labbandi Kolka!

hún Kolka byrjaði að labba í dag! hún fór allt í einu að æfa sig í gær og aftur strax í morgun og fyrir hádegið var hún farin að labba hálfa leið yfir stofuna! hún byrjaði á því að taka voða lítil skref, eiginlega bara nokkra millimetra en er nú komin upp í sentimetraskrefin Laugh

annars er það að frétta að Kolka er ennþá kvefuð og Henning er líka lasinn, með kvef, hálsbólgu, höfuðverk og almennan slappleika. Við vonum að allir vakni hressir á morgun því við ætlum að fara í ferðalag á föstudaginn.. Við ætlum að keyra og skoða Niagara Falls og gista á hóteli þar í 2 nætur. Við ætlum að gista á Marriott hótelinu sem er við fossana..

hafið það gott..
ferðafjölskyldan!
|