Feb 2006
gestir, gestir og fleiri gestir!!
28/02/06 19:19
sæl verið þið öll sömul!
Voðalega er langt síðan ég hef bloggað hér.. eða tókuð þið ekkert eftir því?? En fyrir þá sem hafa gaman að því að fylgjast með "fræga" fólkinu í útlöndum þá er ég að hugsa um að segja ykkur frá því merkilegasta sem hefur verið gert hér í Providence undanfarna daga og vikur..
Það er sko búið að vera mikið að gera hjá okkur undanfarna daga og þá aðallega í gestagangi - en það er nú alltaf svo svakalega gaman að fá heimsóknir frá Íslandi!
Fyrir tæpum tveimur vikum komu mamma mín og pabbi (Kristín og Dóri) í heimsókn og voru hjá okkur í 5 daga.. Það var alveg einstaklega gaman að sjá þau en á leiðinni heim frá Boston þá komumst við að því að pabbi kom með flensu með sér - og við sem vorum ný búin að sótthreinsa íbúðina út af lúsafaraldri.. En það var nú í lagi að hann hefði komið með þessa pest sína (hann fær sko alltaf flensu þegar hann pantar flug til okkar) því hann smitaði okkur ekki en greyið mamma - hún fékk flensuna..
Sem betur fer vorum við ekki með mikla dagskrá planaða, bara aðeins að kíkja í pepboys, sears (verkfæradeildina), aðeins að kíkja í Mollið og svo bara að hafa það notó heima í náttfötum, sem við gerðum mikið af.. Náttfatapartý á hverju kvöldi alveg.. Rosalega notó!
Við horfðum líka á úrslitin í Júróvísjón keppninni (íslensku) og vorum voðalega spennt yfir keppninni en vissum þó alveg að hún Silvía Nótt myndi vinna þetta - tremma í hel! Enda vissum við að hann Úlfar (tengdapabbi) myndi sjá til þess að hún fengi nægjanlega mörg stig til þess að vinna..
Við fórum með þau út að borða, á TGI Fridays, Bugaboo Creek og svo var auðvitað þetta venjulega smakkað: Pizza Hut og Wendy's!
Mamma og pabbi fóru svo á mánudegi og Fríða og Úlfar komu svo tveimur dögum seinna og það var alveg rosalega gaman að sjá þau líka..
Moll ferðirnar byrjuðu strax daginn eftir að þau komu og ég hef greinilega farið mér heldur geyst því um kvöldið var ég hálfómöguleg, með bólgna fætur, verki í baki og frekar mikla túrverki og þrýsting.. en það lagaðist um nóttina og ég gat því haldið áfram að hjálpa þeim Fríðu og Úlfari í leiðöngrum um búðir!
Við fórum í skemmtilegan bíltúr með Fríðu og Úlfari, skoðuðum strendur sem eru neðst í Rhode Island og höfðum mjög gaman að því en veðrið var nú ekki beint strandlegt, -7 gráður og vindur!! Enda kíktum við bara rétt svo út úr bílnum, fengum okkur frískt loft og inn aftur!
Af bumbubúanum er bara fínt að frétta, við fórum í skoðun í gærmorgun og eftir endalaust langa bið á biðstofunni og miklar pælingar okkar hjónanna hvað við gætum gert til þess að fá fljótari "afgreiðslu" (s.s. æla á gólfið, troða sér ofan í ruslatunnu, skera sig á púls og svona hitt og þetta), hittum við loksins lækninn sem sagði að blóðþrýstingurinn minn væri fínn, hjartsláttur Akkalý svakafínn og allt liti eðlilega út..
Núna eigum við bara eftir að fara í eina læknisheimsókn enn áður en við prinsessurnar í fjölskyldunni skellum okkur til Íslands!
Við höfum líka ákveðið að halda afmælið hennar Sölku aftur heima og fá Vísindagaura til þess að sjá um skemmtiatriðin.. það verður spennandi að sjá hvort börnin eða fullorðnir hafi meira gaman að því!
og já.. Conni og Joe eru að flytja inn til okkar í dag og við erum búin að vera rosalega dugleg að breyta og betrumbæta heimilið að undanförnu, komin hilla og lesljós inn í hjónaherbergið (takk Úlfar!) og núna er skrifborðið komið hjá bogaglugganum og þá getur maður þóst vera í tölvunni þegar maður er að njósna um nágrannana, hehe..
og já enn eitt enn.. Við erum degi á eftir áætlun hérna í Ameríku, við erum nebbla með bolludaginn í dag!
er þetta ekki orðið ágætt? Vona að þið hafið náð að lesa í gegnum þetta og endilega verið duglega að skilja eftir athugasemdir og ég lofa að setja inn myndir í dag eða á morgun, ok!
Bestu kveðjur,
Emma og Akkalý (31v3d)

|
Tapaði "coolinu"...
17/02/06 23:10
... eða eins og það er á kórréttri íslensku: "Týndi
svölunni." Ég var sem sagt að kenna Math 10 og taldi mig vera búinn
að leggja á minnið nöfn allra í tímanum. Eins og
venjulega er könnun í lok hvers tíma úr efni
vikunnar og því sagði ég að þau myndu öll fá 10
á könnuninni ef ég gæti ekki þulið upp nöfnin á
þeim öllum. Síðan ruglaðist ég auðvitað á fjórða
nemandanum, kallaði hana Christine í stað
Kaitlyn, og þar fór könnunin! Ég þarf því
einhvern veginn að útskýra fyrir þeim sem er yfir mér í
goggunarröðinni í kennslunni af hverju allir
fengu fullt hús stiga á könnuninni! Það ætti
hinsvegar að vera auðvelt þar sem ég gaf honum
brennivínsfleyg um jólin...
