Apr 2006
Borðaðu númerið þitt
28/04/06 10:45
Ég var á þeim öndvegisstað Tryggingastofnun í dag með Emmu.
Við þurftum auðvitað að taka númer og síðan var
kallað á okkur og allt það. En síðan var engin
ruslafata fyrir númerið okkar þannig að ég er
ennþá með númerið. Það sama var uppi á teningnum
í lagnadeild BYKO. Ég var þess vegna að spá
hvort það væri ekki sniðugt að prenta númer á
oblátur og dreifa þeim í staðinn fyrir
bréfmiðum. Þá er hægt að borða oblátuna þegar
búið er að kalla á mann til afgreiðslu og þannig
má spara alveg heilmikið af trjám.
|
Myndir frá Ameríku og Íslandi
27/04/06 18:04
Við vorum að smella inn myndum bæði frá Ameríku og
Íslandi. Endilega kíkið á þær. Þær sýna meðal annars
vorið í Ameríku, framkvæmdir á neðri hæðinni í
Holtsbúð, snjó og skólann hennar Sölku. Fyrir þá sem
eru í trúarlegum hugleiðingum mæli ég með: Flying Spaghetti Monster.
Salka "ein" í sund!
25/04/06 22:12
Ég og Salka skelltum okkur saman í sund núna í kvöld
í Garðabæjarlaugina. Salka er orðin svo gömul að hún
þurfti að fara ein í kvennaklefann! Hún stóð sig
rosalega vel og var eldsnögg ofan í laug og þegar
ofan í var komið var hún svaka dugleg að synda og
kafa. Hún var einnig eldsnögg upp úr og gekk alveg
ótrúlega vel í fyrsta skiptið! Ég fór að rifja upp
þegar ég fór einu sinni einn í sund og náði mér í
sápu í sturtunni og skolaði hana svo af mér og lagði
af stað út í laug. Ég var kominn út úr klefanum en
var samt enn inni í sundlaugarbyggingunni þegar ég
áttaði mig á því að ég hafði gleymt að fara í
sundskýluna! Ég sneri við á staðnum og smellti mér í
skýluna og enginn sá til, en þetta var samt sem áður
vægt taugaáfall!
Myndir frá New York
18/04/06 11:21