spennan magnast..
30/11/05 16:02
Sælinú!!
Hvað segið þið þá? það mætti halda að allir væru í jólaprófum eða að farast úr jólastressi því fólk er búið að vera hálf latt við að kommenta.. Vitið þið ekki hvað það gerir fyrir einfaldar, óléttar og viðkvæmar sálir, eins og mig, að fá kveðjur og komment frá vinum og vandamönnum??
Við erum sko aldeilis farin að telja niður dagana í Íslandsförina og í dag er vika!! og það þýðir að það er vika í sónarinn magnaða!!
Við erum aðeins farin að stressast hérna fyrir ferðina, við erum að vona að allir pakkar (4 eða 5) sem eru á leiðinni eigi eftir að vera komnir á réttum tíma og svo er auðvitað spurningin hvort við getum farið með þetta allt til Íslands.. Svo er hann Henning alltaf að fá ný og ný erfið heimadæmi í einum kúrsi sem hann þarf að skila.. Kennarinn hefði alveg mátt dreyfa þessu betur yfir önnina!
Núna er voða vinsælt hjá okkur að hlusta á Létt á netinu (öll jólalögin) og föndra og borða smákökur.. Rosa notó hjá okkur.. Svona verður það líka á Íslandi!
En ég bara skil ekki þetta veður hér í Providence, það er sko ekki vitund jólalegt - heldur er bara eiginlega sumarlegt.. í morgun þegar við vöknuðum var rigning og 15 stiga hiti, já ég sagði 15 stiga hiti!!! Hvað finnst ykkur um það?
Hún Salka er búin að vera svo dugleg að æfa sig að hjóla, núna er hún bara með eitt hjálparadekk (hitt datt af þegar hún var að hjóla um daginn) og hún á sko ekki í neinum vandræðum með þetta. Hjólar svo svakalega hratt að Henning þarf að hlaupa og hlaupa á eftir henni og í enda ferðarinnar er hann alltaf rennsveittur! Mamman er svo í kraftgöngu lengst á eftir!!
Eitt af því sem ég hafði aldrei kynnst fyrr en ég flutti til Ameríku var símasölusímsvarar!! Þeir eru alveg óþolandi! Símsvarar sem hringja heim til þín (og trufla þig þegar þú ert önnum kafinn við að föndra, hlusta á íslensk jólalög og borða smákökurnar þínar) og býður þér lán! Þetta er alveg einstaklega pirrandi!
Við Henning, og þá aðallega Henning er búin að vera að fylla út umsóknir í skóla fyrir Sölku og það er sko engin smá vinna (segi ég sem þurfti bara að skrifa undir, nafnið mitt og dagsetningu).. Við ætlum svo að fara með umsóknirnar á föstudaginn og svo er bara að bíða og biðja og vona! Við vitum ekkert hvað við eigum að gera ef hún kemst ekki inn í einn af þessum þremur skólum!
jæja.. er þetta ekki orðið fínt..
Hlakka til að hitta ykkur,
Emma og Akkalú sem stækkar og stækkar!

|