flytja Kolku yfir í Sölku herbergi þannig að nú eru þær saman í herbergi.. við verðum bara að passa að Kolka fari að sofa á slaginu 8 svo hún sé sofnuð áður en Salka fer uppí því annars eru þær bara að spjalla.. En þessar tvær nætur sem þær hafa verið saman í herbergi hafa bara gengið rosalega vel..

2 glóðvolgar myndir!
13/02/07 19:30
breyttur maður..
13/02/07 15:55
ég held að Úlfar sé búinn að umgangast mig of mikið..
þegar við fórum í búðina í gær þá stakk ég hann af og
var að tína í körfuna og svo þegar ég finn hann aftur
þá stendur hann við kassana og er að skoða
slúðurblöðin!!!
ég vona bara að hún Fríða eigi eftir að þekkja manninn sinn aftur og fyrirgefi mér

hið venjulega tekið við aftur..
07/02/07 18:45
jæja.. þá erum við Henning komin aftur til Ameríku
eftir ossa stutta íslandsferð.. en það var alveg
rosalega gaman - en þegar maður stoppar bara í 3
sólarhringa þá getur maður ekki hitt alla sem maður
vildi hitta en sem betur fer þá komum við stelpurnar
aftur eftir 31 dag og stoppum þá í 3 vikur!!
Fríða og Úlfar pössuðu stelpurnar fyrir okkur á meðan við vorum á Íslandi - takk kærlega fyrir það! pössunin gekk víst rosa vel og ég held að þau hefðu helst viljað að við værum lengur í burtu..
Salka er búin að vera hálf lasin síðan í fyrradag, fór ekki í skólann á mánudag en fór í gær og var svo send heim eftir minna en klukkutíma en hún var svo bara eiturhress hér heima og fór í skólann í morgun enda mikil spenna fyrir fyrsta French Cooking tímanum sem er núna á eftir..
Kolka er komin með 7undu tönnina og sú 8unda fylgir fast á eftir
Núna er aðalsportið hjá Kolku að
standa upp og dansa.. hún hreyfir hausinn upp og
niður um leið og hún heyrir lag, alveg sama
hvort það er heilt lag eða bara í auglýsingum..
og ef hún stendur þegar hún heyrir lag þá dansar
hún standandi - voða krúttaralegt.. þegar hún
stendur í leikgrindinni er voða sport að beygja
hnén og klessa andlitinu við netið.. (sem er
auðvitað einstaklega skemmtilegt fyrir þann sem
er fyrir utan!)
Úlfar er búinn að vera að vinna í mótorhjólinu sínu hér síðan í desember og ég náði mynd af honum þar sem hann var að prufa það..
og svo kemur hér ein mynd af henni Sölku með svaka krullur..
hafið það rosalega gott..
kv. Emman