eitthvað um ekkert..

uppþvottavélin hætti að leka þegar hún heyrði að leigusalinn ætlaði að kíkja á sig! ótrúleg maskína..

ég er búin að vera að fara í gegnum föt stelpnanna í dag. Er alveg búin með Kolku kommóðu, og blessað barnið á engin föt! Er búin með hluta af Sölkufötum og hún virðist vera aðeins betur sett en systir sín.. en það má auðvitað alltaf bæta fallegum fötum í safnið Laugh

Við Kolka erum svo agalega íslenskar hér á daginn að við borðum hafragraut og lifrarpylsu í hádeginu - 2 daga í röðWinking.. Kolku finnst það alveg meiriháttar (eins og mömmu sinni) en mikið verður barnið hryllilega subbulegt eftir svona máltíð.. henni virðist finnast betra að mylja lifrarpylsuna út í grautinn og veiða kögglana svo aftur uppúr með puttunum og skella í munninn og stundum í hárið.

En eins og oft gerist þegar ég er ólétt, þá langar mig í eitthvað gott og sérstaklega þegar ég hef borðað eitthvað alveg ósætt (eins og hafragraut eða fisk) og það var einmitt það sem gerðist í dag og ég ákvað að fá mér ís og marengs (sem ég bakaði fyrir Thanksgiving) í hádegiseftirrétt Laugh svo er ég að hneikslast á því að ég þyngist mikið!! Laugh

Eigið góða helgi!
-Emma
|