Elías Lóða Halldórsdóttir

ég fékk ábendingu um það að ég væri ennþá skráð í Smáratúni á heimasíðu Póstsins og ákvað að breyta því.. eftir að hafa skoðað póstssíðuna og ekki skilið hana í smátíma ákvað ég að slá inn nafninu mínu í einhverja leit sem er á síðunni þá birtist:
Did you mean:
Elías Lóða Halldórsdóttir

og ég kafnaði næstum því úr hlátri.. Þvílík ruglleit!
-Emma
|

systur á breytingaskeiði!

Systurnar á heimilinu eru að breytast! og ég er ekki alveg viss hvort þetta sé breyting sem hentar mér.. þær eru nefnilega að breytast í ofurmorgunhana! alla síðustu viku hafa þær skipst á að vakna fyrir kl 7 og í morgun vaknaði Kolkan meira að segja fyrir hálf 7.. það er aðeins of snemmt fyrir mig um helgar, höndla þetta á virkum dögum en æji hvað það væri gott að fá að sofa til 8 um helgar!

en ég held ég viti hvað er í gangi með systurnar - þær eru bara hægt og rólega að koma sér á íslenskan tíma.. vona bara að þær fari ekki alla leið á íslenska tímann og taki upp á því að vakna kl 3 á nóttunni!

góða helgi!
Emman
|