lítill lasarus og sirkusdýr á heimilinu..
17/09/07 21:58
Kolka litla vaknaði lasin í gærkvöldi og þá var sko
allt ómögulegt.. hún vildi bara fara fram og svo var
hún svo kvefuð að hún gat eiginlega ekki verið með
snuðið með góðu móti.. Endaði með því að hún var
tekin fram og fékk að horfa á DVD með mömmu sinni
langt fram eftir nóttu..
í dag er hún svo greinilega búin að vera lasin, engin hlaup og ekkert klifur upp um allt og vill bara lesa bækur með afa sínum.
Salka er svooo heilbrigð ung stúlka (eitthvað annað en mamma hennar), hún á alltaf að taka með sér létt snarl í skólann til þess að narta í í frímínútum á morgnana og í dag vildi hún taka kál með sér.. Mér fannst tómt kál nú full furðulegt snarl þannig að við sættumst á sallat með gúrku, papriku og káli
Salka byrjaði í eftiskólaprógrammi í dag, Sirkusnum.. Hún ætlar að læra ýmis Sirkusbrögð í vetur, t.d. að snúa diskum með priki, hjóla á einhjóli, ganga á stultum og margt fleira.. Henni líst rosa vel á þetta..
langaði bara að kasta á ykkur kveðju og endilega kommentið!!
kv. Emma

|