aðeins vika!

nú eru bara 7 dagar í það að við Henning leggjum af stað til Íslands.. og það er nú bara orðið þannig að ég er hætt að sofa.. er orðin svo spennt og upptjúnnuð á kvöldin að ég get varla sofnað.. "í hverju á ég að vera á leiðinni? hvað ætla ég að taka með mér? í hverju á ég að vera í partýinu? hvenær á ég að fara í mollið og kaupa það sem ég ætla að kaupa áður en ég fer? hvenær á ég að hitta þennan og hinn?" og svona eitt og annað sem poppar upp í hausinn á kvöldin.. Laugh

Annars gengur lífið sinn vanagang hér á Transit.. Salka og Henning fara í skólann á morgnana og ég, Kolka og Úlfar förum í göngutúr í stæfræ húsið, pikkum Hensa upp og förum á Starbucks og fáum okkur þrefalda Grande Mokka.. og löbbum svo heim á leið.. Kolka sofnar nú alltaf á leiðinni heim og neitar svo að fara að sofa fyrr en rétt fyrir hádegið..


K1K2K3K4

Svona er maður duglegur að standa!! Soldið skítug á þriðju myndinni.. (hún er það nú á öllum en það sést best á 3ju Laugh )

jæja.. ég verð að fara að sturta mig og gera mig sæta, er að fara að hitta Conni í hádegismat á Kebab og Karrý..
hafið það gott..
-Emma
|