enn meira af Villu af neðri hæð!

Kyrjunin heldur áfram hjá Villóbí. Á föstudaginn fyrir viku var hún með einhverja seremónýju þar sem hún og kyrjunarflokkurinn hennar sló á trommur, kyrjaði og þagði svo inn á milli til kl 2 um nóttina.. Við Árni Már hittum hana hér fyrir utan á föstudeginum og þá tilkynnti hún okkur það að hún yrði með seremónýju um kvöldið og að hún yrði lengi frameftir og sagði að það myndi ekki gerast aftur.. Við Árni brostum bara hvort til annars og svo lét Árni slag standa og spurði sakleysislega hvort okkur væri boðið.. Villa sagði að því miður væri okkur ekki boðið..

Miklar vangaveltur voru hér í gangi um kvöldið þegar trommusláttur og kyrj ómaði um gangana.. "hvað ætli þau séu eiginlega að gera?" "hvað varð til þess að Villa fór allt í einu að kyrja svona svakalega?" "er þetta trúarsöfnuður?" og svona ýmislegt

það hlýtur að hafa verið gaman í seremónýjunni því gestirnir fóru ekki fyrr en rúmum sólarhring eftir að þeir komu!

-Emma

ps. það eru komin ný myndbönd á myndbandasíðuna!
|

kynning á Villóbí..

mig langar að segja ykkur sögu um hana Villóbí sem býr hér á fyrstu hæðinni.. Hún er sálfræðinemi sem býr í nákvæmlega eins íbúð og við erum í (3 svefnherbergi, 2 klósett, eldhús, borðstofa og stofa) og býr þar ein með hundinum sínum.. Hún fer að sofa fyrir kl 10 öll kvöld og heilsar sjaldan þegar við mætum henni í innkeyrslunni enda yfirleitt í hrókasamræðum við hundinn sinn.. Henning hitti hana nú samt einu sinni þegar hún var ekki að ræða við hvutta og þá segist hún vera að hugsa um að hætta að leigja hér og fara í hugleiðlsubúðir í einhverja mánuði.. og svo á sunnudaginn þá byrjar fjörið.. Villóbí var með gesti og þau eru að kyrja á fullu í stofunni og það var opið fram á gang (hurð sem hún notar eingöngu til þess að sækja póstinn sinn ca 1x í viku) og reykelsislyktina lagði um allan stigagang og ég er nokkuð viss um að þau hefðu ekkert tekið eftir því þótt ég hefði skotist inn til þeirra og bæst í kyrjunarhópinn.. Við á efrihæðinni vorum frekar hissa á þessu en höfðum lúmst gaman að þessu og flissuðum og tístum í sífellu þar til þetta hætti.. Í gær komum við svo heim eftir að hafa sótt Sölku fótgangandi í skólann og þá er hún aftur með kyrjunarhópinn og þau kyrja og kyrja.. Laugh

Er búin að vera að reyna að setja inn myndbönd en það virðist ekki ganga.. bið henning um að kíkja á það þegar hann kemur heim úr skólanum..

hafið það ætíð sem best,
Emma og hinir.
|

nú er úti svefnfriðurinn!

það er ekki svefnfriður á heimilinu þessa dagana.. Skvísan á efri hæðinni fer á fætur fyrir kl 7 alla daga og beint í hælaskóna og hleypur svo fram og aftur um íbúðina í svona hálftíma og við það vaknar auðvitað Kolka.. svo eru hér málarar hangandi á húsinu og þeir mæta líka fyrir allar aldir þannig að maður þarf að vera kominn í fötin fyrir kl 8 því við þurfum að opna bílskúrinn fyrir þá þegar þeir mæta..
-emman svefnlausa..
|

buhu buhu..

dularfullir hlutir hafa gerst hér á Transit... Páskaeggið mitt hvarf.. og þá er ég ekki að tala um að það hafi horfið ofan í mig, heldur hvarf það.. það var í ísskápnum og svo hvarf það.. henning er grunaður um verknaðinn en eftir að hafa yfirheyrt hann lengi og vel (tók smá Jack Bauer á hann) þá hefur hann nokkurn veginn sannfært mig um að hann hafi ekki tekið það, borðað það né falið það.. og þá er Salka eftir en hún segist ekki hafa tekið það og henni finnst súkkulaði ekkert sérstakt svo hún hefur ekki borðað það.. en hvar er það??? þetta er alveg glatað!

ég er alla vega búin að ákveða það að um næstu páska ætla ég að borða páskaeggið mitt strax og vera ekkert að spara það - maður græðir greinilega ekkert á því!

- emman sem á ekkert páskaegg..
|

vor eða vetur?

hér í providencu eru árstíðirnar voða stuttar.. í gær var vor með sól, golu og nokkuð hlýju lofti og meira að segja geitungarnir mættu í þessa vorgleði en í dag er vetur með hagléljum, kulda og leiðindum.. alveg ótrúlegt.. vonum að það fari að vora aftur fljótlega!

Annars gengur lífið sinn vanagang hér, Kolka er komin með 8. tönnina loksins og Salka er hress og kát í skólanum.. Við eigum líka von á nokkrum heimsóknum nú með vorinu (ef það verður þá vor), Árni Már kemur eftir 5 daga, Fríða og Úlfar ætla að koma í afmælið hennar Kolku, Fanney og Lilja vinkonur mínar koma í lok maí og Bryndís kemur um miðjan júní.. fullt að gerast..

Henning er svo að fara á sumarnámskeið í Utah í byrjun júní og ætlar að skilja okkur dömurnar einar eftir..

jæja.. hafið það gott og við lofum að vera duglegri að blogga.. þetta gengur ekki svona..
|