lokaverkið Laugh

hæ hó hæ hó það eru að koma jól!!!

hvað segið þið þá? héðan er allt gott að frétta.. jólaþrifin ganga mjög vel, erum aðeins strönduð í herberginu hennar Sölku enda af nógu að taka þar.. Jólagjafirnar eru bara í góðum gír, flest farið með póstinum til Íslands, en jólakortin ganga ekki eins vel.. þau eru ekki lögð af stað Laugh þannig að ef þið ætlið að fara að hneikslast yfir því að við höfum ekki sent ykkur jólakort þá er það bara á "leiðinni" Laugh verða kannski milli jólaognýárs kort en það er nú bara gaman!!

Henning var að klára síðustu kennsluna í bili áðan og er á kafi í heimaprófi þessa dagana.. á að skila eftir 6 daga og ég held að það gangi bara nokkuð vel..

Kolka er soldið pirruð í dag, enda tennur að koma.. vonandi verða þær komnar fyrir jólin svo hún geti notað þær á jólamatinn Happy

Salka á núna bara 2 daga eftir í skólanum fyrir jólafrí og hlakkar mikið til.. Við komumst að því að jólasveinarnir koma líka til Ameríku til að setja í skóna hjá íslensku börnunum.. Meira að segja er kolka með sinn skó útí glugga..

við fórum á jólaball hjá Íslendingafélaginu í Boston á sunnudaginn og ég er nú bara nokkuð viss um að þetta verður árlegur viðburður hjá okkur fjölskyldunni á meðan við búum hér! rosalega gaman að hitta marga íslendinga, borða góðan mat, dansa í kringum jólatréð og fá íslenskt nammi frá jólasveininum!

Salka fær vinkonu í heimsókn á morgun eftir skóla og svo á föstudaginn er þessi sama vinkona að bjóða öllum stelpunum heim í piparkökuhússskreytingarpartý.. og á föstudagskvöldið koma Fríða og Úlfar til okkar.. mikið gaman hjá okkur..

ég er búin að setja inn lokaverkefnið mitt.. (til hægri undir "Emmu Lokaverk")
og ef þið viljið lesa ógeðslega skemmtilega sögu af Sölku þá ættuð þið að kíkja í vefdagbókina á Barnalandi.. (salka.barnaland.is)!!!

hafið það gott og njótið jólaundirbúningsins!
-Emma
|

jólalykt, stress og læknisheimsókn

hæhæ allir saman (sem er nú sennilega enginn því það kommentar enginn!!!!)

Við erum komin með jólatré inn í stofu og jólalyktin maður.. nú mega Fríða og Úlfar bara fara að koma svo jólin geti komið.. það á að vísu ennþá eftir að þrífa allt, fara með stálhilluna niður í bílskúr, brettin í kjallarann, færa skrifborðið, baka og skreyta.. Ætla að byrja á einhverju af þessu á morgun, lofa, lofa!!

IMG_2729

við fórum með Kolku stóru til læknis í gær út af eyrnatoginu, en sem betur fer var það ekki eyrnabólga, bara heill hellingur af eyrnamerg og smá kúkastífla.. Fær sveskjusafa við því og það eru sennilega bara tennur sem valda þessum þrýsting í eyrun - þannig að sennilega er fleiri tennur á leiðinni! Stóra stelpan okkar er nú orðin 19 pund og 8 únsur = 8.85 kíló.. ekki lítil lengur, ha!

og svo er það bara lokaverkefnið.. ég á að skila því í dag og ég verð nú bara að viðurkenna að ég er hálf kvíðin.. en þetta hlýtur að reddast, er það ekki??
gef ykkur smá forsmekk af þessu hjá mér Laugh

henning

hafið það gott elskurnar og farið vel með ykkur..
ykkar Emma..
|

snjókorn falla..

ja hérna hér.. þegar ég bloggaði síðast var 18 stiga hiti og núna eru 3 gráður og kl er að verða 13!! þegar við vöknuðum í morgun var bara kominn snjór.. fyrsti snjór vetrarins!! þvílík kátína.. en hann stoppaði nú ekki lengi, bara allur bráðnaður núna..

við erum að hugsa um að fara að kaupa okkur jólatré þar sem Ameríkanarnir gera þetta alltaf svo snemma og við viljum ekki fá bara einhverja hríslu Laugh svo fer að líða að jólahreingerningunni (eða ættum við kannski bara að bíða með það og leyfa Fríðu að vera meðWinking.. Við ætlum líka að baka piparkökurnar í þessari viku en það verður nú sennilega ekki fyrr en eftir að ég er búin að skila af mér lokaverkefninu sem er á miðvikudaginn..

á föstudaginn förum við í jólapartý í stærðfræðideildinni, á laugardaginn er barnaafmæli hjá einni í bekknum hennar Sölku og á sunnudaginn er Jólaball hjá Íslendingafélaginu í Boston - kannski maður skelli sér á það.. þannig að það er nóg að gera á heimilinu þessa vikuna..

ég setti inn tvö ný myndbönd af Kolku.. og það er komin ný gáta.. endilega kíkið á það Laugh

hafið það gott..
kveðja úr jólalandi..
|

1.des..

hæhæ allir saman..
og gleðilegan 1.des.. já það er bara kominn desember.. eða svo segir dagatalið.. ég er nú samt alveg viss um að það sé bara september því hér er sko 18 stiga hiti (og á að fara upp í 21 gráðu í dag!!!).. getur það staðist í desember!!!?? maður spyr sig..

Kolka er að fá sína 3ju tönn.. uppi vinstra megin og er nú loksins farið að glytta í hana.. hún er sko ekki búin að vera fljót á leiðinni þessi.. og greyið Kolka búin að kveljast og kveljast yfir henni.. ég held líka að þessi tanntaka leiði út í eyrun því Kolka togar og ýtir á eyrun til skiptis..
meiri fréttir af Kolku.. Hún er alveg að fara að skríða.. eða sýnir alla vega tilþrif þegar hún situr á gólfinu, teygir hendurnar fram og setur þær í gólfið, vaggar sér svo fram og aftur þannig að rassinn fari upp frá gólfinu og er því á fjórum fótum (svona inn á milli) en er ekki ennþá búin að átta sig á því að fæturnir geta ekki verið í kross ef maður ætlar að fara eitthvað.. ég skal reyna að taka vidjó af þessu svo þið fattið hvað ég er að meina..
og enn meira.. Kolka er farin að spjalla alveg heilmikið.. talar og talar við dótið sitt þegar hún situr á leikteppinu - verst að það er allt með vælutón! Laugh
Kolka er farin að smakka alls kyns mat, bjúgu og kartöflur stappað saman, brauð með banana, brauð úr samlokuvélinni með skinku og osti, kalkún, seríós og svo hefur hún fengið mjólk, vatn og vatn+eplasafa í stútkönnu..

við matarborðið í gær var Salka eitthvað að tala við Kolku og fíflast í henni og Kolka fór að hlæja og þá sagði Salka: "hún er farin að hlæja eins og við".. mjög skemmtilegt..

nú á Henning bara einn dag eftir í skólanum og svo kemur upprifjun.. ég á líka eftir einn tíma í mínum skóla, á miðvikudaginn og þá á ég að skila lokaverkefninu mínu - oóóó.. Happy

sem sagt allt gott að frétta héðan og það er komin ný gáta!
-Emma
|