Lautarferð og gestir..

Sælt veri fólkið!!

Hvað segið þið þá? Eruð þið ekki örugglega búin að vera dugleg að skoða gáturnar og leggja hausana ykkar í bleyti og leysa gátur??

Annars er bara allt gott að frétta af okkur. Á laugardaginn fórum við í Roger Williams Park með Dísu, Neil og Daníel Bjarna í rosa góðu veðri. Við borðuðum nesti, flatkökur með hangikjöti, heimabakað hafrakex smurt með smjörva og eplasafa að drekka með! Við skoðuðum leiktækin í garðinum, löbbuðum svo hjá einhverri lækjarsprænu yfir brýr og Salka og Daníel Bjarni gáfu öndunum brauð með hnetusmjöri og sultu og þegar við vorum búin að vera þar, fórum við og skoðuðum Roger Williams Park Temple to Music og köstuðum boltum og frisbee disk á milli og skemmtum okkur konunglega. Um 5 leytið var haldið heim á leið (til okkar í Providence) og bílunum lagt og farið á kaffihús á Wickenden Street og svo fóru Dísa, Neil og Daníel Bjarni heim til sín og við fórum að undirbúa kvöldmatinn (upphituð bjúgu, með uppstúf og kartöflum!)

Seint á laugardagskvöldið komu svo Úlfar og afi Henning frá Flórída (kaffibrúnir og sætir). Þeir voru að koma úr golfferð og eru gjörsamlega búnir á því, enda búnir að vakna fyrir sólarupprás í 2 vikur (hér í Ameríku þýðir það fyrir kl.hálf 7!!) Við erum búin að labba með þá um hverfið og sýna afa Henning skólann og garðinn og leikskólann og svona þetta helsta!
Við elduðum svo fyrir þá íslenskt lambalæri í gærkvöldi (sunnudag) og gleymdum auðvitað ekki meðlætinu og bragðaðist þetta alveg dásamlega og engum varð meint af!

Þegar Salka var búin í leikskólanum í dag fórum við öll í dýrabúðina og skoðuðum öll dýrin. Ég og Henning héldum á pínkulitlum Ferretum (8 vikna) og það var búið að selja eina broddgöltinn sem var eftir en þeir eiga von á fleirum litlum greyjum! (ættum við ekki bara að kaupa okkur Alfa og Ómega þá?)

Í kvöld bauð afi Henning okkur út að borða á Chili's og það var alveg rosalega gott og eins og oft áður tókum við afganga með okkur heim.

Úlfar er búinn að vera að gera við bílinn okkar, gengur ekkert allt of vel þar sem bíllinn er ekki alveg viss hvort hann sé eitthvað bilaður eða ekki - var bilaður, Úlfar kíkir á hann og finnur út hvað er að, kemur við það sem er bilað og það lagast en svo bilast það aftur þegar við förum í bíltúr! Á morgun ætlar Úlfar að reyna að fá nýjan hlut í bílinn og laga hann áður en þeir (Úlfar og afi Henning) fara aftur til Íslands á morgun!

Akkalú stækkar með hverjum deginum og verður alltaf plássfrekari og plássfrekari! (hvar endar þetta?) tíhíhíh..

Jæja eigum við ekki að segja þetta gott af fréttum í bili..

Bestu kveðjur frá Ameríkunni,
Emma Þurrum, Henning Þurrum, Salka Þurrum og Akkalú Þurrum

ps. Við erum búin að kaupa okkur miða heim um jólin!!

|