bara eitt svar eftir..
07/03/06 22:34
hæhæ allir saman!
hvað segið þið þá? Við erum ennþá í skýjunum yfir Lincoln svarinu.. Við erum búin að fá svör frá tveimur skólum í viðbót, Salka er á biðlista í Gordon skóla (ég hélt að vísu að hún kæmist inn í hann) en hún komst ekki inn í Moses Brown.. Við þurfum að svara Gordon skóla um það hvort við viljum að Salka verði áfram á biðlista en ég held við tökum hana af biðlistanum og gerum þannig einhverjum öðrum greiða..
En svona annað, þá styttist í að afmælið hennar Sölku verði haldið hátíðlegt
við erum ennþá að hugsa hvað við
eigum að bjóða upp á en við ætlum að reyna að
hafa þetta bara heimilislegt og notalegt..
Ekkert stress - bara gaman! Afmælið verður
haldið á sunnudaginn kl.3 (að staðartíma) og
ykkur er auðvitað velkomið að mæta (boðskortin
voru ekki send nema bara innanlands)!
Sambúðin með þjóðverjunum (einn 1/2 þjóðverji og einn 3/4 þjóðverji) gengur bara alveg ótrúlega vel.. Þau eru nú ekki mikið heima á virkum dögum en þegar þau eru heima á kvöldin þá er nú bara hlunkað sér við borðstofuborðið og spilað af miklu kappi (og nartað í alls kyns alls kyns). Það er meira að segja verið að skrifa niður stigin á töfluna, og stelpurnar eru með 9 vinninga og strákarnir 8 - mjög mikil spenna sem fylgir þessu!
Við Henning hlupum um Mollið í morgun, vorum ekki nema 40 mínútur og náðum þó að kaupa eitthvað og skoða ennþá meira..
Núna þurfum við að fara að skipuleggja okkur svolítið betur svo við náum að gera það sem við ætlum að gera (og kaupa) áður en við Salka förum til Íslands, það eru nú ekki nema 11 dagar í að við leggjum í hann!
Við öll (ég, Henning, Salka, Conni og Joe) fórum í IKEA á laugardaginn og keyptum fullt og svo þrufti auðvitað að skrúfa þetta allt saman og hengja upp hitt og þetta. Henning stóð sig með eindæmum vel í því en auðvitað var einn baðskápurinn gallaður svo við þurfum að fara aftur í IKEA og skila og fá nýjan.. En þegar það er búið og skápurinn kominn upp þá held ég að íbúðin sé bara orðin eins fín og hún verður!! það verður voða gaman þegar það er búið!
Í lokin viljum við óska henni Agnesi frænku innilega til hamingju með afmælið og við vonum að þú hafir átt góðan dag!
Bestu kveðjur úr vorinu á Transit!

|