helv.. ávaxtaflugur!

ég er að verða gjörsamlega geðveik á ávaxtaflugunum sem fljúga hér um alla íbúðina og pirra heimamenn og gesti þeirra (aðallega mig samt!).. Þessar árans flugur eru útum alla íbúð, mest í eldhúsinu en líka í stofunni, borðstofunni, svefnherbergjunum og á klósettunum (meira að segja inní tannburstaskápnum!) ef það eru ekki til ávextir fyrir þessi grey þá hanga þær á uppþvottaburstunum - mjöööög furðulegar flugur..

-Emman sem hefur enga þolinmæði gagnvart ávaxtaflugum!
|