Salka heldur áfram að sýna listir sínar!
14/02/06 04:12
Það snjóaði einhver ósköp á okkur hérna á
austurströndinni og um 2.000 flugum (fiskiflugum?
býflugum?) var frestað vegna snjóþyngsla. Ég og Salka
ákváðum því að skella okkur á bretti hér á götum
Providence og var það feikna fjör. Ég dró hana upp
Thayer Street og í Brown garðinn þar sem hún renndi
sér af mikilli list og síðan renndi hún sér heim
aftur. Það horfðu margir á okkur með stórum augum -
sérstaklega þeir sem sátu í bílunum sem við mættum!
Við settum saman myndband af ævintýrinu og það má
finna hér á hægri hönd.
Salka að dansa ballet!
12/02/06 06:50
Hér á hægri hönd má smella á "Myndbönd" og þar er
hægt að sjá Sölku dansa ballet af mikilli snilld.
Mæli eindregið með því að þið kíkið á dömuna. Héðan
er annars allt gott að frétta: Salka er alltaf að
verða betri og betri að hjóla, bumbubúinn okkar
stækkar og stækkar og það er loksins byrjað að snjóa.
Það var meira að segja gefin út viðvörun vegna
mikilla snjóþyngsla en við vitum nú öll hversu
móðursjúkir Bandaríkjamenn eru! Annað hef ég bara
ekki að segja nema það að ég rakst á snilldar
sýnishorn úr myndinni Nacho Libre, sem ég mæli með að
allir kíki á, þó sérstaklega þeir sem hafa gaman
af Jack Black.
Salka að hjóla og ýmislegt!
09/02/06 05:50
Eins og glöggir taka eftir þá má sjá hér til hliðar
"Myndbönd" og þar má einmitt sjá myndskeið af Sölku
hjólandi! Hún er búin að vera rosalega dugleg að æfa
sig að hjóla eftir að annað hjálpardekkið skaust af
þegar við klesstum á kannt á Thayer Street. Daginn
eftir tókum við síðan hitt hjálpardekkið af og "the
rest is history" eins og þeir segja hérna í landi
hinna frjálsu og stoltu. Endilega kíkið á dömuna
spreyta sig á hjólinu. Annars er héðan allt gott að
frétta, hitinn loksins dottinn niður fyrir frostmark
og við farin að vonast eftir snjó! Síðustu helgi þá
fór ég í leiðangur með þremur úr stærðfræðideildinni
upp til Mt. Snow í Vermont sem var mikil
snilld! Var með alveg hrikalegar harðsperrur
eftir en það var nú samt þess virði! Við bíðum
spennt eftir meiri snjó svo hægt sé að skreppa
með Sölku til Yawgoo Valley sem er skíðasvæði
hérna í grenndinni. Frúin hefur það gott og
litli bumbubúinn sparkar í hana af áfergju. Við
erum einmitt í leiðinni í skoðun í fyrramálið og
bíðum spennt. Við bíðum hins vegar ekki svo
spennt eftir píparanum sem á að koma til okkar
klukkan 7 í fyrramálið til þess að laga
klósettið okkar sem lekur...
nýjar bumbumyndir
05/02/06 15:37
jeiiii mér tókst það!!
ég gat sem sagt sett inn nýjar bumbumyndir án þess að Henning væri á svæðinu!
vei vei vei.. Þið getið kíkt á
bumbumyndirnar, þær voru teknar í gær þegar ég
var komin ákkúrat 28 vikur (af 40)..
Annars gengur lífið sinn vanagang hér á Transit - Úlfar kom til okkar á mánudaginn og gisti eina nótt og það var alveg rosalega gaman að fá hann í heimsókn! En fyrir utan það þá hefur þetta verið bara skóli, leikskóli, búðir, elda, sofa og pínu horft á sjónvarpið!
Við bíðum spennt eftir að mamma og pabbi (Kristín og Dóri) komi til okkar.. Þau koma eftir 10 daga! og svo erum við að byrja að undirbúa flutning þeirra Conni og Joe til okkar.. Erum að reyna að ákveða hvað við eigum að gera við dótið okkar sem er í gestaherberginu, hvert ætti skrifborðið að fara og hvað eigum við að gera við svefnsófann?? Um næstu helgi ætlum við svo að reyna að hjálpa þeim að flytja eitthvað af dótinu þeirra í kjallarann!
Núna er Henning á snjóbretti í Vermont, hann vaknaði kl 5.30 og lagði af stað keyrandi kl 6.00 með Conni, Michelle og David sem er maðurinn hennar Michelle (Henning, Conni og Michelle eru öll í stærðfræðinni).. keyrslan tekur ekki nema 3 klukkutíma hvor leið!
En á meðan Henning er á bretti ætlum við Salka að eiga notalegan stelpudag.
Núna kl korter í 11 er 10 stiga hiti úti.. það er bara sumarblíða!
jæja.. Hafið það sem allra allra best og endilega kommentið í kommentakerfið - það er svooo miklu skemmtilegra að blogga þegar maður veit að einhver er að lesa!
bestu kveðjur,
Emma