gestir, gestir og fleiri gestir!!

sæl verið þið öll sömul!

Voðalega er langt síðan ég hef bloggað hér.. eða tókuð þið ekkert eftir því?? En fyrir þá sem hafa gaman að því að fylgjast með "fræga" fólkinu í útlöndum þá er ég að hugsa um að segja ykkur frá því merkilegasta sem hefur verið gert hér í Providence undanfarna daga og vikur..

Það er sko búið að vera mikið að gera hjá okkur undanfarna daga og þá aðallega í gestagangi - en það er nú alltaf svo svakalega gaman að fá heimsóknir frá Íslandi!

Fyrir tæpum tveimur vikum komu mamma mín og pabbi (Kristín og Dóri) í heimsókn og voru hjá okkur í 5 daga.. Það var alveg einstaklega gaman að sjá þau en á leiðinni heim frá Boston þá komumst við að því að pabbi kom með flensu með sér - og við sem vorum ný búin að sótthreinsa íbúðina út af lúsafaraldri.. En það var nú í lagi að hann hefði komið með þessa pest sína (hann fær sko alltaf flensu þegar hann pantar flug til okkar) því hann smitaði okkur ekki en greyið mamma - hún fékk flensuna..
Sem betur fer vorum við ekki með mikla dagskrá planaða, bara aðeins að kíkja í pepboys, sears (verkfæradeildina), aðeins að kíkja í Mollið og svo bara að hafa það notó heima í náttfötum, sem við gerðum mikið af.. Náttfatapartý á hverju kvöldi alveg.. Rosalega notó!

Við horfðum líka á úrslitin í Júróvísjón keppninni (íslensku) og vorum voðalega spennt yfir keppninni en vissum þó alveg að hún Silvía Nótt myndi vinna þetta - tremma í hel! Enda vissum við að hann Úlfar (tengdapabbi) myndi sjá til þess að hún fengi nægjanlega mörg stig til þess að vinna..

Við fórum með þau út að borða, á TGI Fridays, Bugaboo Creek og svo var auðvitað þetta venjulega smakkað: Pizza Hut og Wendy's!

Mamma og pabbi fóru svo á mánudegi og Fríða og Úlfar komu svo tveimur dögum seinna og það var alveg rosalega gaman að sjá þau líka..
Moll ferðirnar byrjuðu strax daginn eftir að þau komu og ég hef greinilega farið mér heldur geyst því um kvöldið var ég hálfómöguleg, með bólgna fætur, verki í baki og frekar mikla túrverki og þrýsting.. en það lagaðist um nóttina og ég gat því haldið áfram að hjálpa þeim Fríðu og Úlfari í leiðöngrum um búðir!

Við fórum í skemmtilegan bíltúr með Fríðu og Úlfari, skoðuðum strendur sem eru neðst í Rhode Island og höfðum mjög gaman að því en veðrið var nú ekki beint strandlegt, -7 gráður og vindur!! Enda kíktum við bara rétt svo út úr bílnum, fengum okkur frískt loft og inn aftur!

Af bumbubúanum er bara fínt að frétta, við fórum í skoðun í gærmorgun og eftir endalaust langa bið á biðstofunni og miklar pælingar okkar hjónanna hvað við gætum gert til þess að fá fljótari "afgreiðslu" (s.s. æla á gólfið, troða sér ofan í ruslatunnu, skera sig á púls og svona hitt og þetta), hittum við loksins lækninn sem sagði að blóðþrýstingurinn minn væri fínn, hjartsláttur Akkalý svakafínn og allt liti eðlilega út..

Núna eigum við bara eftir að fara í eina læknisheimsókn enn áður en við prinsessurnar í fjölskyldunni skellum okkur til Íslands!

Við höfum líka ákveðið að halda afmælið hennar Sölku aftur heima og fá Vísindagaura til þess að sjá um skemmtiatriðin.. það verður spennandi að sjá hvort börnin eða fullorðnir hafi meira gaman að því!

og já.. Conni og Joe eru að flytja inn til okkar í dag og við erum búin að vera rosalega dugleg að breyta og betrumbæta heimilið að undanförnu, komin hilla og lesljós inn í hjónaherbergið (takk Úlfar!) og núna er skrifborðið komið hjá bogaglugganum og þá getur maður þóst vera í tölvunni þegar maður er að njósna um nágrannana, hehe..

og já enn eitt enn.. Við erum degi á eftir áætlun hérna í Ameríku, við erum nebbla með bolludaginn í dag!

er þetta ekki orðið ágætt? Vona að þið hafið náð að lesa í gegnum þetta og endilega verið duglega að skilja eftir athugasemdir og ég lofa að setja inn myndir í dag eða á morgun, ok!

Bestu kveðjur,
Emma og Akkalý (31v3d)
|