ný færsla!


IMG_3132
Kolka í fína snjógallanum sínum sem hún fékk í jólagjöf!
IMG_3133
soldið erfitt að hreyfa sig í honum Laugh

jæja.. þá er nú löngu kominn tími á nýja færslu!! en það er nú bara þannig að ég er komin með mína eigin tölvu og þetta forrit (til að blogga) er ekki á minni tölvu og það er víst soldið vesen að setja það inn hjá mér.. myndaalbúmin eru (á einhvern dularfullan hátt) tengd í iPhoto á Henningstölvu og það fer allt í steik ef við flytjum þetta á mína tölvu eða eitthvað svoleiðis.. þannig að ég verð bara að nota Hensatölvu ef ég ætla að blogga..

hér er alveg viðbjóðslega kalt.. -10 í gærmorgun og -8 í morgun.. en það á víst að fara að hlýna þannig að ég get tekið gleði mína á ný Laugh

Við höfðum það rosalega gott um jólin og fengum rosa margar fallegar gjafir, borðuðum góðan mat og skelltum okkur til New York yfir áramótin.. Eins og flestir vita þá voru Fríða og Úlfar hjá okkur um jólin og sem betur fer bara.. Við söknum þeirra ennþá.. rosalega gott og gaman að hafa þau hér..

Kolka er nú farin að skríða og er ekki hægt að líta af henni eitt augnablik því þá er hún farin að fikta í blómunum sem Conni og Joe eiga og eru hér í pössun nú eða kapalafruglaranum - sem henni finnst rosa spennó! Hún er komin með 6 tennur og er ekki ósvipuð Goofy !!! images

Salka byrjaði svo aftur í skólanum 2.janúar og skemmtir sér mjög vel.. er rosalega kát að fara á morgnana og gengur mjög vel að lesa.. hún fær bók til að lesa heima um helgar en svo er hún komin með nokkur orð núna sem hún á að æfa sig á á hverjum degi..

Við Henning erum svo að fara í örstutta Íslandsheimsókn fyrstu helgina í febrúar.. og svo komum við stelpurnar að morgni 10.mars og verðum þangað til í lok mars.. Henning kemur aðeins seinna.. hann er ekki alveg búinn að ákveða hvaða dag ennþá!

jæja Kolka er vöknuð og farin að spjalla uppi í rúmi.. best að fara að tala við hana!

|