Fáránlega ófríður gaur!

Ég tók þátt í 10 km hlaupinu í Reykjavíkurmaraþoninu nú um daginn og var auðvitað lang fyrstur! Ég sá samt þennan svakalega ófríða gaur hlaupa og varð að sýna ykkur mynd af honum!
0140_02021.JPG
Þið getið skoða stærri mynd á þessari slóð.

Kveðjur (frá Providence!)
Henning
|

Blysför

Ég rakst á tvö holugeitungabú hérna í hólnum við göngustíginn við hliðina á okkur. Þar sem mér er mjög illa við geitunga þá kom ekki annað til greina en að eyða þeim. Vanalega geymi ég nokkur bengalblys frá áramótum til þess að gera út af við svona holubú en nú gerði ég þau mistök að eiga bara eitt blys eftir... hin blysin voru notuð til þess að sprengja upp áramótakjúklinginn - eins og venjan er. Þess vegna ákvað ég að nota bengalblys í eitt búið og stjörnuljós í hitt búið. Bengalblysið gerði alveg útaf við fyrra búið, enda er þvílíkur hiti og reykur af svona blysi en stjörnuljósin tvö dugðu ekki á seinna búið. Því reyndi ég aftur næsta kvöld og í þetta skiptið með sjö stjörnuljós. Það virðist ekki hafa virkar heldur því það er enn stríður straumur geitunga í holuna. Þeir eru hins vegar allir með stjörnur í augunum og greinilega stjörnuvitlausir! Haahahah!

-Henning
|

bráðum komum við aftur..

hæhæ allir saman..

hmmm.. hvað hefur gerst síðan síðasta blogg.. jú ég (Emma) varð 25 ára 11.júlí og átti mjög góðan dag eins og langflesta aðra daga.. fékk fullt af pökkum og kveðjum í tilefni dagsins sem er alltaf rosalega gaman..

Kolka er rosalega stillt og góð alltaf, sefur í 8 - 13 tíma á nóttunni og sefur mis mikið á daginn, stundum bara nokkra 30 mínútna lúra en aðra daga 4 tíma í vagninum.. en við erum nú ekkert að kvarta yfir því fyrst barnið sefur svona vel á nóttunni.. Hún er líka farin að halda haus og teygja sig í dót, brosir allan hringinn og hlær. Orðin voðalega stór allt í einu..

Salka er alveg að verða búin í sumarskólanum, síðasti dagurinn á föstudaginn næsta og þá eru bara 2 vikur í að við förum aftur til Ameríkunnar.. rosalega er tíminn fljótur að líða, ég er búin að vera hérna síðan í mars og mér finnst ég samt búin að vera stutt hérna..

Henning er ennþá að vinna í Landsbankanum, hættir 18.ágúst og ætlar að vera síðustu vikuna með fjölskyldunni sinni.. Laugh rosa gaman fyrir okkur.. Hann æfir af kappi fyrir Reykjavíkurmaraþonið um þessar mundir, hleypur um allan bæ, í hádeginu eða á kvöldin og tekur svo tröppurnar (í hjallahverfinu í Kópavogi) þess á milli með skokkhópnum sínum sem heitir múhammed að mig minnir.. Hann ætlar að hlaupa 10 kílómetra í Rvk maraþoninu þann 19.ágúst.. og við erum auðvitað alveg viss um að hann eigi eftir að koma fyrstur í mark á 29 mínútum!! hann er svo duglegur, hann Henning!

ég er alltaf að rembast við að vera heimavinnandi húsmóðir, þó ég sé nú minnst vinnandi og slöpp húsmóðir en heima er ég! ég skráði mig í tvö kvöldnámskeið í RISD og þar ætla ég að eyða mánudags- og miðvikudagskvöldum í vetur.. ég hlakka soldið til en kvíði líka rosalega fyrir enda einstaklega kvíðin manneskja og geri helst ekkert sem er nýtt.. þeir sem þekkja mig geta samþykkt þetta enda hefur fólk nú væntanlega tekið eftir því að ég borða alltaf á sömu veitingastöðunum og fæ mér alltaf það sama á þessum fínu stöðum.. það telst alveg til tíðinda ef ég fæ mér eitthvað annað en ég er vön og þá er ég yfirleitt búin að spá lengi í að fá mér það og hætt margoft við..

en við fórum með Fríðu og Úlfari í sumarbústaðinn á Flúðum um verslunarmannahelgina og ég verð nú bara að viðurkenna að ég hef ekki drukkið svona lítið um verslunarmannahelgi síðan ég var 15 ára.. enda drakk ég bara einn bjór (aðallega til þess að fá meiri mjólkurframleiðslu).. en mikið langaði mig að vera í eyjum.. verð alltaf alveg veik vikuna fyrir versló enda er ekki aftur snúið þegar maður hefur farið einu sinni!

og viti menn, ég hellti mér uppá kaffi áðan!! (Emma kannski að verða fullorðin, fylgist vel með næstu bloggum).. kaffið var nú aðallega lausn við þreytu og það virkaði enda fyrsta expressó uppáhelling (úr venjulegri kaffikönnu) á íslandi..

læt fylgja smá myndir enda alltaf gaman að þeim og svo fæ ég Hensann til að setja inn myndband af Kolku síðan um helgina..
tjá tjá..
Emman

fam

bros

fam2

syst
|