ja hérna hér!

jæja þið sem kíkið kannski ennþá..
ég skellti inn 3 nýjum myndböndum, 2 af Kolku og eitt af dansinum hennar Sölku á ballettsýningunni.. Ballett myndbandið er mjög langt þannig að þið ættuð að leyfa því að byrja að halast niður og skella ykkur í bíó og kíkja svo á það fyrir svefninn Laugh alla vega sýnið þolinmæði, ég vona að þetta virki samt, enda rosalega glæsilegar ballerínur þarna á ferð..

hmmm.. svo ég stikli aðeins á stóru..
*Henning skellti sér til Utah í sumarskóla í 13 daga og er nú búinn að vera í 10 af þeim 13..
*Fríða kom og er búin að vera hjá okkur stelpunum á meðan, frábær hjálp, ómetanlegur félagsskapur og geðhjálpari mikill!
*Allt sem klikkað getur hefur klikkað á meðan Henning er í burtu:
- Bíllinn varð rafmagnslaus og svo strax á eftir næstum því bensínlaus
- Rafmagnið sló út í hluta af íbúðinni - einmitt þeim hluta sem Internetið, síminn, sjónvarpið og loftkælingin eru í sambandi
- Annað klósettið bilaði.
- Mjási hennar Kolku týndist (og að vísu líka ein stútkannan hennar) en fannst aftur
- Þvottavélin bilaði
...svo eitthvað sé nefnt!

En það hefur nú líka ýmislegt skemmtilegt gerst á þessum 2 vikum:
* við sáum íkornaunga sem við höfum aldrei séð áður - þvílíkt sætur!
* Fríða er 2 sinnum búin að fá hláturskast á meðan hún er með fullan munn af vökva og getur ekki kyngt.
* Fríða er komin með Gelgjuna nr.2 og segir "ógissslega!" í gríð og erg!
* Við sáum rosa skemmtilega ballett/jazz sýningu
* við höfum borðað góðan mat, nammi og horft á vídjó alveg eins og stelpuvikur eiga að vera!
* við erum búnar að labba rosalega mikið
* og höfum leikið okkur mikið í Brown garðinum..
* og við höfum tekið á móti þessum ýmsu erfiðleikum með þvílíku jafnaðargeði. Laugh

skelli inn 2 nýjum myndum í lokin:
DSC02562

DSC02563

hafið það gott..
kv. Emma


|